Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.03.1984, Page 1

Víkurfréttir - 01.03.1984, Page 1
Nýju flugskýlin á Keflavíkurflugvelli: Eitt skýli á við 20 meðal íbúðarhús ÍAV með félagsheimili, kirkju- byggingu o.fl. verk fyrir Varnarliðið Á Keflavíkurflugvelli standa nú yfir byggingar á 9 flugskýlum fyrir Varnarlið- ið og eru íslenskir Aðalverk- takar sf. byggingaaðili. Er hér um mjög rammgerðar byggingar að ræða sem áætlað er að Ijúka steypu- vinnu við í sumar, en þær eiga að afhendast seinni hluta næsta vetrar. Hvert skýli er að flatar- máli um 1000 fermetrar. Er veggjaþykktin rúmur 1 metri og fara því um 2000 rúmmetrar af steypu í hvert skýli og 180tonn af steypu- styrktarjárni. Er því áætlað að járn og steypa sem fer í eitt flugskýli myndi nægja til byggingar á 20 meðal íbúðarhúsum, enda fór svo að reist var sér steypustöð fyrir þetta verk. Fyrir utan þetta eru mjög þykkar stálhurðir á hverju skýli. Eru þær 40 tonn að þyngd hver hurð og eru þær trúlega stærstu og þyngstu hurðir sem til eru hér á landi sem einn hurðarfleki. Voru þær smíðaöar í Noregi og munu eiga að leggjast á gólfið, þannig að flugvélin Frá byggingavinnu við flugskýlin rammbyggðu. Aðalfundur Stakks: Kaupa nýtt húsnæði undir björgunarstöð Eina björgunarsveitin utan landssamtaka Sl. fimmtudag var haldinn í húsi Verslunarmannafé- lags Suðurnesja 16. aðal- fundur Björgunarsveitar- innar Stakks. Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf voru rædd ýmis merk mál, s.s. endurnýjun á húsakosti sveitarinnar, en lengi hefur staðið til að skipta um hús- næði. Var samþykkt áfundinum að kaupa hlut í húsi Raf- Framh. á 11. siðu í þessu húsi verður hin nýja björgunarstöð Stakks, sem verður helmingi stærri en núverandi aðstaða á Bergi. aki yfir huröina þegar hún fer út úr skýlinu, en áætlað er að hvert skýli geymi aðeins eina flugvél. Verða vélarnar settar í gang innan dyra og þvi einnig byggður mjög öflugur loftræstibún- aður við enda skýlanna. Fyrir utan þessar bygg- ingar eru (slenskir Aðal- verktakar með fleiri fram- kvæmdir fyrir Varnarliðið, s.s. við Helguvík, sem áður hefur verið sagt frá. Einnig munu þeir leggja olíu- leiðslu frá Helguvík og upp á flugvöll. Þá eru þó nokkr- ar malbikunarframkvæmdir áætlaðar í sumar, t.d. verð- ur lagt nýtt slitlag á norður- Séð inn i eitt flugskýlið af 9. 40 tonna hurö i baksýn. suður flugbrautina og hluta á öðrum brautum, auk nýs slitlags á flugvélastæðin við núverandi flugstöð. ÍAV eru að byggja nýtt fé- lagsheimili, sem verður af- hent í næsta mánuði, og kirkjubyggingu sem rúma á 5 trúarfélög og verður af- hent í nóvember. Þá eru framundan viðbyggingar við tvö vélaverkstæöi og endurbyggingar við íbúðar- hús, og langt er komin bygging á tölvustöð o.fl. Þrátt fyrir allar þessar framkvæmdir þá eru þær, að sögn Gunnars Gunnars- sonar framkvæmdastjóra, þess eðlis að ekki veröur um aukningu á starfskrafti að ræða hjá fyrirtækinu á næstunni. Stafar það af því að menn eru færðir milli verka eftir þörfum. Þar sem verkin eru dreifð um stórt svæði er sér bygg- ingarstjóri með hverju svæði, og eru t.d. þeir Egill Jónsson með flugskýlin og Jón Halldórsson með fé- lagsheimilið og kirkjubygg- inguna. Yfireftirlitsmaðurer Þorkell Jónsson. epj./pket. Stal úr 15-20 bílum í Vogum Fyrir rúmri viku komst upp um 13 ára gamlan dreng inni í Vogum, sem hafði stolið ýmsu lauslegu úr 15-20 bílum. Voru bil- arnir ólæstir og þurfti hann því hvergi aö brjótast inn. Tók hann allt lauslegt, s.s peninga o.fi., en mest af fengnum hefur nú komist til skila. - epj. 50.000 bollur framleiddar hjá Ragnarsbakaríi Bolludagur nálgast. Sá dagur skapar alltaf sérstaka stemmningu meðal ungra sem aldinna. Sem fyrr munu bakaríin á Suðurnesjum framleiða bollur í massavís, sem síð- an renna Ijúft í maga fólks. Að sögn Ragnars Eðv- aldssonar í Ragnarsbakaríi, verða framleidar nú um 50 þúsund bollur og í slíkan fjölda þarf á milli 400-500 lítra af rjóma. Meðfylgjandi mynd var tekin i Ragnarsbakaríi i vik- unni þegar bakarar voru aö prófa framleiösluna, en fyrstu rjómabollurnar koma á markað á morgun. - pket.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.