Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.06.1984, Page 19

Víkurfréttir - 01.06.1984, Page 19
VÍKUR-fréttir Föstudagur 1. júní 1984 19 (J^VISKA /"(1» ioiva gengur, en gerum þeim mun minna af þeim þegar illa gengur. Tökum sem dæmi leikinn sem var á móti KA frá Akur- ÁFRAM, KEFLAVÍK Nú þegarknattspyrnuver- tíðin er að byrja fyrir alvöru, er ekki úr vegi að velta því aðeins fyrir sér hvernig muni nú ganga hjá strák- unum okkar í fyrstu deild- inni. Skyldu þeir nú hrista af sér slenið eða verða þeir enn á ný í fallbaráttunni, við skulum vona ekki. Ekki ætla ég að fara að skrifa um einstaka leik- menn eða þjálfarann, það geta íþróttafréttaritarar séð um (það er fleira fótbolti en Ásgeir). Það var annað sem ég ætlaði að minnast á og það er í fyrsta lagi knatt- spyrnuvöllur bæjarins, það er jú gula svæðið þarna við Hringbrautina, það er greinilegt að hann verður að taka alvarlega í gegn fyrir næsta sumar. Það virð- ist aldrei neitt stórátak gert í íþróttamálum, nema liðin hampi meistaratitlum, þáer rokið upp til handa og fóta og hlutirnir gerðir, til að standa við loforðin sem lof- að var i síðustu veislu sem haldin var meisturunum. Ekki ætla ég að fara að rita um veisluhöld hér í bæ, en þarna er nefnilega mergur- inn málsins, þó bæjarstjórn- ir hafi hér alltaf verið hlið- hollar íþróttum (þá sér í lagi knattspyrnunni). Hvernig er það með okk- ur, þennan undarlega lýð, sem fer og horfir á leikina hjá okkar mönnum, hvað gerum við sjálf? Hvað er langt síðan við höfum hróp- að öll í kór „Áfram, Kefla- vík“? Ætli það sé ekki nokk- uð langt síðan, og hvað skeður þegar einhver opn- ar munninn og ætlar að hvetja strákana úti á velli? Þú ert annað hvort álitinn eitthvað skrítinn eða oftar fullur. Það dettur nefnilega engum í hug að hvetja liðið sem er að reyna að gera sitt besta úti á vellinum. Það er frekar að menn kalli einhver ónot til leikmanna, um hvort viðkomandi ætti ekki frekar að vera heima og spila matador eða eitthvað í þeim dúr. Dómararnir fá líka sitt, þó svo að dómarar í leikjum geri miklu færri vitleysuren leikmenn, svona yfirleitt. Síðan tölum við um það oft, að þetta sé síðasti leikurinn sem við förum á, því liðið sé svo lélegt að það taki því ekki að vera að borga sig inn fyrir svona lagað (ég er ekki að tala um þá sem tíma ekki að borga sig inn og standa fyrir utan efra hliðið og horfa á leikinn). Nei, við gleymum því oft að það sem strákunum vantar kannski er að áhorf- endur styðji við bakið á þeim og hvetji þá til dáða, því þú veist að hvatningar- hróp er áhrifameira en orð fá lýst. Við erum ekki spör á hvatningarnar þegar vel eyri. Það lá við að meira heyrðist í þessum eina Ak- ureyring sem vará leiknum, heldur en í öllum þeim ara- grúa af Keflvikingum sem stóðu í kuldanum, og höfðu ekki rænu á því að halda á sér hita með hvatningar- hrópum. Hvað skeður svo eftir leikinn? Jú, leikmenn hafa ábyggilega fengið að heyra að þeir hafi verið.lé- legir, en vorum við bara nokkuð betri? Hvaða eink- unn fengum við, ætli það hafi ekki verið núll? Svo þegar þeir vinna „Skagann" uppi á Akranesi, þá er ann- að hljóð í strokknum, þá er- um viðeinsog montnir han- ar og segjum hverjum sem heyra vill að okkar strákar hafi unnið. Nei, við verðum að breyta þessu og láta í okkur heyra á vellinum. Það er Áfram, Keflavík! Við skulum koma íslandsbikarnum til Kefla- víkur í ár. Hjálpum okkar mönnum til þess, þeir geta það með okkar hjálp. Áhorfandi aldrei hikar, öskrar af hverja flík. Ólmur þráir íslandsbikar upp á hillu í Keflavík. P.S. Maður hefur ekki heyrt það í dánarfregnum að Stuðningsmannaklúbb- ur (BK sé látinn, en týndur er hann. Hvað með fundar- laun? Hvaða umferðarmerki er þetta? Á horni Brekkustigs og Norðurgötu i Sandgerði er þetta umferðarmerki, sem virðist vera eitthvert sértilfelli fyrir Sandgerðinga. Að visu er þaö álit flestra vegfarenda að starfsmenn Miðneshrepps hafi hér verið að setja upp bið- skyldumerki, en óvart sett það rangt upp. Sé það rétt, ættu þeir hinir sömu að laga það hið snarasta. - epj. Sendum sjómönnum bestu hútíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Fiskverkunarstöð Jóhannesar Jóhannessonar Keflavík Sendum sjómönnum bestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Fiskverkunarstöð Axels Pálssonar hf Keflavík Sendum sjómönnum bestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins Baldur hf Keflavík Tilkynning til aldraðra Unglingavinnan í Keflavík veitir aðstoð við umhirðu lóða hjá þeim bæjarbúum, sem vegna aldurs eða fötl- unar geta ekki sinnt því sjálfir. Þessi þjónusta er ókeypis. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður unglinga- vinnunnar, Helgi Eiríksson, í síma 2730. Bæjarstjórinn í Keflavík

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.