Fréttabréf - 01.08.1989, Blaðsíða 9
7. október sl. Tók undirrituð að sér að
það hlutverk, hvött af stöllum sínum
innan samtakanna - hún væri nú ein af
fáum konum í Kvennalistanum sem
legði stund á viðskipti og ætti því heima
í þessum félagsskap!!
Þessar erlendu konur voru töluvert
“kvennalistalegar” - Þið vitið að það
þarf að hafa þetta sérstaka loftnet fyrir
kvennatíðnina, þennan skilning að þegar
konur tala saman í hópi þá er það
öðruvísi, til þess að stofna kvennaklúbb
í viðskiptum, í stað þess að ganga í
karlaklúbba sem em jú “opnir konum”.
Ræðan mín fjallaði um tilvist
Kvennalistans á Alþingi íslendinga og
afstöðu hans til umhverfismála. Ekki
þurfti ég að kvarta yfir undirtektunum.
Konumar voru einna hrifhastar af því
hvað við lögðum beina áherslu á
kvenlegar forsendur (sem ég skýrði
nokkuð ýtarlega) og kraftinn í okkur að
endast í daglegu amstri þess karlaheims
sem stjómmálin eru með
kvennaforsendumar að leiðarljósi.
Seinna sama dag og mín ræða var á
dagskrá hafði ég móttöku sjálf þar sem
mættu 30 konur (af þeim 120 konum
sem vom á ráðstefnunni) og héldu
áfram að ræða málin.
Á ráðstefnu C200 fluttu einnig erindi
og ávörp fulltúi SÞ, umhverfismála-
ráðherrann í Kanada og fleiri ráðherrar
svo og borgarstjóri Montreal en síðast
en ekki síst C200 konumar sjálfar sem
vom með athyglisvert efni af ýmsu tagi
bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Þegar þessari ráðstefnu var lokið var
ég eiginlega bara hálfnuð með erindi
mitt til Kanada. Concordiaháskólinn er
einn af 4 háskólum í Montreal. Þar er
sérstök kvennafræða og menntadeild
kennd við Simone de Beauvoir. Þar
skildi ég verða að einhverju liði í þágu
kvenna.
Það er siður í þessari deild að fá
fyrirlesara sem reka á fjömr til að hafa
fræðslufúnd í hádeginu auk þess að
flytja fyrirlestra. Konur sem vinna í
nágrenni skólans sækja þessa fyrirlestra
í síauknum mæli í hádegishléi sínu og
svo koma auðvitað námsmeyjar skólans
og fleiri konur. Þama var ég með
tveggja tíma efni, en um kvöldið var
svo brostið á með ræðuna góðu í annað
sinn en nú í sal sjálfs skólans. Margar
konur komu á báða staðina og
undirtektir vom frábærar. Eg vil geta
þess hér að upplýsingar um þennan
skóla, ekki síst kvennadeildina em til á
skrifstofu Kvennalistans ásamt fleiri
gögnum úr ferðinni.
Umræður og fyrirspumir eftir
kvöldræðuna vom næstum allar um það
sama, aukin hemaðammsvif í Kanada.
Um það getið þið lesið í fréttabréfinu
síðar.
Eftir þessa vinnu mína í Kanada
lagði ég land undir fót og ferðaðist
suður Bandaríkin alla leið til Bahamas á
alþjóðaráðstefnu IFBPW (Intemational
Federation of Business and Professional
Women) en slíkur klúbbur hefur starfað
í Reykjavík í 10 ár. Þar vom fyrir tvær
aðrar BPW konur Helga Thorberg
leikkona og Þórdís Guðmundsdóttir
endurskoðandi og skyldum við stöllur
kynna okkur starfsemi alþjóðlega
kvennabankans sem var kynnt á
ráðstefnunni. Hér með skora ég á BPW
forsetann og Kvennalistakonuna Helgu
Thorberg að fylgja þessu máli eftir og
ekki trúi ég öðru en þar sem ég set
punktinn núna taki hún upp penna til að
konur um allt land geti lesið um þetta
stórmerkilega fyrirbæri í fréttabréfinu.
Hér hef ég stiklað á stóm um ferð
mína til Kanada og það sem henni
fylgdi og hef ég þessar línur ekki fleiri,
en býð þeim konum sem langar til að
vita meira að hafa samband við mig.
Guðný Guðmundsdóttir
9