Víkurfréttir - 27.09.1984, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 27. september 1984
VÍKUR-fréttir
Sjálfstæðisfólk á
Suðurnesjum
Almennur stjórnmálafundur veröur hald-
inn í KK-húsinu í Keflavík í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, og hefst kl. 20.30.
Frummælandi er Ólafur G. Einarsson, al-
þingismaöur.
Allt sjálfstæöisfólk velkomið.
Sjálfstæðisfélag Keflavikur
TAKIÐ EFTIR
Flytjum verslun okkar af Hafnargötu 37
þann 1. október, að Hafnargötu 6 (Ungó),
móts viö rútustöðina.
FULLT AF NÝJUM VÖRUM. - LÍTIÐ INN.
RÓSNÝ
Suðurnesjamenn
Vorum að fá undraefnið
SUN-LIFE
Nú geta allir notið sólar.
Söibadsstofan SÖLEY
Suöurgötu 16 - Sandgerði - Sími 92-7747
Sandgerðingar
Okkur vantar nú þegar fréttaritara í Sand
gerði. Nánari upplýsingar veita Páll Ketils
son eöa Emil Páll Jónsson í síma 1717.
mun
4'Uttfo
Ðæjarstjórn Keflavíkur:
Mótfallin opnun ölkrár
- að Hafnargötu 37
Á fundi í bæjarstjórn
Keflavíkur 4. sept. sl„ var
tekin fyrir fundargerð
áfengisvarnaráðs Keflavík-
ur frá deginum áður, þar
sem lagst er gegn opnun
ölkrár að Hafnargötu 37 i
Keflavík. Sagt var frá sam-
þykkt ráðsins í 33. tbl. Víkur-
frétta. Var samþykkt á bæj-
arstjórnarfundinum með 7
atkvæðum niðurstaða ráðs-
ins.
Ólafur Björnsson og
Hannes Einarsson sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna í
bæjarstjórn. - epj.
Myndasyrpa úr ferð NVSV
HEIMILD TIL VERK-
FALLSBOÐUNAR
Framh. af 1. síöu
Þessi tillaga var sam-
þykkt með 54 atkvæðum
gegn 28, en allmargir sátu
hjá við atkvæðagreiðslu
eða voru farnir.
Ketill Jónsson sagði í við-
tali við blaðið að sér hefði
fundist óþarfi að veita verk-
fallsheimild strax, enda þótt
verkfallsheimild væri ekki
það sama og verkfall. ,,(
þessu felst heldur ekkert
vantraust á stjórn eða trún-
aðarráð, við þurfum baraað
ræða við viðsemjendur
okkar fyrst og kanna hvort
ekki megi komast að sam-
komulagi með friðsemd",
sagði Ketill ennfremur.
Magnús Gíslason, for-
maður V.S., taldi að tillaga
Ketils hefði að verulegu
leyti byggst á misskilningi á
aðstæðum. ,,Við erum að
semja sjálf í fyrsta skipti um
launaliði samninga okkar
og mér finnst það veikja
stöðu okkar að hafa ekki
heimild til verkfallsboðunar
í handraðanum. En þettaer
vilji fólksins og það er gott
að hann kom fram. En ég er
hræddur um að þetta muni
einungis draga samninga á
langinn", sagði Magnús.
e.h.
Eingöngu
í björgum
I ferð NVSV um Vatns-
leysustrandarhrepp nýlega
kom fram m. a. að í björgum
Vogastapa verpti aðeins
Fýll, en skömmu fyrir sið-
ustu aldarmót hafi lítið ver-
Ljósm.: eg.
fýll verpir
Vogastapa
ið að Fýlum þar. Þá kom
það einnig fram að Lundar
sæust ekki lengur í Voga-
stapa, ástæðan fyrir því var
talin ofveiði.
eg-
NÚÁLJÓSMYNDUN...
Framh. af miöopnu
bók fyrir sjálfan mig svo
ég geti frætt mig meira
um tegundirnar. Það
eina sem háir mér er
plássleysi. En þaðervon
á bót í þeim efnum fljót-
lega, þá get ég haldið
áfram að kaupa inn, sem
ég hef gert reglulega
fram að þessu".
ÓTRÚLEGA
UMBURÐARLYND
Aö lokum, Grétar,
hvaö finnst eiginkon-
unni um öll áhugamálin?
„Hún hefur sýnt mér
ótrúlegt umburðarlyndi
og tekur þessu vel - oft-
ast nær. Það er verst
þegar ég gleymi mér úti
á golfvelli".
Hefur hún ekki ein-
hver áhugamál?
„Jú, hún er mikið í
matargerð - besti kokkur
í heimi. Svo er hún í
ýmsu fleiru, þannig að
þetta blessast allt sam-
an“, sagði Grétar Grét-
arsson að lokum. - pket.