Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.12.1984, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 20.12.1984, Qupperneq 16
16 Fimmtudagur 20. desember 1984 VÍKUR-fréttir Endur-endurfundir Sukkara Dansleikur verður haldinn á Glóðinni, fimmtudaginn 27. des. frá kl. 23 - 03. Miða- sala hjá Guðna s. 3776 og Gylfa s. 2135. SUKKARAR! - SJÁUMST SÆTIR, ÞAÐ KÆTIR. Undirbúningsnefndin Fjölbrautaskóli Suðurnesja Öldungadeild Eftirtaldir áfangar eru í boði á vorönn 1985: Bók 103 - 203 Dan 102 - 103 - 202 Efn 103 Ens 102 - 103 - 202 - 203 302 - 332 - 402 Fél 103 Fra 103 - 203 Grt 103 Hag 103 Hei 102 ísl 102 - 103 - 202 203 - 353 Mæl 102 Rús 103 Sag 103 - 202 Sál 103 Stæ 102 - 103 - 202 203 - 212 Töl 103 - 203 Vél 101 - 202 - 302 Þýs 103 - 203 - 502 Tilskilin er lágmarksþátttaka. Skráningu lýkurföstudaginn 21. desember 1984. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-16, sími 3100. Nemendur verða síðan boðaðir með aug- lýsingu á annarbyrjun. Skólameistari Eirikur Hermannsson, fulltrúi Vikur-lrétta, ásamt verðlaunahöfunum. F.v.: örn ÚlfarSæv- arsson, Jóhann Sv. Konráðsson og Jóhanna Helga Oddsdóttir. Jólaritgerðir Fyrirskömmu fóru Vikur-fréttir þess á leit við nem- endur 5. bekkjar i Myllubakkaskóla, að þeir settust niður og skrifuðu ritgerð. Ritgerðarefnið átti að tengjast jólunum á einhvern hátt, jólasaga eða end- urminning, sannleikur eða skáldskapur. Þrátt fyrir skamman fyrirvara bárust um 20 ritgerðir og af þeim völdum við þrjár til birtingar. Höfundunum þrem var siöan veitt bókagjöf i verðlaun, en hinum þökkum við fyrir þátttökuna. Fyrstu verðlaun hlaut Örn Úlfar Sævarsson fyrir Jólasögu, en aukaverðlaun þau Jó- hanna Helga Oddsdóttir og Jóhann Sv. Konráðsson. Við óskum þeim til hamingju og vonumst til að þetta megi vera þeim hvatning til frekari afreka á sviði skáldskapar. - ehe. 1. verðiaun: JÓLASAGA eftir Örn Úlfar Sævarsson Gunnar hét ellefu ára strákur, kallaður Gunni. Mamma hans hét Margrét, en pabbi hansSigurðurogvarsjó- maður. Einn morgun vaknaði Gunnar óvenju snemma til að kveðja pabba sinn sem var að fara út ásjó. Hann fórfram í eld- hús og fékk sér snúð og mjólk. Hann leit á eldhúsklukkuna. Hún var rúmlega hálf-átta, þegar mamma hans kom fram og spuröi: „Ætlar þú með pabba þínum í Grindavík?" ,,Já“, svaraði Gunni. ,,En þá Heilsugæslustöð Suðurnesja Keflavik - Sími 4000 Vaktir heilsugæslulækna yfir hátíðirnar Helgina 22.-23. des. Stefnir Guðnason Aðfangadag 24. des. Arnbjörn Ólafsson Jóladag 25. des. Jón A. Jóhannsson Annan jóladag 26. des. Hreggviður Hermannsson Fimmtudaginn 27. des. Jón A. Jóhannsson Föstudaginn 28. des. Óttar Guðmundsson Helgina 29.-30. des. Arnbjörn Ólafsson Gamlársdag 31. des. Stefnir Guðnason Nýársdagur 1. jan. Hreggviður Hermannsson verðurðu að flýta þér i fötin'.'. Gunni fór með pabba sínum og Jóa frænda. Jói frændi keyrði þá á rauða bilnum sínum vegna þess að Fiatinn þeirra var bilaður. Sigurður var stýri- maður á togara sem hét Hinrik. Hann kvaddi Gunna og Jóa og hélt upp i skipið. Gunni veifaði pabba sínum lengi. Þegarhann loks hætti sagöi Jói: „Komdu, Gunni, ég býð þér upp á is“. Svo liðu nokkrir dagar. Nú voru aðeins 3 dagar til jóla og Gunni var aö hlusta á kvöld- fréttir í útvarpinu. Þá kom til- kynning um að Hinrik KE og Gaukur VE ættu að láta vita um sig strax. Hann sagði mömmu sinni frá þessu. Hún sagði að það væri áreiöanlega allt í lagi. En svo reyndist ekki vera. Eftir tvo daga kom frétt sem var svohljóðandi: „Nú í dag bárust tveir björg- unarhringir að landi í Vest- mannaeyjum merktir Hinrik KE. Reynt var að ná sambandi við skipið en allar tilraunir mis- tókust. Hafin var leit sem hefur engan árangur borið, nema fundist hefur meira brak". Þessi fregn kom sem reiðar- slag yfir þau mæðginin. „Ætli pabbi sé dáinn?" hvísl- aði Gunni. „Við skulum bara vona það besta“, sagði mamma. Um kvöldið bað Gunni til Guös um að láta pabba sinn finnast fyrir jól, svo hann gæti verið með honum á aðfanga- dagskvöld. Aðfangadagur rann upp. Pabbi Gunna hafði enn ekki fundist. Þau kveiktu á útvarp- inu og hlustuðu á fréttirnar. Þá kom mikil gleðifrétt: „Allir skipverjar á Hinrik KE eru fundnir. Þeir fundust í björgunarbát suður af Vest- mannaeyjum". Þá var einnig sagt að þeir væru mjög vel haldnir, þrátt fyrir þriggja daga vosbúð og matarleysi. Klukkan hálf-sex kom pabbi heim. Hann faðm- aði þau bæði að sér. Siðan fór hann og skipti um föt og var til- búinn klukkan 10 mín. fyrirsex. Þá var allt tilbúið og þau settust við borðið og biðu. Loks sló klukkan sex, og þásagði Gunni hátt: „Gleðileg jól“. Honum fannst þetta bestu jól sem hann hafði lifað, því nú hafði hann endurheimt pabba sinn. Aukaverðlaun: GÓÐ JOL eftir Helgu Jóhönnu Oddsdóttur Það líður að jólum. María litla situr við gluggann og horfirútá sjó. Hún er að bíða eftir pabba sem er sjómaður á togara og ætlaði aö reyna að koma heim um jólin. Mamma er að baka i eldhúsinu og biöur Maríu að hlaupa út í búö og segir að hún geti spurst fyrir um togarann í leiðinni. María hleypur niður í búð. Þar hittir hún Jón sem á togarann og spyr hvenær hann komi. Hana langar mest til að fara að gráta þegar hann segir að togarinn komi kannski annan i jólum. Hún borgar afgreiðslustúlk- unni og hleypur heim. Þegar þangað kemur fer hún inn ield- hús og segir mömmu sinni hvað Jón hafi sagt. Mamma segir hugreystandi að þetta geta breyst. María gengur að glugganum og lítur út. Það ersnjókoma og byrjaö að dimma. Hún fer inn í herbergi að lesa. Allt i einu kallar mamma: „María, Maria". Hún hleypur fram að dyrunum og sér jólasvein með poka á bakinu. „Góöa kvöldið", segir hann.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.