Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 14

Morgunblaðið - 16.10.2015, Side 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ Dagar myrkurs a Austurlandi 28. oktober - 1. november Kynnið ykkur dagskrána á east.is VISIT EAST ICELAND www.east.is / #easticeland F átt er notalegra þegar vetur gengur í garð en að sitja hreinn og fínn við kertaljós og ylja sér við hlýju þess og birtu. Fyrirtækið Sælusápur í Kelduhverfi framleiðir vinsæl kerti og auðvitað sápur líka eins og nafnið bendir til. Guðríður Baldvinsdóttir skógfræðingur rekur þetta fyrirtæki sem stofnað var 2008. „Fyrstu vörurnar frá Sælusápum fóru á markað rétt fyrir hrun, það voru sápur og við fengum við- urkenningu fyrir þróun viðskipta- hugmyndarinnar. Sápurnar okkur eru, eins og kertin, búnar til úr ís- lenskri tólg að töluverðu leyti. Þetta var raunar góður tími til að stofna sprotafyrirtæki því áhugi á íslensk- um vörum og hönnun jókst gríð- arlega haustið 2008,“ segir Guðríður Baldvinsdóttir, sauðfjárbóndi að Lóni í Kelduhverfi. Hvernig var vörum frá Sælusáp- um tekið? „Afskaplega vel. Við byrjuðum að selja fyrst á Húsavík og svo fór framleiðslan á flug. Fyrst í stað þurfti ég nánast ekki að auglýsa, sama haustið og framleiðslan fór á markað sendum við sápur í Heilsu- húsið og smám saman fóru ferða- mannaverslanir að átta sig á þessari vöru og taka hana í sölu.“ Hvenær komu kertin til sög- unnar? „Af því að við hjónin erum sauð- fjárbændur þá fellur til töluvert mikið af tólg og ég fór að hugsa um fleiri leiðir til að nýta tólgina. Tólgin var náttúrlega notuð í gamla daga í sápu og kerti auk þess sem fólk not- aði tólgina til matar. Tólgarkertin duttu nánast alveg út þegar paraf- ínkertin komu, en þau eru aukaafurð úr olíuframleiðslu. Tólgin hefur þann ókost að bræðslumarkið er mjög lágt og þess vegna er erfitt að gera hrein tólgarkerti til notkunar innan húss, þau verða fljótandi þeg- ar logað hefur á þeim í dálítinn tíma. Þess vegna fór ég að blanda tólgina með sojavaxi, þá hækkar bræðslu- markið. Ég sel tólgarkertin í gler- glösum og áldósum.“ Kertin eiga hvert sitt nafn Er þetta vinsæl framleiðsla? „Já, þetta eru svo skemmtileg kerti, þau brenna með eilítið daufari loga en venjuleg kerti, tólgin hefur þann skemmtilega eiginleika að varpa mildri birtu og kerti úr tólg brenna hægar en venjuleg kerti. Þessi kerti eru góð uppi á hillu og á stofuborði, varpa fallegri birtu auk þess sem þau gefa frá sér mildan ilm. Þau eru líka mjög skemmtileg í svefnherbergi og baðherbergi. Þau eiga hvert sitt nafn, heita Vinaglóð, Jólaglóð, Kvöldglóð og Sólarglóð. Kvöldglóðin er vetrarlegasta kertið en vorlegasta er Sólarglóð. Ég er ekki enn búin að gera sérstakt haustkerti, það verður næsta við- fangsefni.“ Hvernig nýtist þér menntun þín sem skógfræðingur í þessari fram- leiðslu? „Hún nýtist í sápugerðinni, skóg- fræðingar þekkja vel íslenskar jurtir og það er mikilvægt þegar verið er að velja jurtir í sápur. Þær jurtir sem ég nota eru til dæmis fjallagrös, sem ég er nú að fara að tína, svo nota ég blóðberg, hvönn, maríustakk og vallhumal og fleira. Af því að ég er skógfræðingur nota ég líka lerki- nálar og birki.