Fréttabréf - 01.08.1989, Side 5

Fréttabréf - 01.08.1989, Side 5
Hanna Maja í heimsókn hjá Reykjanesanga Við Reykjaneskonur ákváðum að gera okkur dagamun á seinasta fundi okkar fyrir jól. Við fengum okkar “blöndu” og smákökur ða lokinni þingmálaumræðu og hlustuðum an- daktugar á Hönnu Maju (Maríu Jóhönnu Lárusdóttur) segja frá spennandi bókum, sem hún hefur veið að lesa að undanfömu. Við ætluðum að freista þess að heyra hana segja frá bókum kvenna þriggja kynslóða, þar sem þær skoða sögu sína og fortíð í nýju og óvæntu ljósi. Auðvitað tókst okkur ekki að komast yfir allt sem við vildum en heyrðum hana segja frá “Leyndum ástum í Njálu”, eftir Rósu B. Blöndals og Gösta Berlings Saga eftir Selmu Lagerlöv. “Hún hefði aldrei fengið Nóbelsverðlaunin ef þeir hefðu vitað um hvað hún var í raun og veru að skrifa” segir Hanna Maja og sennilega er það rétt hjá henni. Nú vaka Reykjaneskonur langar nætur og lesa, auk þessara tveggja bóka benti Hanna Maja okkur á Kassöndru eftir Christu Wolf. Fundurinn var vel heppnaður og ágætlega sóttur. Næsti félagsfundur angans verður þriðjudaginn lO.janúar á Austurgötu 47, Hafnarfirði. Framkvæmdanefnd Mætum í blysför á Þorláksmessu Það er komin hefð á það hjá mörgum að taka þátt í blysför friðarhreyfinganna á Þorláksmessu. Nú sem fyrr verður farin blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu, lagt verður af stað frá Hlemmi kl. 18.00. Á Lækjartorgi verður kórsöngur og upplestur. Kvennalistakonur, látið ykkurekki vanta í blysför friðarhreyfinganna. Jólin eru hátíð friðar og ljóss, gefum okkur tíma í jólaamstrinu og leggjum okkar af mörkum í baráttunni fyrir friðsamlegri heimi. — Skrifstofa Kvennalistans veröur lokuð milli jóla og nýárs. Viö opnum aftur 2.janúar 1990. s

x

Fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.