Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 7

Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 7
markmiðum bankans. í um 48 löndum, þar á meðal Svíþjóð, Englandi og Sviss er Kvennabankastarfsemi í mótun. Öll uppbygging Kvennabanka er önnur en hefðbundinn banki. T.d. er gamla pýramídastjómunarmynstrið ekki til heldur er notað kerfí í laginu eins og hjól. I miðjunni er kjaminn (Alþjóðlegi bankinn) og út frá honum Staðarbankar eða dótturstofnanir og ysti hringurinn táknar síðan lánþegana eða fyrirtækin sem lánað er til (“grasrótin”, kallaði Michaela það). Konur fjárfesta í konum Alþjóðlegi Kvennabankinn hefur fremur farið þá leið að vinna í samvinnu við aðra banka sem fyrir em, heldur en að fara í beina samkeppni við þá. Þannig em ekki starfandi sérstakar Kvennabankastofnanir, heldur komið á samstarfi við bankana sem fyrir em á hverjum stað en höfuðstöðvar Kvenna- bankans em í New York, þar sem Michaela Walsh er í forsvari. Reglumar sem unnið er eftir em í stómm dráttum: Lánþegar þurfa að hafa bætta afkomu kvenna að leiðarljósi. Kvennabankinn tekur fjárhagsáhættu með þeim konum sem hann lánar til. Unnið er út frá þeirri staðreynd að konur eiga ekki eignir. Ef konur standa ekki í skilum (sem þekkist varla) þá eru þær að taka peninga frá öðmm konum, því þá minnkar sjóðurinn. Markmiðið er ekki að lána sem flestum, heldur að hvert lán nýtist sem arðbær fjárfesting. Staðarbankamir ráða sjálfir hverjum þeir lána, þeir hafa möguleikann til að þekkja þær konur sem sækja um lán og meta það hverju sinni. Hvert lán er skoðað sem sérstakt mál og mikið er lagt upp úr ráðgjöf og aðstoð. Unnið er eftir bankalögum í hverju landi en hvert mál er metið fyrir sig m.t.t. endurgreiðslna. Gerður er þríþættur skilmáli - milli staðarbanka, Alþjóðabankans og lántakanda/enda, vel að merkja, á skiljanlegu máli ! Sá sem tengist þessu neti styrkir það um leið og hann eflist sjálfur. Konur fjárfesta þannig í öðrum konum. Alþjóðlegi Kvennabankinn kallar sig “non profit” banka, þ.e. markmiðið er ekki að fjárfesta í glæsihúsnæði yfir i stofnunina sjálfa. Hugmyndinni varpaö fram Erfitt er að fara hér í þessari stuttu kynningu út í mjög nána útlistun á þessu ' fjárhagsleganeti sem konur eru búnar að leggja um heiminn og eflist stöðugt. Hér er því hugmyndinni aðeins komið á framfæri en nú þegar er komin “hreyfing” sem vinnur að því að kynna sér málin ofan í kjölinn. Ef einhverjar vilja heyra meira og leggja málinu lið, látið þá í ykkur heyra. Mörgum spumingum er enn ósvarað um “tæknilega” útfærslu á þessu stigi málsins en síðar verður nánar sagt frá hvemig myndin skýrist. Michaela Walsh sagði að alls staðar hefur þær mætt viðkvæðinu: “Þetta er ; ekki hægt” en alls staðar þar sem á reyndi varð Kvennabanki að veruleika. Það gæti líka orðið svo hér á landi. Uppskriftin var samkvæmt Michaelu Walsh: Tími, undirbúningsvinna unnin af sjálfboðaliðum, konur með lagalega- og fjármálalega þekkingu og hugsjónarkonur. Stofnfé sagði hún þurfa að vera 20 þús. dollara eða 1.2 milljónir ísl. krónur. Konur þurfa aö gera allt sjálfar Bíður okkar kvenna hér á Islandi önnur lausn í atvinnumálum okkar en að byrja sjálfar að skapa okkur atvinnutækifæri ? Hvað með allar þessar prjóna- og saumastofur á landinu sem standa auðar og ónotaðar og allar kon- umar sem ganga atvinnulausar - geta þær ekki sameinast, fundið upp á arðvænlegri framleiðsluvöm og skapað 7

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.