Víkurfréttir - 01.06.1984, Page 12
12 Föstudagur 1. júní 1984
VÍKUR-fréttir
Keflavíkurprestakall
Sóknarprestur og starfsfólk Keflavíkur-
kirkju verður í sumarleyfi frá 15. júní til 17.
júlí n.k.
Séra Þorvaldur Karl Helgason, sóknar-
prestur í Njarðvík, annast þjónustu í Kefla-
vík þann tíma.
Ólafur Oddur Jónsson
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við
bætt við okkur enn einum sólarlampa af f
hinni vinsælu gerð MA International
með andlitsperum.
Komið og njótið sólar í nýjum sérklefum
með góðri aðstöðu.
Frábærar perur - Pottþéttur árangur.
Opið sem hér segir:
Mánudaga - föstudaga kl. 7-23
Laugardaga og sunnudaga kl. 13 - 20.
SJÁUMST!
NUÞARF
AÐHUGAAD
SUMARDEKKJUNUM
Breidari dekk Venjuleg breidd
betri spyrna flestra val
SÓLUD RADÍAL SUMARDEKK
AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM
Hver myndi ekki kaupa ný dekk meö 50% afslætti-
það er nákvæmlega jafn skynsamlegt að kaupa sóluð
Radialdekk.
Láttu sjá þig — spáðu i verðið.
Brekkustig 37 - Njarðvík - Simi 1399
GARÐVANGUR:
Bráðabirgða hjúkrunardeild
opnuð fyrir langlegusjúklinga
Eins og kemur fram á for-
síðu, var sl. föstudag form-
lega tekin j notkun ný við-
bygging við Garðvang, sem
er 520 m2 að stærð og er við-
bót við 560 m2 eldra hús-
næði sem tekið var í notk-
un árið 1976.
Viðbyggingin var upphaf-
lega ætluð fyrir vistfólk er
væri betur statt heilsufars-
lega, en vegna brýnnar
þarfar fyrir sjúka aldraða
var sótt um heimild til rekst-
urs hjúkrunardeildar og þá
til bráðabirgða, þar til 3.
áfangi Sjúkrahúss Kefla-
víkurlæknishéraðs væri ris-
inn.
Byggingin hófst síðla árs
1981 eftir teikningu Rögn-
valdar Johnsen arkitekts.
Húsabygging hf. átti lægsta
tilboð í bygginguna á fok-
helt stig. Það fyrirtæki hefir
einnig annast allt tréverk í
húsinu. Múrverk fram-
kvæmdu Halldór Bárðar-
son, Oliver Bárðarson og
Hafsteinn Sigurvinsson.
Rafmagnslögn Raflagna-
vinnustofa Sigurðar Ingv-
arssonar. Málning: Ólafur&
Þór hf. Teppalögn: Drop-
inn. Gluggatjöld: Verslunin
Femina. Pípulagnir: Jón Ás-
mundsson. Jarðvinna og
lóðarfrágangur: Tryggvi
Einarsson.
Dvalarheimili aldraðra,
Suðurnesjum, er sameign-
arstofnun sex sveitarfélaga
á Suðurnesjum, þ.e. Kefla-
víkur, Njarðvíkur, Sand-
gerðis, Garðs, Voga og
Hafna. Stofnunin rekur
Dvalarheimilið Hlévang í
Keflavík með 16 vistmenn,
og Garðvang í Garði með 29
vistmenn.
Samkvæmt heimild fyrir
rekstri í hinni nýju bygg-
ingu er áætlað að þar sé
rúm fyrir 20 manns. Alls
verða þá á Garðvangi 43
vistmenn.
Forstöðukona á Garð-
vangi er Sólveig Óskars-
dóttir, en á Hlévangi Jóna
Hjálmtýsdóttir.
Fulltrúi stjórnar við bygg-
ingarframkvæmdir var
Finnbogi Björnsson.
Stjórn Dvalarheimilis
aldraðra, Suðurnesjum,
skipa:
Páll Axelsson, formaður,
Jón Ólafsson, Garði; Sig-
urður Bjarnason, Sand-
gerði; Ingólfur Bárðarson,
Njarðvík; Leifur A. ísaks-
son, Vogum; Unnur Magn-
úsdóttir, Höfnum.
epj./pket.
Hér má sjá Guójón Klemenz-
son fyrrv. lækni (t.v.) og Kristin
Árnason frá Gerðum.
Matthias Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, og
Salome Þorkelsdóttir, þingmaður, ræðast við á Garðvangi.
Tómas Tómasson, Jón Isleifsson, Finnbogi Björnsson og
Jóhann Ágúst Sigurðsson, héraðslæknir.
Tveir af framámönnum Gerðahrepps fyrr og nú, Ellert Ei-
riksson núverandi sveitarstjóri (t.v.) og Björn Finnboga-
son, fyrrverandi oddviti.
Okkar sérgrein
Nú bjóðum við upp á
nýjar mjög öflugar vélar
sem við leigjum út.
Þú getur hreinsað tepp-
in, sófasettið, bílinn o.fl.
Eftir sem áður
hreinsum við teppin
með okkar rómaða
árangri.
er - teppin þín
TEPPAHREINSUN SUÐURNESJA
SÍMI 3952