Morgunblaðið - 16.10.2015, Síða 10

Morgunblaðið - 16.10.2015, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Á næsta leiti eru mánuðir íss og kulda, slabbs og snjóskafla. Fyrir marga munu dagarnir byrja á því að arka í gegnum snjóinn sem féll um nóttina, sópa mestu mjöllina af bílnum og skrapa rúðurnar hrein- ar. Því næst setjast þeir inn í ískaldan bílinn, aka af stað og bíða þolinmóðir eftir því að farþegarým- ið verði heitara. Til að koma í veg fyrir enn meiri leiðindi er eins gott að tryggja að bíllinn sé tilbúinn undir veturinn og taki t.d. ekki upp á því einn kaldan morguninn að neita að fara í gang, eða sitja pikk- fastur í hálku. Ívar Ragnarsson er þjónustu- stjóri Bílabúðar Benna og veit ým- islegt um það hvernig á að stand- setja bílinn fyrir köldustu mánuði ársins. Hann segir algjört lykil- atriði að huga að dekkjunum enda öryggisatriði að vera á dekkjum sem henta veðurfarinu. „Þar stend- ur valið á milli vetrardekkja með gróft mynstur, harðskeljadekkja og svo nagladekkja og ræðst það af þörfum hvers og eins hvað best er að velja. Eru margir hættir að telja sig þurfa sig þurfa nagladekk- in, sér í lagi ef ekki þarf að aka út fyrir höfuðborgarsvæðið á snjó- þungum dögum.“ Eins og flestir lesendur ættu að vita hafa nagladekkin þann kost að grípa betur í hálku. Harð- skeljadekkin, sem eru oftast gerð úr gúmmíblöndu sem inniheldur agnir af hnetuskel, grípa ekki með sama hætti en henta vel við ákveð- in skilyrði. „Það mætti kannski líkja áhrifunum við það að hafa fín- an sandpappír á dekkjunum en þegar strokið er yfir dekkin má greina skeljaagnirnar í gúmmíinu. Valda þessi dekk minna sliti á veg- um en nagladekkin en geta haft gott grip í hálku.“ Viðbúin hálkunni Ívar minnir líka á mikilvægi þess að fylgjast með loftþrýstingi í dekkjunum á veturna. Rangur loft- þrýstingur kann ekki aðeins að stytta endingartíma dekkjanna heldur líka koma niður á gripi og aksturseiginleikum. Keðjur eru óþarfi fyrir venjulega fólksbíla en aftur á móti geti verið skynsamlegt að geyma í skottinu poka af katta- sandi eða þar til gerðar mottur sem má bregða undir dekkin ef bíllinn tekur að spóla á ís. „Sumir leysa málin jafnvel með því að taka gúmmí-gólfmottu úr bílnum og setja undir dekkið.“ Þá hjálpar líka til við aksturinn ef dekkjunum er haldið hreinum því óhreinindi geta stundum safnast fyrir í mynstrinu á dekkinu svo það grynnkar og nær minna gripi. „Ef snjór er á götum er nóg að úða tjöruhreinsi á hjólabarðana og aka af stað og þá hreinsast óhreinindin af með snjónum.“ Þarf meiri orku í kulda Ekki síður mikilvægt er að at- huga ástand rafgeymisins. Að sögn Ívars hafa rafgeymar takmarkaðan endingartíma og má reikna með að þurfa að fjárfesta í nýjum rafgeymi á 3-5 ára fresti, eftir því hversu mikið bílnum er ekið. „Fólk kemst oft í gegnum sumarið á slöppum rafgeymi en þegar kólnar í veðri þarf meiri orku til að koma bílnum í gang og ef rafgeymirinn er tæpur gæti hleðslan á honum ekki dugað til. Við verðum mjög greinilega vör við það á þjónustuverkstæðinu okk- ar að um leið og fyrsta alvöru frost- nóttin kemur þá koma bíleigendur unnvörpum hingað með bilaða raf- geyma.