Fréttabréf - 01.08.1989, Page 13
Áskorun til
heilbrigðisráðherra
og læknanna ellefu
Ekki láta konur deigan síga þrátt
fyrir mótbyr í borgarstjóm Reykjavíkur.
Hópurinn sem undirbjó fundinn á
Borginni hittist á laugardag 9.12. til að
ákveða hvað gera skuli í stöðunni. Nú
er búið að semja heljarmikla
greinargerð til heilbrigðisráðherra, þar
sem við færum rök fyrir andstöðu okkar
við meirihluta borgarstjómar, ásamt
með áskorun og undirskriftalistum, þar
sem skorað er á ráðherra að veita
læknunum ellefu ekki starfsleyfi í
húsnæði Fæðingarheimilisins. Það má
bæta því við að bæði landlæknir og
borgarlæknir hafa gefið í skyn að þeir
munu mæla gegn leyfisveitingu við
ráðherra. Við sem að þessari aðgerð
stöndum erum mátulega bjartsýnar og
afskaplega spenntar. Það skyldi þó
aldrei fara svo að konur næðu sínu fram
svona einu sinni.
Áskorun til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra
Til að mæta brýnni þörf um aukna
þjónustu við fæðandi konur í Reykjavík
skorum við undirrituð á heilbrigðis- og
trygginamálaráðherra að veita ekki
starfsleyfi til fyrirhugaðrar starfsemi 11
lækna íhúsnæði Fæðingarheimilisins
við Þorfmnsgötu. Stofnun
Fæðingarheimilis Reykjavíkur var svar
við kalli tímas um aukna og bætta
þjónustu við fæðandi konur eða öllu
heldur verðandi foreldra. Aukin
starfsemi Fæðingarheimilisins er svar
við kalli tímans nú. Einfaldasta lausnin
til þess að tryggja góða
fæðingarþjónustu í borginni er að taka
aftur í noktun aðra hæð
Fæðingarheimilisins fyrir sængurkonur.
Það er grundvöllur þess að bæði
Fæðingarheimilið og Fæðingardeild
Landspítalans geti sinnt sínum
hlutverkum.
Áskorun til læknahóps sem hyggst
nýta húsnæði Fæðingarheimilis
Reykjavíkur
Við undirrituð látum í ljós þá ein-
dregnu ósk að þið hættið við áform um
að taka á leigu húsnæði
Fæðingarheimilis Reykjavíkur að
Þorfmnsgötu.
Brýn þörf er á aukinni þjónustu við
fæðandi konur í Reykjavík. Því veldur
mikil fjölgun fæðinga og þ.a.l. gífurlcgt
álag á Fæðingardeild Landspítalans.
Einfaldasta lausnin til þess að
tryggja góða fæðingarþjónstu í borginni
er að taka aftur í notkun aðra hæð
Fæðingarheimilisins fyrir sængurkonur.
Það er grundvöllur þess að bæði
Fæðingarheimilið og Fæðingardeild
Landspítalans geti sinnt sínum
hlutverkum.
Stofnun Fæðingarheimilis
Reykjavíkur var svar við kalli tímans
um aukna og bætta þjónustu við
fæðandi konur eða öllu heldur verðandi
foreldra. Aukin starfsemi
Fæðingarheimilisins er svar við kalli
tímans nú. Við skomm á ykkur að koma
ekki í veg fyrir það.
Ingibjörg Hafstaö
n