Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 8
R
ut er Akureyringur í húð og
hár, alin upp í þeim hluta
bæjarins sem heimamenn
kalla Þorpið. „Ég er því
hreinræktaður Þorpari,“ segir hún
og hlær við. Þar ólst hún upp og býr
ennfremur í dag. Heimakær Þorp-
ari, hún Rut.
Rut tók við starfi veitingastjóra
hjá Icelandair hótel Akureyri fyrir
um hálfum mánuði en hefur unnið
hjá hótelinu síðastliðin tvö ár og
þekkir því vel til á
staðnum. Og henni líst
ljómandi vel á nýja
veitingastaðinn, sem
nefnist Aurora.
„Staðurinn er ein-
staklega fallegur,
hannaður af Guðbjörgu
Magnúsdóttur arki-
tekt. Lykiláhersla inn-
andyra er á norður-
ljósin enda eru þau
órjúfanlegur hluti upp-
lifunarinnar sem heimsókn hingað á
veturna er. Aurora snýr út í verð-
launaðan bakgarð sem er með þá
sérstöðu að bjóða upp á frábæra að-
stöðu fyrir þá sem vilja njóta þess að
drekka „aprés ski“-drykki við opinn
eld úti eftir góðan dag í brekk-
unum.“
Skíðabærinn Akureyri
Rut er nefnilega skíðakona mikil
og það er ekki að undra að eitt það
fyrsta sem Rut nefnir, þegar talið
berst svo að margþættu aðdrátt-
arafli Akureyrar yfir veturmán-
uðina, sé sú staðreynd að bærinn er
skíðaparadís. „Ég er skíðakona, og
æfði skíði í tólf ár,“ segir hún. „Ég
þekki margt fólk, meðal annars
helminginn af mínu fólki sem býr í
Garðabæ en kemur mikið hingað
norður á skíði.“
Nægur snjór í Hlíðarfjalli, eins og
þar stendur.
„Oftast nær, að minnsta kosti,“
bætir Rut við. Þess utan segir Rut
að Akureyri sé að sínu mati einfald-
lega sérlega fallegur staður, við ein-
staklega fallegan fjörð.
„Hér er líf og fjör á vet-
urna, ekki síst þegar
snjórinn er kominn og
Hlíðarfjall opnað. Þá er
ferðamannastraum-
urinn mikill og allt að
gerast. Þá má ekki
gleyma að norðurljósin
lýsa reglulega upp him-
ininn hjá okkur á þess-
um tíma. Að koma hing-
að á skíði yfir veturinn
og skoða norðurljósin um leið er frá-
bær upplifun, og þá er auðvitað til-
valið að gista hjá okkur,“ skýtur hún
inn í og brosir við. Hún nefnir enn-
fremur að taka megi rútuna frá hót-
elinu beint upp í fjall, þar sem ýmiss
konar skíðatilboð eru jafnan í gangi.
Menning og matur fyrir alla
„En í stuttu máli tel ég að Ak-
ureyri sé einstaklega fallegur bær á
veturna, þegar snjór liggur yfir í
skammdeginu og stjörnubjartur
himinn yfir. Burtséð frá skíðum og
skautum er hér kraumandi menning
í gangi allan ársins hring. Það eru
nánast alltaf tónleikar á Græna hatt-
inum og sífellt fleiri kaffihús eru
opnuð – ég held að það séu ein þrjú
eða fjögur sem hafa sprottið upp
seinasta árið. Hér er fullt af flottum
gististöðum og Icelandair-hótelið
nýtur þess að vera frábærlega stað-
sett í bænum. Eftir góða ferð í fjallið
er upplagt að fara í sund, og laugin
er bókstaflega við hliðina á hótelinu,
hinum megin við Þingvallastrætið.“
Rut bendir ennfremur á nýja veit-
ingastaðinn á Icelandair-hótelinu, en
hann nefnist Aurora, sem er bein til-
vísun í latneskt heiti norðurljósanna,
aurora borealis. „Staðurinn kemur
virkilega vel út og fellur mjög vel í
kramið, bæði hjá gestum og heima-
mönnum. Staðurinn er sterk viðbót
við þjónustu hótelsins og þar getum
við komið til móts við óskir mjög
breiðs hóps viðskiptavina því úrvalið
á matseðlinum er afskaplega gott.
