Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 2

Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 2
4 Hjá Pallett Kaffikompaníi bjóða David og Pálmar upp á sælkerakaffi og ljúffengan heimilismat. 22 Bóksalar borgarinnar segja frá því sem þeir hlakka mest til að lesa í vetur. 2 | MORGUNBLAÐIÐ 16.10.2015 Íslenskur vetur er ekkert grín. Íslenskur vetur getur verið háalvarlegt mál sem getur orðið mönnum að fjörtjóni sem bera ekki tilhlýðilega virðingu fyrir aðstæðum. Þetta er allt saman þekkt. Partur af prógramminu hjá þeim sem landið byggja og dveljast hér á ársgrundvelli. Undan því má kannski kvarta þegar öskrandi bylur færir allt á bólakaf og engin leið er að komast eitt eða neitt. Það felast samt sem áður tækifæri í öllum ógnunum, og svo er líka með veturinn. Er eitthvað sem toppar íslenska kjötsúpu sem búin er að malla á vægum hita síðan í morgun? Jú, kannski – kjötsúpan sem búin er að malla síðan í gær. Falleg kerti sem gefa bæði birtu, yl og jafnvel ljúfan ilm gera kraftaverk fyrir heimilið á veturna. Góð bók er ómissandi yfir myrkustu mánuðina og helst nokkrar, meira að segja. Og gleymum ekki að hugsa vel um stærsta líffærið, sjálfa húðina; það er alveg nauðsynlegt að dekra sig ærlega í gegnum veturmánuðina með til þess gerðum húðvörum. Veturinn? Það er alls ekkert víst að hann klikki. Nöturlegt eða notalegt? Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is Guðrún S. Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók RAX Prentun Landsprent ehf. 14 Falleg kerti eru kjörin til að lýsa upp heimilið þegar skammdegið leggst yfir. 17 Íslenska ullin er aldrei betri en á veturna enda býr hún yfir einstökum eiginleikum. 20 Silkimjúk krem og serum til að dekra við húðina þegar veður gerast válynd. 6 Íslenska kjötsúpan er besta leiðin til að bjóða veturinn velkominn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.