Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 1. júní 1984
7
Viltu læra að fljúga?
Flugfélagið Suðurflug með kynningarfund
um flug og flugnám, á Víkinni á mánudag
Flugfélagið Suðurflug á
KeflavíkurfIugvelli efnir til
kynningarfundar um flug
og flugnám, á Víkinni n.k.
mánudag 4. júní og hefst kl.
20.30.
Á fundinum verða sýndar
slides-myndir af undirbún-
ingi flugs og er enginn ann-
ar en Ragnar Eðvaldsson í
aðalhlutverki, en hann er
einn af mörgum áhuga-
mönnum um flug hér á
Suðurnesjum. Á fundinum
verður einnig sýnd kvik-
mynd um flug. Síðast en
ekki síst fá allir sem á fund-
inn koma ókeypis reynslu-
flug.
Flugfélagið Suðurflug var
stofnað árið 1972 og verður
12 ára í sumar, en félagið á
nú 2 vélar, eina kennsluvél
og eina 4ra sæta farþega-
vél.
Eru allir þeir sem áhuga
hafa á flugi og vilja kynnast
því, hvattir til að mæta á
fundinum. - pket.
Blóma-
markaður í
Njarðvík
Laugardaginn 2. júní kl.
14 verður haldinn blóma-
markaður Systrafélags Ytri-
Njarðvíkurkirkju. Á boð-
stólum verða sumarblóm,
fjölær blóm, kvistir og kál-
plöntur.
Einnig verða margar
gerðir af blómakerjum og
heitt kaffi á könnunni. Allur
ágóði rennur til kirkjunnar.
Undirtektir Suðurnesja-
manna hafa verið frábærar
og eru þeir hvattir til að
koma.
Systrafélag
Ytri-Njarðvíkurkirkju
Næsta biað
kemur út
7. júní
Allar nánari upplýsingar og teikningar liggja
frammi á skrifstofunni.
FASTEIGNASALAN
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420
Til sölu rúmgóðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í
þessu glæsilega 2ja hæða fjölbýlishúsi, að
Brekkustíg 29, Njarðvík. íbúðunum verðurskilað
tilbúnum undirtréverk, öll sameign þ.e. stigahús
og kjallari teppalögð og fullfrágengin. Húsið
verður málað utan, ræktuð og girt lóð og mal-
bikuð bílastæði. Aðeins 6 íbúðir í stigagangi.
Þvottahús er í hverri íbúð og þurrkherbergi í
kjallara, ásamt sérgeymslum og leikherbergi
fyrir börn.
Verð íbúðanna er:
3ja herb. endaíbúð ca. 90 m2
3ja herb. miðíbúð ca. 90 m2 .
2ja herb. íbúðir ca. 70 m2 ...
1.090.000
1.060.000
950.000
Byggingaraðili: Hilmar Hafsteinsson.
... f » í !!Ut; Í'ÝXHÍ.. :..UCS*LAUSU t«r?IU«r IN6 *kv.
\{ ,
j ii - 1*1 : V' i... :. '!*!! t í f
NJARÐVÍK