Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 21
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 1. júní 1984 21
Föstudagur 1. júní:
19.35 Umhverfis jöröina á 80
dögum.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döflnni
20.55 Kapp er best meö forsjá
Endursýning. - Fræðslumynd
fyrir unga ökumenn, frá Um-
ferðarráði.
21.05 Heimur hafdjúpanna
Heimildamynd frá breska sjón-
varpinu, BBC, um einn fremsta
neðansjávarkvikmyndatöku-
mann í heimi, Al Giddings, og
störf hans í hafdjúpunum.
22.00 Við eins manns borð
(Seperate T ables) s/h. - Banda-
rlsk bíómynd frá 1958. - Aðal-
hlutverk: Burt Lancaster, Rita
Hayworth, David Niven og
Deborah Kerr. - Á gistihúsi í
Bournemouth á suðurströnd
Englands liggja saman leiðir
nokkurra einmana karla og
kvenna og gengur á ýmsu i
samskiptum þeirra og ástamál-
um.
23.35 Fréttir f dagskrárlok.
Laugardagur 2. júní:
16.30 (þróttir
18.30 Börnln við ána - (Swal-
lows ans Amazons). Nýr
flokkur. 1. Bleshænufélaglð.
Breskurframhaldsmyndaflokk-
ur í átta þáttum, gerður eftir
tveimur brnabókum eftir
Arthur Ransome um táp-
mikla krakka sem stunda
siglingar á ánum í Norfolk-
héraði og lenda í ýmsum
ævintýrum.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á taknmáli
20.00 Fréttlr og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 f bliðu og striðu
21.05 Föstudagur til fjár
(Perfect Friday). Bresk gaman-
mynd frá 1970. Aöalhlutverk:
Stanley Baker, Ursula Andress
og David Warnes. - Háttsettur
starfsmaður í banka finnur
snjalla leið til aö komast yfir
fjármuni bankans. Til þess
verður hann þó að fá í lið með
sér skötuhjú, sem eru jafn fé-
gráðug og hann sjálfur.
22.35 Ást og dauðl. (Love and
Death). Bandarísk gaman-
mynd frá 1975. Höfundur og
leikstjóri Woody Allen, sem
einnig fer með aðalhlutverk
ásamt Diane Keaton. - Woody
Allen beinir spjótum sínum að
rússneskum bókmenntum og
tíðaranda á 19. öld og bregður
sér í gervi seinheppins aðals-
manns í her Rússa sem á í
höggi við innrásarher Napo-
leons.
00.05 Dagskrárlok
Sunnudagur 3. júní:
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Teiknlmyndasögur
1. Dúfan, lirfan og kötturinn
Finnskur myndaflokkur í
fjórum þáttum.
18.25 Nasarnir
18.35 Börnln á Senju
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrlp á táknmáii
20.00 Fréttlr og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku
20.50 ..Stolt sigllr fleyið mitt.. “
Ný kvikmynd eftir Heiðar Mar-
teinsson um störf íslenskra
togarasjómanna í blíðu og
stríðu.
21.40 Sögur frá Suður-Afriku
Nýr f lokkur -1. Lítill skiki lands.
Myndaflokkur frá Suöur-Afríku
í sjö sjálfstæðum þáttum, sem
gerðir eru eftir smásögum
skáldkonunnar Nadine Gord-
imer. Fyrsti þáttur hefst með
viötali við höfundinn sem hefur
látið kynþáttamisrétti í Suöur-
Afríku til sín taka eins og sög-
urnar bera vott um.
22.45 Dagskrárlok
Ný teiknistofa opnuð
í Keflavík
Á 3. hæð hússins Hafnar-
götu 32 í Keflavík hefur
nýlega verið opnuð ný
teiknistofa undir nafninu
Artik. Er þetta fyrsta teikni-
stofan sem opnuð er hér
Steinar Geirdal að störfum hjá Teiknistofunni Artik.
HITAVEITAN
Framh. af baksíðu
magn sem það hefur beðið
um.
í mælingum Hitaveitunn-
ar á hemlum og grindum á
Suðurnesjum í vetur kom
fram, að sumir hafa fengið
of lítið magn og aðrir síðan
of mikið. Þeir sem fengið
RAINBOW HOPE
Framh. af 1. síðu
manna til Reykjavíkur til út-
skipunar. Á þessum tíma sá
Morgunblaðið aldrei
ástæðu til að tala um tap á
hafnargjöldum til Lands-
hafnarinnar hér eða annað
tap þessu samfara. Nú hins
vegar, þegar Reykjavíkur-
höfn tapar einhverjum
hafnargjöldum, sem er þó
mun minna hlutfall í heild-
artekjum hennar heldur en
þegar Landshöfn Keflavík/
Njarðvík átti hlut að máli, er
eins og um eitthvert ofsa-
legt áfall sé að ræða varð-
andi tap höfuðborgarinnar.
Sýnir þetta enn og sannar
að Morgunblaðiðerfyrstog
fremst málgagn Reykjavík-
ur og annað ekki. Ættu Suð-
urnesjamenn að hafa það í
huga. - epj.
