Víkurfréttir - 27.06.1985, Qupperneq 14
VÍKUR-f réttir
14 Fimmtudagur 27. júní 1985
Verslunin Litabær:
Sérverslun með málningu
og málningavörur
Verslunin Litabær i málningu og málninga-
opnaði þann 1. júní ísumar vörur. Eigendur eru hjónin
að Hafnargötu 6, Grinda- Ólöf Þórarinsdóttir og
vík og er sérverslun fyrir I Freygarður Jóhannesson
Grindvíkingar
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt
aö frá og með 1. maí 1985 greiði bæjarsjóð-
ur fyrir 1/2 dags vistun barna hjá viður-
kenndum dagmæðrum, sömu upphæð og
tekin er fyrir vistun barna í leikskóla bæjar-
ins.
Greiðsla er háð þeim skilyrðum að barnið
sé á leikskólaaldri, hafi ekki fengið pláss á
leikskóla og lagður verði fram reikningur
dagmóður, áritaður af Petrínu Baldurs-
dóttur, forstöðumanns leikskólans.
Grindavík, 30. apríl 1985.
Bæjarstjórinn í Grindavík
skipamálari.
„Þetta hefur farið miklu
hraðar af stað en maður átti
von á. Maður hefur ekki
haft undan“, sagði
Freygarður, ,,Það var
greinilega þörf fyrir svona
sérverslun í Grindavík“.
Hvers konar málningu
eruð þið með?
„Við erum meðameríska
málningu International
sem er mest selda málning í
heimi og eftirspurnin eftir
henni virðist vera mjög
mikil hérna. Við fáum þetta
hjá innflytjandanum í
Reykjavík og ég held að við
séum eina verslunin sem
býður upp á þessa tegund,
fyrir utan innflytjandann
sjálfan.
Þetta er alhliða skipa-
málning til allra hugsan-
legra nota um borð í
skipum svo og húsamáln-
ing, úti og inni. Það er
ýmislegt nýtt til í þessari
Grindvíkingar
Þar sem öll fasteignagjöld 1985 eru
fallin í gjalddaga og lögtök fara að
hefjast, er skorað á alla þá sem þau
skulda að greiða nú þegar - það er
beggja hagur.
Innheimta
Grindavíkurbæjar
É ' r •"
II f f s
IK fs
s*.
...
»•-
|
Ll
Hjónin Ólöf Þórarinsdóttir og Freygarður Jóhannesson eru
eigendur Litabæjar.
málningu t.d. þakmálning
sem er bæði grunnur og
lakk og þarf þar af leiðandi
ekki að grunna sérstaklega,
má fara á nýlegt járn. Sama
er að segja um t.d þilfars-
málningu sem er með gler-
flísum þannig að þar verður
aldrei hálka. Þetta er víða
skylda að nota og mikið
spurt um þetta af útgerðar-
mönnum hérna.
Svo er herðir í allri máln-
ingu í mismiklum mæli eftir
þörfum hvers og eins og
þarf ekki að bæta honum út
í. Þannig er hægt að spara
svolítið. Það er ýmislegt
svona lagað sem þessi teg-
und hefur fram yfir aðrar,
enda er hún allsráðandi
sem skipamálning hérna og
mikið spurt um hana í
húsamálun". - ehe.
VÍK UR-FRÉ T TIR
Sterkasti auglýsingamiðill Suðurnesja
Lestun í Grindavíkurhöfn
Á hafnarbakkanum stóð yfír lestun á saltfíski í m.s. Eldvík.
Vinnu var að mestu lokið og var verið að ganga frá síðustu brettun-
um í skipið, sem hélt næst til Þorlákshafnar á leið sinni til Portúgal.
Egill Olafsson starfsmaður SAS var að störfum þegar Víkurfréttir
bar að garði. - ehe.