Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 12
Á
Íslandi litast lífið og
stemningin af árstíðunum,
þar sem ákveðin verk og
hefðir tengdar mat fylgja
hverjum árstíma. Flestir leita að
sömu uppskriftum og leiðbeiningum
um matargerð ár eftir ár og þess
vegna fannst okkur upplagt að safna
árstíðabundnum upplýsingum sam-
an í litla stemningskafla,“ segja
mæðgurnar og matgæðingarnir Sól-
veig Eiríksdóttir og Hildur Ársæls-
dóttir um nýja bók sína, Himneskt –
AÐ NJÓTA, en hún geymir fjölda
spennandi uppskrifta að girnilegum
og hollum mat, ásamt fróðleik um
umhverfisvænan lífsstíl.
„Þessi bók er ætluð
öllum sem langar til að
eiga skemmtilegar
stundir í eldhúsinu, elda
fallegan og góðan mat og
njóta afrakstursins. Um
leið viljum við hvetja sem flesta til að
neyta gómsætrar fæðu úr jurtarík-
inu í meira mæli. Haustið er hátíð
uppskerunnar og við leggjum
áherslu á að nýta íslenska grænmet-
ið og villtu berin. Við sultum og sýr-
um fyrir veturinn; í uppvextinum hjá
mömmu/ömmu Hildi og pabba/afa
Eiríki var það eðlilegur hluti af til-
verunni og áhuginn hefur bara auk-
ist með árunum hjá okkur báðum. Í
bókinni erum við með matseðil fyrir
jólin og hugmyndir fyrir jólabakst-
urinn, en líka vor- og sumarlegar
uppskriftir eins og íspinna, grill-
veislu og lautarferð. Við deilum
uppáhaldsuppskriftunum okkar og
bjóðum upp á morgunmat, nesti,
hversdagsmáltíðir, veislurétti og
ómótstæðilega eftirrétti.“
Villt og lífrænt
Sólveig, betur þekkt sem Solla í
Gló, hefur áratuga reynslu sem veit-
ingakona, heilsu- og hráfæðiskokkur
og Hildur er með BS-gráðu í nær-
ingarfræði. Mæðgurnar deila áhug-
anum á heilsusamlegu mataræði, líf-
rænum lífsstíl og umhverfisvernd og
halda saman úti skemmtilegu matar-
bloggi, Mæðgurnar, þar sem áhersl-
an er lögð á hollan, ferskan og fal-
legan mat, einkum úr jurtaríkinu.
Spurðar út í kveikjuna að þeirra
fyrstu sameiginlegu bók segja þær
hugmyndina sprottna út frá Mæðg-
unum. „Það kom okkur báðum á
óvart hvað við höfum mikla ánægju
af því að blogga um mat. Með skrif-
unum uppgötvuðum við að okkur
liggur ýmislegt á hjarta sem við vilj-
um deila með öðrum. Okkar styrk-
leiki felst í matreiðslu hráefnis úr
jurtaríkinu. Í uppeldi okkar beggja
var íslenskt grænmeti meg-
inuppistaða allra máltíða, við þekkj-
um ekki annað og það
endurspeglast í bókinni.
Við notum bæði villt,
heimaræktað og að-
keypt íslenskt hráefni,
og lífrænt eins og kostur
er. Við ólumst upp við
lífrænt heimaræktað grænmeti;
þegar mamma/amma Hildur var
spurð af hverju lífrænt sagði hún að
ef við notuðum heilbrigða skynsemi
þá vissum við svarið. Lífræn ræktun
hjálpaði móður náttúru að viðhalda
heilbrigðum jarðvegi og þannig
gætu komandi kynslóðir líka notið
þess að borða holla og næringarríka
uppskeru.“
Græn áhrif
Með bókinni vilja Hildur og Sól-
veig hvetja til aukinnar neyslu
grænmetis og annarrar hollustu úr
jurtaríkinu og segja allt mæla með
því. „Sérfræðingarnir hjá Embætti
landlæknis telja að við Íslendingar
hefðum heilsufarslegan ávinning af
því að auka neyslu á jurtaafurðum.
Svo er það líka gott fyrir umhverfið
að draga úr kjötneyslu og auka vægi
jurtafæðis. Uppskriftirnar okkar má
þó að sjálfsögðu nota sem innblástur
fyrir hvaða mataræði sem er.“
Þær mæðgur hafa báðar tileinkað
sér umhverfisvænan lífsstíl og í bók-
inni er að finna ýmsan fróðleik þar
að lútandi. „Við erum svo heppnar
að hafa alist upp við mikla umhverf-
isvitund og tölum frá eigin brjósti,
en látum lesendum líka í té hollráð
héðan og þaðan, sem við höfum viðað
að okkur í gegnum árin.