“ Bílar eru ekki enn svo fullkomnir að geta varað við því þegar raf- geymirinn er farinn að veiklast og segir Ívar að ekkert komi í staðinn fyrir að mæla rafgeyminn á verk- stæði. Það sé einföld aðgerð sem litla stund taki að klára meðfram öðrum undirbúningi fyrir veturinn. Rúðuþurrkurnar mega ekki held- ur gleymast enda enginn skortur á snjó, rigningu og óhreinindum yfir vetrartímann á Íslandi. Ívar segir stundum duga að þrífa þurrkublöð- in en ekki kosti mikið að kaupa ný blöð ef þess þarf. „Um leið þarf að fylla á rúðuvökvann og ganga úr skugga um að hann sé frostþolinn. Kælivökvinn á bílnum verður líka að þola frostið, og er hann nær undantekningalaust frostþolinn, nema ef ske kynni að kannski hafi þurft að bæta á vatni í sumar því ekkert betra var tiltækt.“ Ljós í myrkrinu Ljósin þurfa líka að vera í lagi og ekki seinna vænna að skipta um sprungnar perur. „Þegar myrkrið skellur á er áríðandi að öll ljósin skíni vel, bæði ökuljós, stefnuljós og bremsuljós, bæði svo bíllinn sjá- ist og svo að bílstjórinn sjái vel fram á veginn.“ Síðan þarf að tryggja að ákveðin áhöld séu til staðar í bílnum. Kröft- uga sköfu má t.d. ekki vanta og segist Ívar sjálfur passa upp á að hafa gott vasaljós í hanskahólfinu. „Á veturna eru birtustundirnar færri en rökkurstundirnar og ef eitthvað kemur upp á er ekki víst að bíllinn drepi á sér beint undir ljósastaur. Með vasaljósi er hægt að sjá hvað er að gerast undir húddinu eða undir bílnum þó dimmt sé úti.“ Loks er bæði þæginda- og örygg- isatriði að hafa hlýjan fatnað í bíln- um. „Ég hef það fyrir reglu að geyma húfu og vettlinga í bílnum á veturna og fleiri hlýjar flíkur ef hægt er. Það hefur líka bjargað mörgum að hafa góða kuldaskó í skotinu og þá hægt að hlífa spari- skónum ef þarf að fara út að moka og ýta. Sólgleraugun verða líka að vera innan seilingar enda sólin lágt á lofti og virðist einhvern veginn alltaf skína beint í andlitið á manni, sama í hvaða átt bílnum er ekið.“ ai@mbl.is Ívar mælir með því að fara inn í veturinn á vel bónuðum bíl og að bíllinn fái þá „alvöru bón“ en ekki bara fljótandi bón úr næstu bílaþvottastöð. „Bónið getur veitt lakkinu mikla vernd fyrir þeim óhreinindum og skemmandi efn- um sem eru á götunum á veturna,“ segir Ívar og bendir á að við sama tæki- færi geti verið upplagt að bera sílíkon á þéttilista og fjárfesta í lásaspreyi. „En þess þarf þá að gæta að geyma lásaspreyið ekki inni í bílnum heldur inni á heimilinu. Þannig er spreyið tiltækt ef það gerist einn morguninn að lásinn vill ekki bifast.“ Aktu undirbúinn út í veturinn Rétt er að láta kíkja á raf- geyminn áður en tekur að kólna. Slappir rafgeymar geta dugað yfir sumarið en fara að gefa sig á köldustu morgnunum. Þjóðráð er að hafa í bílnum vasaljós, kuldaskó og hlýjan fatnað ef eitthvað skyldi koma upp á. Morgunblaðið/Eva Björk Grip Ívar Ragnarsson gætir þess að mynstrið á dekkjunum fyllist ekki af óhreinindum. Ef snjór er á vegum dugar að úða tjöruhreinsi á dekkin og aka svo af stað og hreinsast dekkin þannig. Bónið verndar lakkið Vertu viðbúin vetrinum...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.