Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 14. nóvember 1985 11
_Í_________I____
Freyr Sverrisson í baráttu við Skagamann.
FREYR I
STUÐI
í góðum sigri ÍBK á ÍA
Snilldrataktar Freys
Sverrissonar á lokamínút-
um leiks ÍBK og ÍA í 3.
deild handboltans tryggðu
Keflvíkingum sigur eftir
mjög jafnan og spennandi
leik. Lokatölur urðu 27:21
eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 12:12.
Þegar seinni hálfleikur
var rúmlega hálfnaður var
staðan 20:19 fyrir Skaga-
menn. Þá tóku Keflvíking-
ar ótrúlegan lokasprett og
skoruðu átta mörk á móti
aðeins einu. Þennan loka-
kafla var Freyr Sverrisson
allt í öllu hjá ÍBK og skor-
aði m.a. 3 mörk í röð, öll úr
hraðaupphlaupum. Freyr
tók besta mann IA úr um-
ferð, Pétur Ingólfsson, en
gaf sér þó tíma til að líta af
honum augum og fiska
boltann tvívegis af Skaga-
mönnum í sókninni, og
skora úr hraðaupphlaup-
um. Keflvíkingar léku þenn
an leik vel, leiddu mest
allan tímann. IA komst þó í
byrjun í 2:0 en IBK svaraði
að bragði og komst í 6:3. IA
jafnaði, en IBK komst aftur
í 3ja marka forskot 9:6.
Skagamenn jöfnuðu enn á
nýjan leik og þannig var
í hálfleik, - 12:12.
Síðan skiptust liðin á að
hafa forystu þar til að/rá-
bærum lokakafla IBK
kom, sem áður er lýst. Auk
Freys léku þar stór hlut-
verk bæði Gísli Jóhanns-
son og Elvar Sigurðsson,
mjög ógnandi báðir tveir.
Einnig var skemmtilegt að
sjá til þeirra Freys og Jóns
Olsen í hornunum, en þeir
gáfu boltann á milli og
skoruðu til skiptis. Sigurð-
ur Björgvins var á línunni
og stóð sig vel. Skagamenn
tóku Theódór þjálfara IBK
úr umferð í seinni hálfleik,
en þeir réðu ekki við Kefl-
víkingana sem létu boltann
ganga vel í sókninni og
opnuðu oft vörn ÍA upp á
gátt. Lokakaflann gekk
ekkert né rak hjá Skaga-
mönnum og ef þeir komust
inn fyrir þá sá Magnús
Jónsson um þá í markinu,
en hann varði oft mjög vel,
sérstaklega í lokin.
Mörk ÍBK: Freyr 7, Elvar
7, Gísli 6, Theódór 4, Ein-
varður, Sig. Björgvins og
Jón Olsen eitt hver. Pétur
skoraði mest hjá ÍA, 9
mörk. - pket.
/----------------------\
Freyr Sverrisson ÍBK:
„Handboltinn
á uppleið“
„Ég er mjög ánægður
með þennan sigur, því
Skagamenn eru alltaf erfið-
ir viðureignar. Sérstaklega
var seinni hálfleikur góður,
en þá tókum við líka leik-
kerfi sem við létum alveg
vera í fyrri hálfleik. Við
gátum þó leyft okkur að
geyma sumt sem við vild-
um ekki sýna Njarðvíking-
um á áhorfendapöllunum
því við mætum þeim hér
heima eftir hálfan mánuð“.
Nú hefur Suðurnesjalið-
unum gengið vel. Er hand-
boltinn á uppleið?
„Já, það er engin spurn-
ing. Það er mikil alvara í
þessu hjá okkur núna og
við ætlum að standa okkur.
Áhorfendum fjölgar á
leikjum okkar og við
viljum rífa upp áhugann á
handboltanum hér í Kefla-
vík eftir áratuga lægð",
sagði Freyr Sverrisson.
Körfubolti 1. deild:
Eyjólfur skoraði sigurkörfu UMFG
Grindvíkingar sigruðu
Stúdenta naumlega_, 53:52,
er liðin áttust við í Iþrótta-
húsi Grindavíkur sl.
fimmtudag. Staðan í hálf-
leik var 30:19 fyrir UMFG.
Stúdentar komust yfir í
fyrsta skipti í leiknum 52:51
á síðustu mínútunni, eftir
að hafa saxað á forskot
heimamanna jafnt og þétt.
Eyjólfur Guðlaugsson
tryggði svo Grindvíkingum
sigur þegar nokkrar sek-
úndur voru til leiksloka.
Reynismenn og UBK
áttu að leika sl. sunnudag,
en var frestað. Gylfi Þor-
kelsson var kallaður í
landsliðshópinn fyrir
Símon Olafsson úr Fram.
Það verður því í fyrsta
skipti sem Sandgerðingur
leikur landsleik í körfu-
bolta. - pket.
2 deild kvenna:
r r
IBK VANN ÞROTT
ÍBK og Þrótturáttust við
í 2. deild kvenna strax að
leik loknum hjá IBK og IA.
Keflvísku stúlkurnar sigr-
uðu í leiknum með 19
mörkum gegn 17 eftir að
hafa haft yfir í hálfleik 9:7.
ÍBK var yfirleitt með
forystu í leiknum þó naum
væri. Bestar voru þær Guð-
björg Finnsdóttir og Una
Steins, báðar með 6 mörk.
Þurý Þorkelsdóttir skoraði
3, Lóa Bragadóttir 2, Þurý
Jónasar 1 og Iris Guðjóns--
dóttir 1. - pket.
ÉG ÆTLA AÐ MÁLA
ALLAN HEIMINN . . .
. . . með gæðamálningunni frá SADOLIN
KOMDUÁ
lita-BARINN . . .
Tölvustýrð
blöndunarvél
sem gefur ótelj-
andi möguleika.
JÁRN & SKIP
Víkurbraut 15
Sími 1505