Við höfum báðar gert tilraunir
með ýmiss konar ræktun, bæði inni
og úti, og miðlum af eigin reynslu í
bókinni okkar. Í sumar ræktuðum
við til dæmis fjórar tegundir af
grænkáli úti í garði, tvær tegundir af
spínati, ásamt fjölmörgum salatteg-
undum sem voru í litlum krúttlegum
fræpoka sem fannst í lítilli, lífrænni
verslun í Kaliforníu. Ýmislegt annað
prýddi grænmetisbeðin okkar þetta
árið, þar á meðal fennel, sellerí, gul-
rætur, þrjár tegundir af rauðrófum,
brokkolí, tómatar og steinselja.“
Best úr skál
Meðal fjölbreyttra og freistandi
uppskrifta í bók mæðgnanna eru
þeirra eigin eftirlætisréttir. „Uppá-
haldsuppskriftin mín er Dal, ind-
verskur linsubaunaréttur, og ég deili
henni,“ segir Hildur. „Ég hef haldið
upp á Dal frá því að ég man eftir mér
og hef eldað þann rétt og borðað ótal
sinnum. Þetta er svo einfaldur en
um leið næringarríkur og saðsamur
matur, bragðgóður og barnvænn.“
Sólveig kveðst vera hrifnust af
mat úr skálum, eins og finna megi í
bókinni, og útskýrir það nánar. „Mér
finnst svo notalegt að borða góðan
mat upp úr fallegri skál, stemningin
verður allt önnur en þegar borðað er
af diski. Ég skelli oft góðgæti í skál
þegar mig langar í fljótlega en nær-
ingarríka máltíð; passa upp á gott
jafnvægi með próteini, kolvetnum,
grænmeti, ávöxtum og góðri dress-
ingu. Matur í skál er í mínum huga
fullkomin máltíð og ég elska vellíð-
unina sem fylgir þegar ég hef kyngt
síðasta bitanum og finn orkuna
flæða um allan kroppinn.“
Haustleg bláberjapæja
150 g tröllahafrar
150 g spelt, t.d. fínt og gróft til helm-
inga
50 g kókosmjöl
1 tsk. vínsteinslyftiduft
2 dl kókosolía
1 dl hlynsíróp
2 dl bláberjasulta (helst heimalöguð)
2 dl bláber
Blandið þurrefnunum saman í
skál, hrærið saman kókosolíu og
hlynsíróp og blandið út í þurrefnin.
Þjappið 2/3 hluta af deiginu í smurt
tertuform, þekið með sultunni, strá-
ið berjunum yfir og myljið loks rest-
ina af deiginu yfir. Bakið við 180°C í
um 30 mín.
Baunabuff
50 g spínat
200 g soðnar/bakaðar kartöflur, líka
hægt að nota sætar kartöflur
200 g soðnar kjúklingabaunir
50-75 g jurta- eða fetaostur
½ tsk. cumin-duft
1 tsk. karríduft
¼-½ tsk. salt
¼-½ tsk. reykt paprika
Blandið öllu saman í hrærivél eða
matvinnsluvél. Mótið buffin með ís-
kúluskeið og bakið í ofni við 200°C í
15-20 mín.
Grænn djús
1 vænn hnefi spínat eða grænkál
½ agúrka, í bitum
2 sellerístönglar
1 límóna, afhýdd
5 cm biti fersk engiferrót
nokkrir myntustönglar
1-2 lífræn epli
3-4 límónulauf
2 dl vatn
Allt sett í blandara og blandað
saman. Sigtað í gegnum spírupoka
og djúsinn er tilbúinn.
RAW Brownie með synd-
samlega góðri saltri karamellu
2 bollar valhnetur
1 bolli kakóduft
¼ tsk. sjávarsalt
2 ½ bolli döðlur, steinlausar
1 bolli pistasíur, gróft saxaðar
Setjið valhnetur, kakóduft og salt
í matvinnsluvél og blandið þar til
orðið að brúnu mjöli, bætið döðl-
unum út í, einni í einu á meðan mat-
vinnsluvélin er í gangi á lægsta
hraða. Setjið í skál.
Bætið grófsöxuðum pistasíum út í
skálina, blandið létt saman, þjappið
deiginu loks í form og stingið í frysti
á meðan þið búið til karamelluna.
Karamellukrem
2/3 dl hlynsíróp
1/3 dl kókosolía
2 msk. möndlusmjör
1 tsk. vanilla
1⁄4 tsk. turmerik
Allt sett í blandara og blandað vel
saman. Hellið út á kökuna og setjið
smástund inn í ísskáp eða frysti á
meðan kremið er að stífna.
beggo@mbl.is
Hollt og gott með haustinu
Mæðgurnar Sólveig Eiríksdóttir og Hildur Ársælsdóttir
deila áhuganum á heilsusamlegu mataræði og í nýútkom-
inni bók þeirra Himneskt – AÐ NJÓTA gefa þær uppskriftir
að heilnæmum og fallegum mat þar sem íslenskt græn-
meti er í aðalhlutverki og skírskotað er til árstíðanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úr náttúrunni „Við notum bæði villt, heimaræktað og aðkeypt íslenskt hráefni, og lífrænt eins og kostur er,“
segja mæðgurnar Sólveig Eiríksdóttir og Hildur Ársælsdóttir.’Við sultumog sýrumfyrir veturinn.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar