Víkurfréttir - 27.06.1985, Blaðsíða 17
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 27. júní 1985
17
„Minni Ingólfs“
KÆRI FÚLL Á MÓTI.
Þegar nærri því allra
snjallasti rithöfundur, sem
nú er uppi í Keflavíkur-
læknishéraði hristirframúr
erminni allt að meters langa
grein til að svara „fleipri“
og „rangtúlkunum“ mín-
um og annarra, þá er nú
ekki nema von að maður
lesi. Ekki til að meta stílinn
og orðfærið, heldur til að
kynnast því írafári, sem
gripið hefur um sig í sálar-
kirnu rithöfundarins, þ.e.
formanns stjórnar HSS og
SK, vegna sakleysislegra
skrifa minna.
Náttúrlega kemst maður
_ ekki hjá að sjá hver maður-
inn er, sem ræður fyrir-
komulaginu og skipulegg-
ur það innan stofnunarinn-
ar. En það er einmitt það,
sem fyrrnefnd grein frá
HSS fjallaði um, ásamt
þeirri áberandi fyrirlitn-
ingu á almennum neytend-
um sem birtist í upphafi
málsins, óundirritaðri grein
í Víkur-fréttum: „Að gefnu
tilefni", sem nú hefur verið
feðruð. Hún fjallaði um að
neytendur skuli vera þægir,
hvað sem hag þeirra líður,
líklega eins og fé sem relcið
er til réttar.
Maðurinn sem ræður er
formaður HSS, Ingólfur
Falsson. Heilsugæslustöð-
in á að vísu að vera þýðing-
armeiri og er um leið mun
dýrari í rekstri heldur en
venjuleg rétt.
Hvað um það, þessu
stjórnar hann að eigin mati
sbr. skrif í Víkur-fréttum
20. júní sl. og auk þess
tekur hann fram að hann
kæri sig ekki um meira
„fleipur“ (tvítekið í svar-
inu), hótar í lokin „að um
frekari skrif verði ekki að
ræða hvorki frá læknum né
stjórn SK og HSS. Það er að
vísu margt alvarlegra en
það. Við liggur að formað-
urinn hefði getað bætt við
tveim rammíslenskum orð-
um: „haltu kjafti“. Sérstak-
lega vegna þess að honum
finnst undirritaður linur í
íslensku. Tilefnið er gefið.
Sjálfur er hann fær í „flest-
an sjó“ að eigin mati, grein-
in ber það með sér, sjómað-
ur a.m.k. í fyrra lífi ef ekki
meir, klár í íslensku og gott
ef ekki latínu líka.
Ég hélt einmitt að það
sem farið hefur úrskeiðis
Fleiri hugleiðingar
um heilsugæslu
Ég get ekki orða bundist
yfir þeim skrifum, sem átt
hafa sér stað um heilsu-
gæslu Suðurnesja, þar er
allt fundið henni til foráttu,
þó verið sé að reyna að
koma skipulagi og reglu á
hlutina. Það ætti að verða
þægilegra fyrir lækna og
aðra aðila , ef regla er
komin á hlutina. Ekki er
vinnuálagið svo lítið, þar
sem fólkinu fjölgar sífellt,
en læknum ekki að sama
skapi og ætlast er til að þeir
vinni allan sólarhringinn.
Þess vegna ætti fólk að
virða þær reglur, sem settar
hafa verið t.d. um tíma-
pantanir, nema ef um slys
eða bráð veikindi sé að
ræða. Símatímarnir eru
mjög góðir, þó ekki sé hægt
að afgreiða hvað sem er
gegn um síma. Það er mikils
virði fyrir lækni að fá
sjúkling til að koma á
stöðina, þar sem tæki eru
fyrir hendi til skoðunar.
Það er ekki hægt að ætlast
til að gefin séu vottorð og
lyfseðlar gegn um síma, þó
það hafi nokkuð tíðkast.
Það getur verið ábyrgðar-
hluti, það segja ekki allir
satt um ástand sitt.
Það virðist sannast þarna
að erfitt er að kenna
gömlum hundi að sitja.
Allir virðast sjá og tala um
það sem miður fer og rakka
niður ef einhver mistök
verða, sem alls staðar geta
þó skeð, en tala aldrei um
það sem vel er gert.
Það sannast hér máltæk-
ið: „Það sjá allir flísina í
auga bróður síns, en ekki
bjálkann í sínu eigin auga“.
Anna Pálsdóttir
19 árekstrar
í síðustu viku
8 teknir grunaðir
um ölvun við akstur
Fremur rólegt var hjá
lögreglunni í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringu-
sýslu í síðustu viku, ef frá
eru talin umferðarmálin, en
í vikunni var lögreglunni
tilkynnt um alls 12 umferð-
aróliöpp. Slys urðu engin ef
undan er skilið er ekið vará
barn á reiðhjóli sl. laugar-
dag á Hringbraut í Kefla-
vík. Slapp barnið með smá-
vægilegt hrufl og var búið
að flytja það af slysstað er
lögreglan kom á staðinn.
Alls tók lögreglan 8 öku-
menn grunaða um ölvun
við akstur þessa sömu viku,
þar af 6 um síðustu helgi.
epj.
um þjónustuna og lýst var í
blaðagreininni 6. júní sl„
stafaði af stjórnleysi, eng-
inn einn réði ferðinni eins
og hlýtur að vera tekið fram
í reglugerðum, heldur
kannski allir, HVER í
KAPP VIÐ ANNAN.
Ef formaðurinn er á-
nægður þá er það á þessu
stigi hans mál en ekki MITT.
Ég held því blákalt fram,
að þýðingarlaust sé að eiga
við heilbrigðismafíuna. Þar
eru allir í samtryggingar-
púkki, blindir og heyrnar-
lausir fyrir því sem betur
mætti fara til heilla fyrir al-
menning, en meira hugsað
um eigin hag. Aðfinnslum
svarað með skítkasti og
rembingi og það af fulltrúa
fólksins.
Þetta gengur fram af
hverjum heilvita manni.
Að lokum í staðinn fyrir
sletturnar, rammíslenskt:
Sól ég sá
setta dreyrstöfum.
Mjög var ég þá úr heimi
hallur;
máttug hún leist
á marga vegu,
frá því er fyrri var.
Og vona ég að einhvers
staðar verði ég fjarri þjón-
ustusvæði HSS þegar svo
verður fyrir mér komið.
Með þökk fyrir birtinguna.
8870-7575, eða
Theodór Magnússon
Miðgarði 5
230 Keflavík
GORI 88 VIÐARVARNAREFNI í SÉRFLOKKI.
SLETTIST HVORKI NÉ DRÝPUR, ENDA ER ÞAÐ
LEIKUR EINN AÐ BERA Á MEÐ GORI 88. 1
GORI 88 viðarvarnarefnið er árangur
langra og strangra rannsókna.
GORI 88 er þróað til að vernda viðinn
gegn hörðustu veðrum.
Járn & Skip
Víkurbraut - Sími 1505