Fréttabréf - 01.08.1989, Síða 15
var starfræktur kvennaskóli í
Kvennalistahúsinu í Borgamesi. Fyrst
kom Kristín Ástgeirsdóttir og fræddi
okkur um sögu kvenna frá örófi alda.
Það er sko ekkert smávegis sem
kvenþjóðin hefur þurft að afbera í
árþúsundir. Kristín hreif okkur með sér í
gegnum aldimar, fyrst mæðraveldið,
síðan nomabrennumar og loks uppreisn
kvenna og allt það sem henni fylgdi
o.s.frv. o.s.frv. Þetta var bæði spennandi
og fróðlegt. Eg var alveg búin að
gleyma því hvað það er gaman að vera í
skóla. Þennan dag mættu 15 konur.
Seinni daginn var það Helga
Siguijónsdóttir, sem var kennslukonan.
Ekki var hún síðri en Kristín. Helga
sagði okkur frá baráttunni síðustu ára-
tugina og opnaði augu okkar fyrirýmsu
sem áður var á huldu. Því miður voru
ekki nema 9 konur þennan dag, en
foreldrafundur á Varmalandi og
námskeið hamlaði konum sem annars
hefðu mætt. Ég er strax farin að hlakka
til 13.janúar nk. þá verður Sigríður
Dúna kennslukonan. Vonandi komist
þið sem flestar héðan úr Vestur-
landsanga. Þið hafið þegar misst af
miklu. Sumar ykkar hafa heldur ekki
prófað nýju stólana okkar sem hún
Inger af sinni alkunnu hagsýni fékk á
góðum kjömm í haust.
Okkar bestu jóla- og nýársóskir til
kvenna í öllum öngum.
Svava
Gefið börnunum ekki ofbeldis-
leikföng
Á félagsfundi Reykjanesanga 5.desember sl. var m.a.
rætt um aukið ofbeldi í samfélagi okkar sem og hið stöðuga
ofbeldi sem bömin okkar sjá í fjölmiðlum. í framhaldi af
þeirri umræðu var samþykkt ályktun um að skora á
aðstandendur bama að gefa ekki ofbeldisleikföng í jólagjöf.
Til áskrifenda - latið vita
um breytt heimilisföng
Því miður er alltof algengt að við
fáum endursendan töluverðan fjölda af
fréttabréfum vegna þess að viðtakandi
er fluttur og ekki vitað hvert. Við
reynum að grafast fyrir um það hvert
konumar okkar hafa flust, en því miður
gengur það ekki alltaf upp. Konur eru
t.d. ekki skráðar í símaskrá og það
torveldar okkur leitina. Því viljum við
biðja áskrifendur sem þetta lesa að láta
okkur endilega vita um ný og breytt
heimilisföng, annars fáið þið ekki bréflð
ykkar. Þið getið hringt í s. 91-13725,
Laugaveg 17 eða í s.91-11560 Alþingi.
Starfskonur
15