Víkurfréttir - 01.06.1984, Síða 17
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 1. júní 1984 17
EIGUM MIKIÐ
ÚRVAL AF
FÓTBOLTASKÓM
FRÁ ADIDAS,
PUMA OG NIKE.
Topp malarskór
Verð 1.660. -
ADIDAS
KARL HEINS
FÖRSTER
Verð 1.275. -
EIGUM EINNIG
MIKIÐ ÚRVAL
AF
FÓTBOLTUM
8 GERÐIR
Verð frá kr. 490. -
(SjÆl/dviÁ
0 Sími 2006 ^
Hringbraut 92 - Keflavík
Opna Dunlopmótið í golfi
fór fram um síðustu helgi á
Hólmsvelli í Leiru. Magnús
Jónsson GS sigraði, og það
3. árið í röð, eftir jafna
keppni. Greinilegt er að
Magnús er í góðri æfingu
um þessar mundir eftir '/2
árs dvöl í Bandaríkjunum í
vetur og kemur því betur
undirbúinn til leiks, en aðrir
sem lítið sem ekkert hafa
getað æft í vetur og vor
vegna veðurs. Engu að síð-
ur frábært afrek hjá Magga
að vinna keppnina Í3. sinn á
jafnmörgum árum. Það bar
helst til tíðinda, að ung
stúlka sigraði í keppninni
með forgjöf, en auk hennar
keppti aðeins ein önnur
stúlka í keppninni, en 68
karlmenn.
Verðlaunahafar i Dunlop-open ásamt fulltrúum GS og Árna Þór Árnasyni, forstjóra
Austurbakka hf.
Dunlop-open golfmótið í Leiru:
Ameríkufarinn sigrar enn
Án forgjafar:
Úrslit urður annars þessi:
högg
1. Magnús Jónsson .... 149
2. Sigurður Pétursson .. 154
3. Sigurður Sigurðsson 155
4. Páll Ketilsson ...... 156
5. Gylfi Kristinsson .... 157
6. Hallur Þórmundsson 158
Með forgjöf:
nettó
141
143
143
1. Kristín Pétursd. GK ..
2. Magnús Jónssson GS
3. Guðm. Bragason GG
Nokkur aukaverðlaun
voru veitt. Sigurður Sig-
urðsson hreinlega stal
Whisky-flöskunni frá und-
irrituðum, sem veitt varfyrir
að vera næstur holu á Berg-
vík, en Siggi „litli" sló næst
síðastur allra keppenda á
holunni frægu og negldi
upp að stöng og gerði vonir
pkets að engu um whiskýið
sem allir vildu fá. Sigurður
var rúmlega 1 metra frá
holu.
Mesta framför frá fyrri
degi hlaut Guðmundur Sig-
urjónsson, en hann bætti
sig um 18 högg, sem jafn-
gildir einu höggi á holu.
Guðmundur fékk að laun-
um 1 dúsín af golf boltum og
sama hlaut Peter Salmon
fyrir lengsta teighögg á 18
holu seinni dag.
Verðlaunin sem voru
mjög vegleg, voru gefin af
Austurbakka hf., sem er
umboðsaðili fyrir Dunlop-
golfvörurnar. .- pket.
Innbrot, ölvun
og árekstrar
Á miðvikudag í síðustu
viku fékk lögreglan tilkynn-
ingu um skemmdarverk
sem framin höfðu verið í
Hraðfrystihúsinu Jökli í
Keflavík. Voru rúður brotn-
ar, vigtar og stimpilklukkur
skemmdar o.fl. Er ekki vitað
hvenær verknaðurinn var
framinn, en málið er í rann-
sókn.
Þá var brotist inn í umboð
Skeljungs við Hafnargötu í
Keflavík á fimmtudeginum
og ýmsu smádóti stolið.
Steypuhrærivél var stolið
bak við hús á Vesturgöt-
unni á föstudagsnóttina, en
hún fannst síðar um helg-
ina. Eru málin öll í rann-
sókn.
Frá því á þriðjudag urðu 9
árekstrar í umdæmi lög-
reglunnar og er sagt nánar
frá þeim harðasta annars
staðar í blaðinu. Og um sl.
helgi voru 4 ökumenn tekn-
ir grunaðir um ölvun við
akstur. - epj.
Dattaf hestbaki
og rotaðist
Sl. föstudagskvöld féll
ungur knapi af hestbaki út
við Mánagrund og rotaðist.
Var hann fluttur á Sjúkra-
húsið í Keflavík og lagður
þar inn með heilahristing.
epj.
Aðal-
fundur
Litla leikfélagsins í Garði verður haldinn
þriðjudag 5. júní kl. 20.30 í Samkomuhús-
inu Garði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, fjölmennið. Nýir félagar velkomn-
ir. Mætið stundvíslega.
Litla leikfélagið
Skipaafgreiðsla
Suðurnesja
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Skipaafgreiðslu Suðurnesja
fyrir árið 1983 verður haldinn á Glóðinni í
Keflavík, þriðjudaginn 5. júní 1984 kl. 15.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hlutaðeigendur eru hvattir til að mæta eða
senda fulltrúa í sinn stað á fundinn.
Stjórnin
LITTU A BARINN
OG VELDU ÞÉR LIT
Nú höfium víð tekíð I notkun lakk-bar fyrír Síkkens
lakkíð okkar. Á bamum getur þú fengíð
lakkblönduna alveg eftír þínní
ósk, auk þess spasl grunn og
annað sem tíl þarf. - Á bamum
skálum víð fyrír lágu verðí
á góðrí vöru. Símí 1227