Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 3
VÍKUR-fréttir Föstudagur 1. júní 1984 3 Tollvörugeymsla Suðurnesja Góð afkoma T ollvoru- __ geymslu Suðurnesja 17. mai sl. hélt Tollvöru- geymsla Suðurnesja aðal- fund sinn i Keflavík. Kom fram á fundinum að rekstr- arafkoma ársins 1983 hafi verið all góð og hafa við- skipti farið vaxandi. Stjórn fyrirtækisins var öll endurkjörin, en hana skipa: Jón H. Jónsson, for- maður, Gunnar Sveinsson, Huxley Ólafsson, ísleifur Sigurðsson og Jakob Árna- son meðstjórnendur. Fram kom að Tollvöru- geymslan gæti enn um sinn bætt við sig viðskiptamönn- um m.a. vegna viðbótar- húsnæðis, sem fyrirtækinu ^ stendur nú til boða. Við- skiptamenn Tollvöru- geymslunnar eru af Suður- nesjum, svo og margir frá Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Nýlega hefur Tollgæslan í Keflavík flutt starfsemi sína í húsakynni Tollvöru- geymslunnar, sem er til mikils hagræðis fyrir við- skiptamenn fyrirtækisins. epj. Vatn á myllu andstæð- inga Fjölbrautaskólans Erfundargerð Fjölbrauta- skóla Suðurnesja var tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar Keflavikur 15. maí sl., ósk- aði Jóhann Geirdal bókað: ,,Ég lýsi undrun minni á þeirri fullyrðingu skóla- meistara F.S. sem fram kemur í 7. lið 85. fundar skólanefndar F.S. Sérstak- lega þeim þættisemsnýrað bættri kennslu í stærð- fræðigreiningu og „sumum raungreinum". Eðlilegra hefði verið af skólameistara að tilgreina hvaða greinar hér er um að ræða. Jafn- framt er vandséð hvernig hægt er að byggja slíka full- yrðingu á þeim óljósu upplýsingum sem fram koma í umræddri könnun". Könnun sú sem bókun Jóhanns fjallar um, vargerð á vegum raunvísindadeild- ar Háskóla (slandsáframmi stöðu fyrsta árs nema frá öllum framhaldsskólum sem brautskrá stúdenta. Þar kemur fram að nemend- ur FS hafa yfirleitt staðið sig illa í fyrrnefndum greinum, öfugt við það sem gerst hefur i öðru háskólanámi þar sem nemendur FS hafa spreytt sig. Skóla- meistari kvað því brýnaþörf á að bæta kennslu í stærð- fræðigreiningu og sumum raungreinum. í lok bókunar Jóhanns segir: „Vegna þessa undarlega samanburðar á framhalds- skólum sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, þar sem FS og aðrir fjöl- brautaskólar hafa verið gagnrýndir á mjög hæpn- um forsendum, er hætt við að bókun skólameistara verði vatn á myllu andstæð- inga skólans". - pket. Bæjarsjóðsgjöld: Um 80% innheimta hjá Keflavík og Njarðvík Innheimta bæjarsjóðs- gjalda í Keflavík og Njarð- Þjófagóss fannst Á fimmtudag í síðustu viku komu tveir strákar á lögreglustöðina í Keflavík og létu vita af þjófagóssi, sem þeir fundu undir netum bak við hús Netaverkstæðis Suðurnesja í Njarðvík. Var hér á ferðinni nokkuð af bílaútvörpum og segul- bandstækjum. r epj. vík gekk mun betur í fyrra en árið áður. Árið 1983 var prósenta innheimtra bæjarsjóðs- gjalda í Keflavík 80.6%, sem er hæsta hlutfall síðan 1980, þá 82.2%. I Njarðvik var pró- senta innheimtra gjalda 78.9%, sem er besta útkoma í mörg ár, en árið áður var innheimtan 66.8%, þannig að hér er um töluverða aukningu að ræða. Innheimta gjalda á Kefla- víkurflugvelli var mjög góö, eða 98%. - pket. \óéin Föstudagur 1. júní: Hljómsveit Stefáns P. leikur frá kl. 22 - 03. LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ: DISKÓTEK frá kl. 22 - 03. Himmi og Elli spila öll nýjustu danslögin, og auðvitað þau gömlu með. Snakkbar og sæla á neðri hæð. - Snyrtilegur klæðnaður. r Eignamiðlun Suðurnesja Hafnargötu 57 - Keflavík - Simi 1700, 3868 Álsvellir 8, Keflavik: Gott Viðlagasjóðshús, stærri gerðin. 1.900.000. KEFLAVÍK: Sérlega glæsileg, nýleg 2ja herb. íbúð við Heiðarhvamm, Ijósar innrétt- ingar, allt sérsmíðað. 1.200.000. Góö 3ja herb. risíbúð við Hátún. 920.000. 3-4ra herb. íbúð við Hringbraut. 1.050.000. Góð 3ja herb. íbúö við Vatnsnesveg. Lítil útborgun. 1.250.000. Góð 4ra herb. 100 ferm. íbúð við Hringbraut, Iaus fljótlega. 1.500.000. 110 ferm. 4ra herb. ibúð við Háteig. 1.650.000. Góð nýleg 3ja herb. íbúð við Heiðar- ból, að mestu fullgerð. 1.350.000. Falleg 140 ferm. íbúð við Njarðar- götu, hugguleg sameign. 1.650.000. 4ra herb. íbúð við Miðtún, ásamt bíl- skúr. 1.350.000. NJARÐVÍK: Góð 2ja herb. íbúð í fjórbýli við Holts- götu. 1.100.000. Nýleg 3-4ra herb. íbúð við Fífumóa, sér inngangur. 1.350.000. Nýleg 3ja herb. íbúð við Fífumóa, parket á gólfum. 1.250.000. Góð 130 ferm. íbúð við Fífumóa, á- samt 30 ferm. bílskúr. 1.950.000. SANDGERÐI: Glæsilegt nýtt 152 ferm. einbýlishús við Norðurtún, ásamt 52 ferm. bíl- skúr, að mestu fullgert. 2.950.000. 3ja herb. raðhús við Ásabraut. 1.150.000-1.200.000. Gott 127 ferm. einbýlishús við Vallar- götu. 2.400.000. 186 ferm. einbýli á3 hæðum viö Upp- salaveg, mikið endurbyggt. 2.500.000. 125 ferm. efri hæð við Vikurbraut. 1.200.000. Gott 3ja herb. raðhús við Ásabraut. Skipti á ibúð í Keflavík möguleg. 1.400.000. GARÐUR: 137 ferm. nýlegt einbýlishús við Ein- holt. Skipti á minni eign í Keflavík eða Njarðvík möguleg. 1.800.000. Mjög gott nýlegt einbýlishús við Lyngbraut, ásamt tvöföldum bílskúr. 1.980.000. Glæsilegt 140 ferm. einbýlishús við Hraunholt, ásamt tvöföldum bílskúr. Arin o.fl. 2.950.000. Eignamiðlun Suðurnesja Fasteignaviöskipti: Hannes Arnar Ragnarsson Sölustjóri: Sigurður Vignir Ragnarsson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.