Við erum með hádegisseðil, kvöld-
seðil og svo brunch á sunnudags-
morgnum með eggjum, beikoni og
ýmiss konar sætmeti, að ógleymdu
hinu sívinsæla High Tea.“
Hið hábreska High Tea
Hér er forvitni blaðamanns vakin
og hann spyr Rut nánar út í þessa
tilteknu leið til að gera vel við sig í
mat og drykk – hvað er eiginlega
þetta High Tea?
„High Tea er alveg frábært síð-
degiste og -kaffi, að breskri fyr-
irmynd, og er nýjung sem hefur
slegið í gegn hjá okkur. Þarna er síð-
degissnarl borið fram á þriggja
hæða platta, og þá eru bruschettur
með ferskum mozzarella, skinku,
osti og fleiru á neðstu hæðinni, og
svo verður snarlið sætara eftir því
sem ofar dregur,“ útskýrir Rut. „Á
miðhæðinni eru þrjár tegundir af
kökum og svo á þriðja og efsta platt-
anum eru makkarónukökur, konfekt
og ávextir með rjóma. Þetta er fal-
legt fyrir augað, ásamt því að bragð-
ast einstaklega vel, og svo fylgir te
og kaffi með. Fyrir þá sem vilja gera
sérstaklega vel við sig má fá sér glas
af freyðivíni með.“ Rut bætir því við
að High Tea sé mjög vinsælt meðal
hópa og vinir komi líka í miklum
mæli til að njóta þess enda sé breska
síðdegissnarlið kjörið til þess að
deila, og úr verði skemmtileg stemn-
ing. „Við erum því með marga fasta-
kúnna sem koma og fá sér High Tea
kannski einu sinni í mánuði.“ Það
hljómar því eins og ný hefð sé fædd
norðan heiða.
Á matarmarkaði í fyrsta sinn
Að endingu bendir Rut á að þessa
daga fer fram matamenningarhá-
tíðin Local Food Festival og þar er
stærsti einstaki viðburður hátíð-
arinnar Local Food-sýningin sem
fram fer á morgun, laugardaginn 17.
október, í Íþróttahöllinni kl. 12-18.
Þar gefst gestum kostur á að upplifa
fjölbreytnina í matvælaframleiðslu á
svæðinu, og kynnast um leið fram-
boði í veitingastarfsemi og mat-
artengdri ferðaþjónustu á Eyja-
fjarðarsvæðinu. „Á sýningunni erum
við á Aurora Restaurant með sýn-
ingarsvæði í fyrsta sinn og hlökkum
mikið til að vera með enda mikið lagt
í okkar framlag. Ég hvet því fólk til
að leggja leið sína á sýninguna,
skoða, smakka og gera síðan góð
kaup á norðlensku góðgæti,“ segir
Akureyringurinn Rut Pétursdóttir
hjá Icelandair hótel Akureyri að lok-
um.
jonagnar@mbl.is
Heillandi vetur norðan heiða
Það færist í vöxt að hugur landsmanna hvarfli norður í
land þegar vetur gengur í garð og heimsæki Akureyri í
skammdeginu. Í höfuðstað Norðurlands er líka allt að
finna sem hugurinn kann að girnast, segir veitingastjór-
inn Rut Pétursdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Veitingastjórinn „úrvalið á matseðlinum er afskaplega gott. Við erum með hádegisseðil, kvöldseðil og svo
brunch á sunnudagsmorgnum, að ógleymdu hinu sívinsæla High Tea,“ segir Rut Pétursdóttir.
Hótelið Icelandair hótel Akureyri bætti nýlega við þjónustuna með veit-
ingastaðnum Aurora. Auk rétta á matseðli má fá brunch og high tea.
’Akureyri ereinstaklegafallegur bær áveturna, þegarsnjór liggur yfir
í skammdeginu.
Hlýlegt Það er fallegt um að litast á veitingastaðnum Aurora sem Guðbjörg Magnúsdóttir
hannaði. Stóra veggmyndin af norðurljósunum kallast á við nafn veitingastaðarins.
Kræsingar Bragðgæði og hollusta eru leiðarljós matreiðslumeistaranna sem ráða ríkjum í
eldhúsi veitingastaðarins Aurora. Ekki veitir af enda vissara að næra sig vel á veturna.
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Laugavegi 87 • Sími 511 2004
Blúndu satínsettin
komin