Víkurfréttir - 14.11.1985, Side 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 14. nóvember 1985 13
Samstæður skóli
Nokkrir ágætir skóla-
menn hér í bæ hafa undan-
farnar vikur og mánuði
fyllt síður Víkur-frétta með
skrifum sínum um skóla-
mál. Þessi skrif eru vissu-
lega góðra gjalda verð, en
þó þykir okkur sumum
gæta einkennilega mikillar
afturhaldssemi og skamm-
sýni í skrifum þessum með
tilliti til uppeldis- og
kennslufræðilegra þarfa
barna okkar.
Enginn þessara annars
ágætu manna hefur tekið
tillit til þarfa nemandans,
unglingsins á viðkvæmasta
aldursskeiði mannsævinn-
ar, þ.e. unglingsáranna,
þegar lítill drengur breytist
í mann og lítil stúlka í
Ók á ljósastaur
og slasaðist
Aðfaranótt sl. sunnu-
dags var bifreið ekið á ljósa-
staur við Reykjanesbraut í
Njarðvík. Slasaðist öku-
maðurinn á fæti og var
fluttur á sjúkrahús. - epj.
konu, og þau jafnvel í for-
eldra. Þá er ætlast til að fari
fram skólaskipti.
Þeir hafa með réttu bent
á þann ótta, hræðslu, kvíða,
geig og jafnvel beyg, sem
þjakar og þrúgar yngstu
nemendur við skólaskipti.
En sjá þeir ekki skóginn
fyrir trjánum?
Hvers á unglingurinn
að gjalda?
Þegar mest á reynir og
mestu máli skiptir hvernig
til tekst, blasir fjölbrauta-
fordæðan við. Hvernig á að
ætla óhörðnuðum unglings-
sálum að ganga í gegnum
þær vítiskvalir, áþján og
sálarkreppu séð frá
uppeldislegu, kennslu-
fræðislegu, mannúðarlegu,
pædagogísku og jafnvel fé-
lagsfræðilegu sjónarmiði
sem skólaskiptin hafa í för
með sér?
Þau spor eru svo átakan-
lega erfið, að jafnvel hið
margra ára uppbyggilega,
kennslufræðilega og upp-
eldisfræðilega starf hins
ágæta heildstæða skóla má
sín lítils andspænis frum-
skógi hinna ýmsu brauta
s.s. uppeldisbrauta, félags-
fræðibrauta, framabrauta,
reykjanesbrauta og plötu-
og ketilsmíðabrauta - fjöl-
brautafyrirbærisins.
Þar eru engir bekkir
heldur svokallað einstakl-
ingsnám og þau eru jafnvel
felld miskunnarlaust áður
en þau hafa komist í and-
legt jafnvægi aftur. Ofan á
allan þann glundroða og
ringulreið sem val þessara
brauta veldur litlu kollun-
um okkar bætist við BUSA-
VÍGSLAN sem frá mann-
úðar- og samúðarsjónar-
miði ætti að varða við lög.
6 ára í fjölbraut
Nei, tryggjum börnum
okkar sama kennara frá
upphafi til enda, traustan,
réttsýnan, víðsýnan, áhuga-
saman, hæfileikaprýddan,
hugmyndaríkan og fyrst og
fremst umhyggjusaman
mann, sem fylgist með
þroska og framförum
barna okkar alla þeirra
skólagöngu, verndar þau
og leiðir.
Hættum öllu tali um
langsum og þversum skóla.
Við viljum gegnum skóla.
Höfum samstæðan skóla
sem tryggir börnum okkar
þekkingu, framþróun og
frið. Forðumst öll skóla-
skipti. Höfum einn sam-
stæðan skóla frá 6 ára aldri,
frá vöggu til vinnu:
GRUNNBRAUTA-
SKÓLA.
Auk þess leggjum við til
að ungmenni á Suðurnesj-
um fari ekki að þvælast í
Háskóla Islands til að lenda
ekki þar í þeirri sálar-
kreppu, angist og áþján,
sem skólaskipti valda.
F.h. umræðuhóps.
Ráðhildur Fróðadóttir
stud. cand.
c--------------------------^
Fundur um skólabyggingu
Að undanförnu hafa
miklar umræður spunn-
ist um lausn húsnæðis-
vanda grunnskólans í
Keílavík og sýnist sitt
hverjum. Hér í blaðinu
hafa birst greinar eftir
menn tengda skólamál-
um, en ekki hefur borið
á röddum foreldra.
Til að gefa almenn-
ingi tækifæri til að
kynna sér þessi mál hef-
ur Foreldra- og kenn-
arafélag Myllubakka-
skóla ákveðið að boða til
almenns félagsfundar,
þriðjudaginn 19. nóv-
ember kl. 20.30 í Holta-
skóla. Forsvarsmenn
skólamála verða til stað-
ar og svara fyrirspurn-
um.
Við hvetjum foreldra
og annað áhugafólk um
skólamál eindregið til að
mæta og taka þátt í þess-
um umræðum.
(Frcttatilkynning)
VEGNA FLUTNINGS í NÝTT HÚSNÆÐI
SELJUM VIÐ ALLAR VÖRUR VERSLUN-
ARINNAR MEÐ 10-50% AFSLÆTTI FRÁ
OG MEÐ 15.-28. NÓVEMBER.
Gerið góð kaup og verslið á útsölunni
hjá okkur.
BÚSTOÐ
Vatnsnesvegi 14
Keflavík
Sími 3377