Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.11.1985, Page 9

Víkurfréttir - 14.11.1985, Page 9
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 14. nóvember 1985 9 r Uppskeruhátíð IBK í yngri flokkum Uppskeruhátíð ÍBK í yngri flokkum fór fram á Glóðinni sl. sunnudag. Leikmenn ársins í 3. fl., 4. fl., 5. fl., 6. fl. og 3. fl. kvenna voru verðlaunaðir af knattspyrnuráði IBK. Við þetta tækifæri var leik- mönnum í 3. flokki kvenna afhentir silfurpeningar fyrir annað sætið í Islands- mótinu í sumar, sem jafn- framt var besti árangur yngri flokka ÍBK á sl. sumri. Leikmenn ársins 1985 urðu þessir: 3. fl. Garðar Jónasson 4. fl. Guðbjörn Guðmundsson 5. fl. Sigurður Marelsson 6. fl. Snorri Már Jónsson 3. fl. kv. Anna M. Sigurðard. Öllum leikmönnum fyrr- nefndra flokka var boðið í gos, kleinuhringi og kökur frá Ragnarsbakaríi, en að þeirri veislu aflokinni fór verðlaunaafhendingin fram. Voru þessar myndir teknar við það tækifæri. pket. ARSHATIÐ Stangaveiðifélags Keflavíkur verður haldin i Grófinni, laug- ardaginn 23. nóv. - Fjölmennið. Miðasala verður í félagsheimili SVFK, Suðurgötu 4a, miðviku- daginn 20. og fimmtudaginn 21. nóv. frá kl. 20 til 22. Skemmtinefndin Sími 4040 Simi 4040 3. fl. kvenna ÍBK - silfurhafar í Islandsmóti ásamt þjálfaranum, Ingu Birnu. Leikmenn ársins í yngri flokkum ÍBK: Anna María, Snorri Már, Sigurður Steinarsson sem tók við verðlaunum Guðbjörns og Garð- ar Jónasson. Orðsending til aldraðra - sem ætla til Kanaríeyja Þeir sem áhuga hafa fyrir ferðinni til Kanríeyja 28. jan. n.k. eru beðnir að um að láta skrá sig fyrir 20. nóvember n.k. Nánari upplýsingar um ferðina komu fram í auglýs- ingu í síðasta tbl. Víkur- frétta. Ferðanefndin Lionsklúbburinn Keilir: Gengur í hús og býður jóladagatöl Næstu daga munu félag- ar úr Lionsklúbbnum Keili ganga í hvert hús á Suður- nesjum og bjóða til sölu jóladagatöl, eins og undan- farin ár. Verðið er aðeins 100 kr. og vonast Lionsmenn til að Suðurnesjamenn taki vel á móti þeim eins og ávallt áður. Allur ágóði rennur til líknarmála. - epj. Fengu manna- bein í vörpuna Er togarinn Aðalvík KE 95 var að togveiðum ný- lega á Strandagrunni fékk hann lærlegg af manni í vörpuna. Kom hann með beinið að landi í Njarðvík á mánudag í síðustu viku og var því komið fyrir í vígðri mold. - epj. Fimmtudagur 14. nóv: Opið kl. 21.30 - 01. Föstudags- og laugardagskvöld: MIÐLARNIR leika fyrir dansi frá kl. 22-03. SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR ALDURSTAKMARK 20 ÁRA SUNNUOAGUR: - Neðri salur - Kl. 15-17: Kaffihlaöborð, kr. 250 Kl. 18: Sjávarréttahlaðborð, kr. 595 Matseðill helgarinnar. * KABARETT Q w Grín- og skemmtiþáttur V- „ÚR ÝMSUM ÁTTUM“ fluttur af Litla leikfélaginu, laugardags- og sunnudagskvöld í efri sal. MENU KL. 20 KL. 21.30: KABARETT KL. 22.30: TfSKUSÝNING FATNAÐUR FRA SAMKAUPUM KL. 23.00: DISKÚTEK BORÐAPANTANIR í síma 1777. Verð fyrir aðra en matargesti á Kabarett kr. 250. Tryggið ykkur borð í tíma á Kabarettinn vegna takmarkaðs sýningarfjölda. ALLTAF eitthvað nýtt á GLÚÐINNI!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.