Til fyrirmyndar
Bílstjórar frá Steindóri
höfðu samband við blaðið
og vildu koma á framfæri að
nemendur úr9. bekk Holta-
skóla, sem fóru í skóla-
ferðalag til Akureyrar og
fleiri staða, hafi verið til fyr-
irmyndar hvað varðar hegð-
un og framkomu á meðan á
ferðalaginu stóð.
Var komið við á Mývatni
og Dimmuborgum og svo á
Akureyri. Þau voru sér og
skóla sínum til mikillar
fyrirmyndar, sögðu bílstjór-
arnir. - pket.
Hárþurrka
Óska eftir notaðri hár-
þurrku. Upplýsingar í
síma 3707.
syðra af manni búsettum á
staðnum, en eigandi
hennar er Steinar Geirdal.
Eins og áður hefur komið
fram er hann nú í ársleyfi frá
störfum sem byggingafull-
trúi Keflavíkurbæjar. Tekur
hann að sér húsateikningar
og breytingar og lagfæring-
ar á eldri húsum.
Hefur Steinar dágóða
reynslu í þessum málum,
því auk þess að hafa starfað
sem byggingafulltrúi frá 1.
nóv. 1972, hefur hann séð
um teikningar bæði fyrir
Keflavíkurbæ, fyrirtæki og
fjölda einstaklinga. Má þar
nefna dvalarheimili aldr-
aöra við Suðurgötu í Kefla-
vík, ýmis raðhús og parhús.
Varðandi skipulagsmál hef-
ur hann komiö við, t.d. varð-
andi iðngarðana í Grófinni,
en þar sá hann einnig um
teiknivinnuna, og svona
mætti lengi telja. - epj.
hafa of lítið fá endurgreitt
2 mánuði aftur í tímann eins
og fyrr segir, en hvað er gert
ef fólk hefur fengið of mikið
magn?
„Það hefur ekkert verið
gert ennþá, en líklega verð-
ur þeim sent bréf fljótlega,
sem við vitum að hafa
fengið of mikið, en það geta
auðvitað verið fleiri án þéss
að við vitum um það. Það
fannst töluvert af skrúfjárn-
um og nöglum í hemlum en
hugsanlegt er að sumum
hafi tekist þetta án þess að
nokkuð hafi séð á hemlum.
En það þurfti að endurnýja
nokkur hundruð hemla sem
voru ónýtir bæði vegna elli,
og af stórum hlutaaf manna
völdum. Þar kom kostnað-
ur upp á milljónir, sem ekki
hafði verið gert ráð fyrir",
sagði Júlíus Jónsson.
Til fróðleiks skal bent á
það, að sá kostnaðarauki
við þessar lagfæringar á
hemlum lendir auðvitað á
okkur notendum. Eftir þvi
sem rekstur fyrirtækisins er
dýrari, því dýrari verður
þjónustan til okkar. Einfalt
mál. - pket.
LÝSIR VANÞÓKNUN ...
Framh. af 1. síöu
kom í Ijós að lítið sem ekk-
ert hafði verið gert og eng-
inn undirbúningsfundur
haldinn.
( framhaldi af þessu
ræddi nefndin um dugleysi
félaganna og síðan var gerð
eftirfarandi bókun:
„Þjóðhátíðarnefnd ítrek-
ar vanþóknun sína á fram-
ferði og vinnubrögðum
íþróttafélags Keflavíkur og
Knattspyrnufélags Kefla-
víkur vegna væntanlegra
17. júní hátíðarhalda, þar
sem þeir hvorki mættu á
boðaðan fund né hafa skil-
að inn umbeðnum ramma
að dagskrá.
Þar af leiðandi telur
nefndin sig knúna til að
veita félögum frest til
fimmtudagsins 24. mai, til
að ráða bót á sínum málum.
Ef af því verður ekki, áskilur
nefndin sér rétt til að leitatil
annarra félaga eða samtaka
til að sjá um hátíðarhöldin".
Undir þessa bókun skrif-
uðu nefndarmennirnir Gísli
Gunnarsson, Svanlaug
Jónsdóttir, Jóhannes Ell-
ertsson og Valur Margeirs-
son.
Á fundi nefndarinnar 24.
maí sl. lögðu fulltrúar félag-
anna loks fram ramma að
dagskrá hátíðarhaldanna.
epj.
Traktorsgrafa
Tek aö mér alla al-
menna gröfuvinnu.
Skúli S. Ásgeirsson
Háseylu 9, Njarðvík
Sími 6162, 3055
ORÐSENDING
frá verkalýðsfélög-
um á Suðurnesjum
Eins og undanfarin ár er vinna verkafólks óheimil
frá föstudagskvöldi til mánudagsmorguns, átíma-
bilinu 1. júní til 1. september.
Verkalýös- og sjómannafélag Keflavfkur
og nágrennls
Verkakvennafélag Keflavfkur og NJarövfkur
Verkalýös- og sjómannafélag Geröahrepps
Verkalýös- og sjómannafélag Miðneshrepps