Fréttabréf - 01.08.1989, Qupperneq 10
Frá Austurlandsanga, Egilsstöðum
Kvennalistakonur á Egilsstöðum
hafa þann sið að hafa félagsfund fyrsta
laugardag hvers mánaðar. Desember-
fundurinn var því eins og vera ber
laugardaginn 2.desember. Á fundinn
kom góður gestur, Guðrún Jónsdóttir,
uppeldisfulltrúi en hún sagði
fundarkonum frá ráðstefnunni “Upp úr
hjólförunum” sem hún sótti í haust. Það
vöknuðu ýmsar hugmyndir á fundinum
og m.a. að kynna þyrfti niðurstöðumar
fyrir foreldrafélögum í skólunum á
Egilsstöðum.
Næsti fundur á Egilsstöðum verður
laugardaginn 13.janúar, athugið að það
er annar laugardagur í janúar en ekki sá
fyrsti.
Kvennaguðfræði í
febrúar
Febrúarfundur angans verður
laugardaginn 3.febrúar og þar mun
mæta séra Jóna Þorvaldsdóttir, prestur í
Neskaupstað. Hún ætlar að fjalla um
kvennaguðfræði. Það er ljóst hvar
félagsfundimir í janúar og febrúar
verða, en þið fylgist bara með
auglýsingum.
Arnljót Eysteinsdóttir/SJ
Nefnd um byggðamál
I byrjun október óskaði
forsætisráðherra eftir tilnefningu
Kvennalistans í nefnd sent á að gera
tillögur um nýjar áherslur og
langtímastefnu í byggðamálum á
gmndvelli skýrslu Byggðastofnunar.
Allir þingflokkar vom beðnir að tilnefna
í nefndina. Skýrslan sem vísað er til var
unnin hjá Byggðastofnun og hefur ekki
verið gefin út. Þingflokkur
Kvennalistans tilnefndi Snjólaugu
Guðmundsdóttur, húsmóður, Brúarlandi
í nefndina. Að því er við best vitum
hefur nefndin ekki komið saman.
Sigrún Jónsdóttir
Fulltrúaskipti í
tryggingaráði
Kvennalistinn á fulltrúa í
tryggingaráði og hefur Guðrún
Agnarsdóttir setið þar fyrir okkar hönd
sl. tvö ár, varakona hennar hefur verið
Sigríður Lillý Baldursdóttir. Nú hefur
verið skipt og Sigga Lillý er orðin
aðalfulltrúi og Guðrún til vara.
Sigríður Dúna til
Montreal
Eins og lesendur fréttabréfsins hafa
eflaust tekið eftir þá var auglýst mjög
spennandi ráðstefna í Montreal í
Kanada á næsta ári í síðasta fréttabréfi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er “Konur og
margar víddir valdsins”. Á fundi
framkvæmdaráðs þann 30.nóvember sl.
var valið úr umsækjendum og fulltrúi
okkar verður Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir.
10