Víkurfréttir - 14.11.1985, Síða 1
Brunatryggingar á Suðurnesjum:
Allt að 74% lækkun
Brunabótafélag ís-
lands hefur lækkað
verulega öll iðgjöld af
brunatrygginum íbúð-
arhúsa. Er lækkunin
mest á timburhúsum,
eða 74%, en 39% ástein-
húsum.
Þó lækkunin sé alls
staðar sú sama, er
iðgjaldið misjafnt í sveit-
arfélögunum. Fer það
eftir brunatíðni í sveitar-
félaginu og eru þau því
misjafnlega hagstæð
áhættusvæði frá sjónar-
hóli tryggingafélagsins.
Þá er líka tekið tillit til
þess hvort viðkomandi
sveitarfélag býr yfir
góðu slökkviliði eða
hvort miklar fjarlægðir
eru fyrir slökkviliðið að
fara.
Af þessum ástæðum
er nú eins og áður mis-
hátt iðgjald í sveitarfé-
lögunum á Suðurnesj-
um. Keflavík, Njarðvík,
Garður, Sandgerði og
Grindavík eru í lægsta
flokki og þar er taxtinn
0,14 0/00, en í Vatns-
leysustrandarhreppi er
hann 0,17 0/00 og 0,26
0/00 í Hafnhreppi.
Eftir þessa lækkun
eru bæði timbur- og
steinhús með sama
iðgjald, þ.e. 0,14 0/00 í
sveitarfélögunum 5, en
þar voru timburhús áð-
ur með 0,54 0/00 og
steinhús með 0,23 0/00.
Lækkunin er því í fyrri
flokknum 74% en 39% í
þeim síðari. - epj.
NÝ LÖGREGLUSTÖÐ Á
KEFL A VÍ KURFLU G VELLI
- Verða Grœnásblokkirnar seldar
til að fjármagna þá byggingu?
Á vegum varnarmála-
deildar er farið að huga að
byggingu nýrrar lögreglu-
stöðvar á Keflavíkurflug-
velli og hefur verið rætt um
að fjármagna þá byggingu
m.a. með sölu á íbúða-
blokkunum sem ríkið á í
Grænásnum.
Að sögn Hannesar Guð-
mundssonar hjá varnar-
máladeild er vitað, að eftir
að nýja flugstöðin hefur
verið tekin í notkun og nýi
vegurinn að henni er kom-
inn í gágnið, þarf að færa
lögreglustöðina. ,,Um þetta
hefur þó enn engin ákvörð-
un verið tekin og ekki er
fyrirsjáanlegt hvenær það
verður“, sagði Hannes.
Sagði hann að sama væri
varðandi sölu á íbúða-
blokkunum þrem sem ríkið
ætti í Grænásnum.
Á aðalfundi SSS á dög-
unum var því slegið fram að
Lögreglustöðin á Keflavíkurflugvelli.
nota mætti húsin fyrir aldr-
aða eða annarra sameigin-
legra nota á vegum sveitar-
félaganna á Suðurnesjum,
því eftir vegarlagninguna
verða þessi hús neðan flug-
vallargirðingar. - epj.
Langþráð lýsing í Njarðvík
Langri bið er lokið. Langþráð lýsing er orðin að veruleika í Njarð-
vík á kaflanum frá Grænásbrekku að Fitjum.. Ljósm.: pket.
Fiskvinnslan að
hruni komin
- Miklar umrœður um atvinnumál á aðalfundi SSS
Miklar umræður urðu um
atvinnumál á Suðurmesj-
um á 8. aðalfundi SSS á
dögunum.
I máli Guðmundar
Gestssonar, formanns at-
vinnumálanefndar Suður-
nesja kom m.a. þetta fram:
,,Salfiskverkun Guð-
bergs Ingólfssonar hefur
verið seld ungum athafna-
mönnum, en er ekki rekin
með hálfum afköstum sök-
um þess að ekki fást afurða-
lánaviðskipti í bönkum.
Togarinn Ingólfur seldur
burt. Togarinn Erlingur
seldur burt. Togarinn
Sveinborg seldur burt,
þrátt fyrir að menn af svæð-
inu vildu kaupa Sveinborg-
ina og Isstöðina, ef þeim
yrði gert það kleift með eðli-
legri lánafyrirgreiðslu.
Garðskagi hf.: Skip
þeirra Happasæll selt burt.
Togarinn Gautur leigður til
Hafnarfjarðar og aðeins
hluti aflans kemur til
vinnslu hjá fyrirtækinu. Eg
reyndi að ná sambandi við
fyrirtækið í dag, án árang-
urs, fékk þær upplýsingar
að síminn væri lokaður
vegna skuldar við Póst og
síma.
Heimir hf.: Fyrirtækið
tekið til gjaldþrotaskipta.
Heimir KE seldur burt.
Helgi S. í eigu Fiskveiða-
sjóðs. Vinnslustöðin í eigu
Landsbankans.
Staða atvinnumála í
Grindavík er með þeim
hætti að 70% atvinnufyrir-
tækja er beint að sjávarút-
veg. Það er erfitt að gera sér
í hugarlund hvernig
ástandið yrði, kæmi til
stöðvunar útgerðarfyrir-
tækja þar. Jafnvel í Grinda-
vík þar sem fyrirtæki eru
byggð á gömlum grunni,
hriktir í stoðum“.
Þetta var ófögur lýsing
hjá formanni atvinnumála-
nefndar, en fleiri höfðu til
málanna að leggja. I máli
Olafs B. Ólafssonar for-
stjóra, kom fram að salt-
fiskverkun hefur hrapað
niður um helming á Suður-
nesjum sl. 10 ár. Ólafur
Björnsson taldi að mörg
fyrirtækin í sjávarútvegi
væru að hruni komin. Al-
bert K. Sanders taldi að
sjávarútvegurinn á Suður-
nesjum væri allur að fara í
kalda kol. Og svona má
mætti lengi telja.
Að umræðum loknum
voru ályktanir samþykkt-
ar og birtast þær annars
staðar í blaðinu. - epj.