Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 1

Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 1
M Á N U D A G U R 2 6. O K T Ó B E R 2 0 1 5 GRIMMSÆVINTÝRI KOMIN ÚT Í NÝRRI ÞÝÐINGU SILJU KYNJA- KREPPA NJÓSNARANS SAMSTAÐA UM UPPBYGGINGU LAXNESSSETURS JAMES BOND 10 60 ÁR FRÁ NÓBELSVERÐLAUNUM 16GOTT OG ILLT 26 Stofnað 1913  251. tölublað  103. árgangur  Landsfundur » Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal voru kosin formaður og varaformaður flokksins, með um 96% atkvæða hvort. » Áslaug Arna var kjörin ritari flokksins með 91% atkvæða. » Meðal annars var ályktað að stefna bæri að aðskilnaði ríkis og kirkju. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Ég deili öllum viðhorfum sem snúa að frelsi einstaklingsins. Ég gladdist mjög mikið yfir því hvernig slík við- horf fengu gott svigrúm á fundin- um,“ sagði Ólöf Nordal að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins, þar sem hún var kjörinn varaformaður flokksins. Hin 24 ára Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var nokkuð óvænt ein í kjöri í starf ritara flokksins, en Guðlaugur Þór Þórðarson dró fram- boð sitt til baka eftir að ljóst varð að Áslaug hygðist bjóða sig fram gegn honum. Bjarni Benediktsson fékk endurnýjað umboð sem formaður flokksins. Nokkra athygli vakti hve mörg mála ungra sjálfstæðismanna fengu hljómgrunn á fundinum og kvað við frjálslyndari tón í álykt- unum flokksins en oft áður. Þannig var t.a.m. ályktað um að leyfa ætti staðgöngumæðrun og líknardráp, auk þess um afglæpavæðingu þess að bera á sér fíkniefni til neyslu. Markast það af því að líta skuli á fíkn sem heilsufarsvanda en ekki eitt- hvað sem taka eigi á í dómskerfinu. Þá vakti athygli ályktun um að kanna ætti möguleika þess að taka upp annan gjaldmiðil í stað krónu. Þá var ályktað um að lækka ætti skatta og einfalda skattkerfið. „Taka verður skattlagningu einstaklinga til endurskoðunar. Stefna ber að því að tekjuskattur og útsvar einstaklinga lækki í áföngum í samtals 25% á næstu árum og að þessu marki verði náð fyrir árið 2025,“ segir m.a. í ályktuninni. Frjálslyndið í fyrirrúmi  Ungir sjálfstæðismenn komu mörgum málum að  Tekjuskattur og útsvar einstaklinga lækki í 25%  Áslaug Arna varð ein í kjöri um ritara flokksins MLandsfundur … »4 Breytingar í forystu Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í Laugardalshöll Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrjú á palli Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari, Ólöf Nordal varaformaður og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, við lok landsfundar. Tölvumynd/Guðbjörg Brá Léttlest Svona gæti léttlest litið út á leið sinni milli Smáralindar og Skeifu. Kostnaður við gerð fyrstu léttlestar hér á landi yrði mikill, eða um 27 milljarðar króna, en ábati sem fengist af því að fylgja eftir stefnu svæðisskipulags höfuðborgarsvæð- isins til 2040 yrði umtalsverður. Auk þess myndi sparast á móti kostnaður vegna nýrra samgöngu- mannvirkja, þar sem hluti sam- gangna myndi flytjast yfir á hið nýja lestakerfi. Þetta er meðal helstu niður- staðna í meistaraprófsritgerð í byggingaverkfræði eftir Guð- björgu Brá Gísladóttur. Hún skoð- aði hugmyndir sem fram hafa kom- ið um léttlestakerfi á höfuðborgar- svæðinu og forhannaði sérstaklega leiðina á milli Smáralindar og Skeifunnar. Sú leið yrði 5,8 km löng og gerir Guðbjörg ráð fyrir sjö lest- arstöðvum á leiðinni. Ferðatíminn yrði 11-12 mínútur. »12 Ábati af léttlesta- kerfi í Reykjavík  Á Íslandi yrði landsframleiðsla árið 2100 rúm- lega 500% meiri vegna áhrifa hlýnunar. Þetta kemur fram í tímaritinu Nat- ure en þar birtist fyrir skemmstu ný rannsókn eftir fræðimenn við UC Berkeley þar sem skoðuð eru áhrif hnattrænnar hlýnunar á hag- vöxt hjá þjóðum heims fram til árs- ins 2100. Höfundar færa rök að því að verulegar líkur séu á að hnatt- hlýnun muni á heimsvísu hafa minnkandi áhrif á landsframleiðslu á mann. »14 Hlýnun eykur hag- vöxt á norðurhveli Hlýnun Lands- framleiðsla eykst. Unnið er að nýjum reglum um skjalavörslu á Alþingi. Sú vinna er hluti af víðtækari endurskoðun á varðveislu gagna í stjórnkerfinu. Samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn frá árinu 2014 heyra Al- þingi og Umboðsmaður Alþingis ekki undir lögin. Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir að reglurnar þyrftu að vera ítarlegri og nákvæm- ari og að skerpt verði á reglum um rafræn gögn. Þingmenn eiga sinn tölvupóst, hann er einkaeign þeirra. Hins vegar, þegar þeir koma saman í opinberu umboði þá eiga gögn þeirra að vera opinber. »9 Skjalavarsla á Al- þingi í endurskoðun Ljósmynd/VG Stjórnmál Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, flytur ræðu á landsfundinum. Katrín Jakobsdóttir var sjálfkjörin formaður flokksins og Björn Valur Gíslason hafði betur en Sóley Björk Stefánsdóttir um varaformannsemb- ættið á landsfundi Vinstri grænna sem fram fór á Selfossi um helgina. Fundurinn sendi frá sér tæplega 20 ályktanir, m.a. um að áhersla verði lögð á að vinnu við heildarend- urskoðun stjórnarskrárinnar verði lokið, lagst var gegn hugmyndum um vinnslu jarðefnaeldsneytis á ís- lensku yfirráðasvæði, þ.m.t. fyrir- hugaðri olíuvinnslu á Drekasvæðinu og borgarstjórn var hvött til að leggja að nýju fram tillögu um snið- göngu Reykjavíkurborgar á vörum frá Ísrael. Eins hvatti fundurinn rík- isstjórnina til að slíta stjórnmála- sambandi við Ísrael. Þá taldi fundurinn að ekki væri tekist á við málefni flóttamanna og hælisleitenda með fullnægjandi hætti. Lagði fundurinn m.a. áherslu á að endursendingum á grundvelli Dyflinnarsáttmálans yrði hætt. »6 Vilja slíta sambandi við Ísrael  Samþykkt á landsfundi VG að ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.