“ En hvað með ilminn af kertunum? „Þar nota ég ilmolíur sem ég flyt inn frá Bandaríkjunum. Ég starfa sjálf við framleiðsluna en eig- inmaður minn, Einar Ófeigur Björnsson, sér um bókhaldið. Þetta hefur undið upp á sig, sérstaklega síðustu tvö árin í takt við fjölgun ferðamanna. Þetta er komið að þeim mörkum að það er rétt svo að við ráðum við þetta, – en það er stórt stökk að ráða starfsmann við lítið fyrirtæki.“ Fékk innblástur frá gamalli uppskrift Hefur þú hugað að útflutningi? „Bæði og. Fyrir mér er þessi markaður sem skapast hefur með fjölgun ferðamanna nægilegur eins og stendur. Það er miklu auðveldara að selja því fólki sem komið er til landsins. Útflutningur er hins vegar heljarmikið mál. Ferðamenn hér hafa áhuga á íslenskum vörum, það er öðruvísi erlendis. Þeir sem koma hingað hafa áhuga á því sem íslenskt er. Íslandspóstur sér um að koma vörunum út um allt land. Það gengur ágætlega.“ Hefur þú gamla uppskrift að sáp- unum þínum? „Já, ég á gamla uppskrift sem ég notaði sem innblástur þegar ég hóf framleiðslu á sápum. En gamla upp- skriftin byggist aðeins á tólg en ég nota margskonar olíur í sápurnar mínar. Þess má geta að hrein tólgar- sápa freyðir ekki og það fellur ekki í kramið, fólk vill að sápan freyði. Auk þess bæti ég ilmolíum í sápurnar, kókosolíu og ólífuolíu. En ég er líka með sápur sem ekki eru með neinum ilmolíum. Ég er líka að þreifa mig áfram við að nota geitartólg úr ís- lensku landnámsgeitinni. Það geng- ur mjög vel, það er skemmtilegt að vinna með þá tólg en mig vantar bara meira hráefni, geitur eru ekki algengar.“ Hefur þér dottið í hug að verða geitarbóndi? „Nei, skógfræðingum er ekki vel við geitur, þær eru miklu meiri skað- valdar í trjágróðri en sauðkindur. Þær sækja svo miklu meira í trjá- gróður en kindur.“ Er þetta dýr framleiðsla? „Nei, þetta er bara eins og með flestalla framleiðslu, launakostnaður er stærsti kostnaðarliðurinn. Kerta- og sápuframleiðslan er ekki fullt starf en það væri hægt að gera það að fullu starfi fyrir mig, þetta er spurning um val. Ég vil hins vegar ekki hætta afskiptum af sauð- fjárbúskapnum. Sælusápur eru mitt fyrirtæki en maðurinn minn er sauð- fjárbóndinn á bænum.“ gudrunsg@gmail.com Sælukertin varpa frá sér mildri birtu þetta eru svo skemmtileg kerti, þau brenna með eilít- ið daufari loga en venjuleg kerti, tólgin hefur þann skemmtilega eiginleika að varpa mildri birtu og kerti úr tólg brenna hægar en venjuleg kerti. Þessi kerti eru góð uppi á hillu og á stofuborði, varpa fallegri birtu auk þess sem þau gefa frá sér mildan ilm. Heimilissæla Guðríður Baldvinsdóttir á og rekur Sælusápur og fram- leiðir bæði sápur og tólgarkerti sem gleðja bæði hugann og hendina. Kósý Kertin bera ýmis nöfn sem eru jafn notaleg og þau sjálf. Stundum er smá glóð allt sem þarf. Birta Sælukertin eru falleg á kaffiborði og af þeim stafar notaleg birta sem er ávallt kærkomin þegar daginn tekur að stytta og veður kólna. Stáss Tólgarkertin eru líka til í þesum laglegu glerglösum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.