Víkurfréttir - 29.09.1983, Síða 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. september 1983 11
Hvað er ríkisstjórnin að gera fyrir þig?:
Vill Sparisjóðurinn
kaupa Landsbankann?
Fjölmennur fundur Steingríms í Stapa
,,Ég skal skila því til Al-
berts, að Sparisjóöurinn
hafi áhuga á að kaupa
Landsbankann, Páll,“ sagði
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, á opnum
fundi í litla sal Stapa á laug-
ardaginn var, en þetta varsá
fjórði í röðinni af mörgum,
sem haldnir verða á næstu
dögum undir yfirskriftinni:
„Hvað er ríkisstjórnin að
gera fyrir þig?“.
„Mér finnst það nú ansi
hart af flokksbræðrum mín-
um hér, að þeir skuli ekki
treysta mér til að fylla litla
salinn", segði Steingrímur
og hló við, en húsfyllir varð
og margir fengu ekki sæti,
en það hafa verið þarna um
300 manns þegar mest var.
Steingrímur flutti fram-
söguræðu þar sem hann
kom inn á verk og gjörðir
ríkisstjórnarinnar frá því
hún tók við völdum og hvað
framundan væri í þeim
málum. Forsætisráðherra
sagði m.a. að um síðustu
áramót hafi verðbólga
mælst 80%, 1. júní sl. hafi
hún verið komin í 130%, en
nú væri búið að ná henni
niður í 35% og um næstu
áramót yrði hún komin í
30%. Og með áframhald-
andi aðgerðum myndi verð-
bólgan fara niður í 10% í
árslok 1984.
„Það er rétt, að launþegar
hafa borið bagga þessara
aðgerða, en þó með ávinn-
ingi í hjöðnun verðbólgu,"
sagði forsætisráðherra, en
bætti þó við: ,,Lögin
falla úr gildi 1. febrúar n.k.
og þá geta viðræður hafist,
en þangað til má nota tím-
ann til undirbúnings, ekki
veitir af. Nú, það er margt
sem hefur hjálpað til að
koma verðbólgunni upp.
Eins og allir landsmenn vita
hefur hinn mikli aflabrestur
haftslæm áhrif ágang þjóð-
mála, fella hefur þurft
gengið hvað eftir annað þar
af leiöandi, svo hægt væri
að halda fiskiðnaðinum
gangandi, en hann skapar
okkur 75% af öllum gjald-
eyri sem við fáum. - Erlend
lántaka hefur verið mjög
mikil og Ijóst að ekki er
hægt að halda uppi kaup-
mætti svoleiðis. Islendingar
hafa eytt um efni fram og
einkaneysla hefur aukist
um 30% á síðustu 30 árum.“
Að lokinni framsögu-
ræðu forsætisráðherra var
mönnum heimilt að leggja
fram fyrirspurnir.
E i nar Kristi nsson í
Sjöstjörnunni, Njarðvík,
spurði forsætisráðherra
hvort erlend lán yrðu ekki
tekin, væru þau notuð til
arðbærra hluta.
Steingrímur svaraöi því á
þá leið, að mörg fyrirtæki
hefðu farið illa vegna
rangra fjárfestinga. Lán
þessi ætti ekki að taka nema
til arðbærra framkvæmda,
en ef fyrirtæki gætu ekki
staöið undir þessum lánum,
þá yrðu þau bara að fara á
hausinn.
Páll Jónsson, sparisjóðs-
stjóri, annar fyrirspyrjandi,
sagði m.a. um sölu ríkis-
fyrirtækja, að hiklaust ætti
aö selja ríkisbankana og þar
með aö losa þá pólitíkusa
sem þar ráða ferðinni af
þeirri kvöð að þurfa að taka
ákvarðanir einungis eftir því
hvar menn væru i pólitík.
„Ég skal segja Albert frá
því að Sparisjóðurinn i
Keflavík vilji kaupa Lands-
bankann," sagði Steingrím-
ur, „en ég er ekki sammála
því að selja ríkisbankana.
Ríkiö á að standa bak við
lánastofnanir og eiga alla
vega einn ríkisbanka, og ég
er á því að töluverö rikis-
umsvif séu nauðsynleg."
í fyrirspurn Páls kom
fleira athyglisvert fram:
„Allt sem ríkisstjórnin gerir
á að vera sameiginlegt, og
einnig finnst mér að ein-
stakir ráðherra eigi ekki að
vera að auglýsa sig í tíma og
ótíma."
Forsætisráðherra svar-
aöi á eftirfarandi hátt: „Það
getur verið erfitt að stöðva
mann sem hefur alltaf verið
stjarna og leikið sér með
bolta, en þetta berauðvitað
að varast."
Annar Páll, en hann er Þ.
Jónsson, smiður, sagði
fundargestum litla bygg-
ingarsögu. Hún var þannig
að Páll byggði sér grunn
hér í Keflavík og hafði síðan
samband við forráðamenn
Siglufjarðarhúsa og sendi
þeim teikningu af grunn-
inum og bað þá um að gera
sér tilboð sem fæli í sér
kaup á tilbúnu húsi og upp-
setningu þess. Tilboðið
hljóöaði síöan upp á 1100
þúsund ef húsinu yrði skil-
að fokheldu, en fullfrá-
gengnu kr. 1900 þús. Páll
tók hvorugu tilboðinu en
byggði sjálfur og kostaöi
það hann um 400 þús. „Svo
eruð þið að segja að bygg-
ingaiðnaðurinn séillaá vegi
staddur, ég er ekki hissa á
því." Steingrímur svaraöi
þessu stutt og laggott: „Er
nokkuð hægtaðfáþig, Páll,
til að byggja fyrir mig svona
hús?“
Fleiri fyrirspurnir komu
frá fundarmönnum, en við
látum þetta gott heita.
pket.
VÍKUR-fréttir
vikulega
„Það getur verið erfitt aö stöðva mann sem alltaf hefur veriö
stjarna og leikiö sér meö bolta . . . "
Steingrimur fyllti litla salinn i Stapa.
ATVINNA
Síldarfrysting
Okkur vantar konur í síldarfrystingu. Mikil
vinna framundan.
BRYNJÓLFUR HF., Njarðvík
Sími 1264 og hjá verkstjóra heima
í síma 2746.
Frá ÞEL-hárhúsi
Komið og reynið hina vinsælu
REGNBOGALITUN
Einnig PERMANENT - NÆRINGAR-
KÚRAR og GLANSSKOL.
Höfum opið:
mánudaga-föstudaga frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 10 og eitthvað fram
eftir.
Verið velkomin og reynið þjónustuna.
ÞEL-hárhús
Tjarnargötu 7 - Keflavík - Sími 3990
Óskum eftir
að taka á leigu 2ja herb. íbúð fyrir starfs-
mann okkar.
SKIPASMÍÐASTÖÐ NJARÐVÍKUR HF.
Grófin 7 - 230 Keflavik
• Bifreiðaverkstæði
• Vélastillingar
• Hjólastillingar
• Bremsuborðaálimingar
• Rennum bremsuskálar, ventla og sæti
• Púströraviögerðir
• Allar almennar viðgerðir
Bílasala Brynleifs
Vatnsnesvegi 29a - Keflavik - Slml 1081
Mikið af bifreiðum á skrá,
t.d. árgerðir '82 og '83.
Komið og kynnið ykkur úrvalið á skránni
og á sýningarsvæðinu.
Opið alla virka daga frá kl. 9 - 19.
Laugardaga frá kl. 10 - 16.
BÍLASALA BRYNLEIFS