Víkurfréttir - 14.11.1985, Page 8
8 Fimmtudagur 14. nóvember 1985
VÍKUR-fréttir
Opinn fundur í Holtaskóla um áfengismál:
„DV er málgagn áfengisauð-
magnsins í landinu“
- sagði Hilmar Jónsson, stórtemplar. -
- Dómsmálaráðherra einnig óhress með fjölmiðla
„DV er sérstakt mál-
gagn áfengisauðmagnsins í
landinu. Skoðanakann-
anir blaðsins eru ekki hlut-
lausar. Eg hef rætt við
marga sem hafa lent í þess-
um könnunum. Það er
óskað eftir því að svarið sé
fyrir bjór“.
Svo mælti Hilmar Jóns-
son, stórtemplar og bóka-
vörður í Keflavík, á opnum
fundi í Holtaskóla um
áfengismál sl. fimmtudag.
Fundurinn var haldinn á
vegum stúkunnar Víkur og
Áfengisvarnanefndar
Keflavíkur. Frummælend-
ur voru Jón Helgason
dómsmálaráðherra og Arn-
björn Olafsson læknir.
Jón Helgason var heldur
ekki spar á þung orð til fjöl-
miðla, og sagði:
,,Fjölmiðlar virðast
draga taum af þeim sem
vilja áfengi. Og í blaða-
áróðri er ekki verið að
hugsa um mannleg örlög
heldur eitthvað annað“.
I máli Jóns kom fram að
kostnaður þjóðfélagsins á
þessu ári vegna afleiðingar
áfengisneyslu íslendinga
yrði 3.6 til 5 milljarðar
króna. Af því yrðu bein út-
gjöld ríkisins um helming-
ur upphæðarinnar, en hinn
helmingurinn skiptist á
aðra pg síðan framleiðslu-
tap. Á Islandi eru í dag 400
vistrými fyrir áfengissjúkl-
inga. Kostnaður á einn
sjúkling á dag er um 4000
kr. Hér væri því um gífur-
lega fjármuni að ræða.
Um veitingu vínveitinga-
leyfa í sveitarfélögunum
sagði Jón að viðhorf ein-
stakra sveitarstjórna félli
ekki að stefnumótun Sam-
taka sveitarfélaga á Islandi
og því væri erfitt fyrir ráð-
herra að finna lausn á því.
Samtökin hafi samþykkt á
ráðstefnu sinni að dóms-
málaráðuneytið hefði veitt
of mörg leyfi. Því hafi ráðu-
neytið talið best að vísa
málinu í hvert bæjarfélag
þar sem áfengisvarnanefnd
tæki á málinu. Formaður
nefndarinnar í hverju
byggðarlagi er skipaður af
heilbrigðisráðherra, en
aðrir af sveitarstjórnum.
Svo sagði Jón: „Eg vona að
hægt verði að koma á sam-
starfi milli sveitarfélag-
anna og dómsmálaráðu-
neytisins svo klögumál
þurfi ekki að ganga á víxl“.
Hinn frummælandinn,
Arnbjörn Ólafsson, sagði í
ræðu sinni meðal annars, að
meðferðarstofnanir hafi
ekki borið þann árangur
sem skyldi - í raun lítið gagn
gert. Fyrirbyggjandi að-
gerðir væru það eina sem
dygði gegn áfengisbölinu.
Arnbjörn beindi spjótum
sínum einnig til ríkisins og
bæjarstjórna, um að hætta
að veita vín í veislum.
Ymsir fundarmenn tóku
til máls. Skarphéðinn
Njálsson, löggæslumaður,
„Það er óskað eftir því að svar-
ið sé fyrir bjór ..."
sagði að fyrir nokkrum
árum hefði verið talað um
að Suðurnesin væri það
svæði sem mest væri um
fíkniefni. Sagði hann að
þessi mál væru í alvarlegu
ástandi á Suðurnesjum enn
í dag, og lítið hefði áunnist
á undanförnum árum. I
Reykjavík væri aftur á móti
vel unnið að þessum mál-
um.
Drífa Sigfúsdóttir, for-
maður Félagsmálaráðs
Keflavíkur, upplýsti fund-
armenn um, að tölur frá því
í maí sl. sýndu að 144 Kefl-
víkingar hefðu sótt með-
ferðarstofnanir frá upp-
hafi. Fjöldi íslendinga sem
hefðu farið í meðferð væri
rúmlega 3600 og meðal-
aldur þeirra 36 ár. Skipting
kynja væri þannig að af
hverjum fimm sem sækja
þessar stofnanir væri nú ein
kona. Einnig sagði Drífa að
þeir unglingar sem ekki
stunduðu íþróttir lentu
frekar í einhverjum vand-
ræðum.
Hilmar Jónsson sagði að
hið eina jákvæða fyrir æsk-
„í blaðaáróðri er ekki verið að
hugsa um mannleg örlög . .. “
una á þessu ári hefði verið
að leyfa ekki bjórinn.
Guðfinnur Sigurvinsson,
bæjarfulltrúi í Keflavík,
svaraði því til að bæjar-
stjórn Keflavíkur hefði með
ráðum og dáðum stuðlað að
sem mestri æskulýðsstarf-
semi og undir það tók síðan
Hjörtur Zakaríasson,
bæjarfulltrúi, og sagði
æskulýðsmál í Keflavík
hafa verið með miklum
blóma. Hjörtur sagði að
æskulýðsmál eins og
íþróttir væru fyrirbyggj-
andi og einnig fræðsla, sem
hann taldi of litla í skólum
á undanförnum árum, en
færi þó batnandi.
Alnafni ráðherra, Jón
Helgason, 18 ára sjómaður
úr Keflavík, sagði að á sinni
skólagöngu myndi hann
aðeins eftir tveimur
kennslustundum þar sem
alkóhólistar hefðu komið
og rætt við kennara og
nemendur.
Séra Björn Jónsson, sem
var fundarstjóri, sagði að
eitt stærsta ógæfuspor sem
Framh. á 18. síðu
Frá fundinum í Holtaskóla um áfengismál.
ÞVl FYLGIR ÆTÍD ÖRYGGI AD MALA MED SJAFNAR MALNINGU
/, tnsbvnnt • á ve99'. glugga, hurðir, ofna,
iVainbpy jnnréttingar, húsgögn o.fl.
REX skipa- og
þakmálning
hefur frábæra eiginleika sem vörn á
tré og járn, gegn vatni, veðri og hvers
konar sliti.
URETAN og E-21
GÓLFLÖKK
Tvenns konar gólflökk, til notkunar í
heimahúsum og á vinnustöðum.
CDet
LÖKK:
MET HÁLFMATT LAKK
MET HÁGLANSLAKK
MET VIÐARLAKK
MET VÉLALAKK
MET VÉLAGRUNNUR
POLYTEX
er mött, áferðarfalleg plastmálning
aöallega til notkunar innanhúss.
POLYTEX er auðveld í meðförum,
þornar fljótt, þekur vel og er laus
við alla óþægilega lykt.
JÁRN&SKIP
Vikurbraut 15
Siml 1505 ,
GÓLFTEX
í vinnusali, frystihús, bifreiða-
geymslur, íþróttamannvirki,
þvottahús og fleira.
FJÖLMYNSTUR-málning
er samheiti fyrir málningartegundir sem
mynda upphleyþta áferð og sem hægt er
að mynstra á ótal vegu.
Opnar óteljandi möguleika fyrir
hugmyndaríka hönnuði.
FLÖGUTEX á veggi sem mikið mæðir á.
■*++ * _
RN & SKIP
Vikurbraut 15
Simi 1505