Morgunblaðið - 26.10.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 26.10.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015 Í ályktunlands- fundar Sjálf- stæðisflokks- ins um efnahags- og viðskiptamál er margt og misgott. Eitt af því jákvæða er að töluverð áhersla er á lækkun skatta, enda skiptir miklu að hafist verði handa hratt og í alvöru við að vinda ofan af skattahækkunum vinstri stjórnar- innar.    Í ályktuninni segir að stefna beri„að því að tekjuskattur og útsvar einstaklinga lækki í áföngum í sam- tals 25% á næstu árum og að þessu marki verði náð fyrir árið 2025.“    Þetta er metnaðarfullt markmiðog ljóst að til að ná því er nauð- synlegt að fara að minnsta kosti að stíga fyrstu skrefin.    Í ályktuninni segir einnig aðlækka þurfi tryggingagjald, sem er síður en svo ofmælt.    Tryggingagjaldið hefur lítiðlækkað frá því það náði hæstu hæðum í tíð vinstri stjórnarinnar.    Þá voru röksemdirnar meðal ann-ars erfitt atvinnuástand, en hverjar ætli þær séu nú?    Er hægt að finna einhver rök fyr-ir því að halda tryggingagjald- inu jafn háu og það er um þessar mundir?    Séu þau rök til hljóta það einfald-lega að vera almenn skatta- hækkunarrök. Þau áttu mjög upp á pallborðið hjá vinstri stjórninni um alla skatta en fá vonandi brátt að víkja fyrir uppbyggilegri röksemd- um. Verður gengið í að lækka skatta? STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.10., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 0 alskýjað Akureyri -1 alskýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 5 skúrir Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 léttskýjað Stokkhólmur 10 léttskýjað Helsinki 8 skúrir Lúxemborg 12 skýjað Brussel 12 léttskýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 11 upplýsingar bárust ekki London 12 léttskýjað París 12 skýjað Amsterdam 11 léttskýjað Hamborg 11 léttskýjað Berlín 11 léttskýjað Vín 13 skýjað Moskva 5 þoka Algarve 21 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 15 léttskýjað Winnipeg 2 léttskýjað Montreal 10 skýjað New York 15 alskýjað Chicago 13 léttskýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:52 17:33 ÍSAFJÖRÐUR 9:07 17:28 SIGLUFJÖRÐUR 8:50 17:10 DJÚPIVOGUR 8:24 16:59 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Kvarnatengi fyrir zetur og sakkaborð Stærðir eru: 12 S, 15 S, 18 S, 20 S, 25 S og 12 B, 15 B, 18 B, 20 B, 25 B 70 kr. stk. Nýt t Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson vann um helgina að- alverðlaunin á kvikmyndahátíð- inni Tofifest í borginni Torun í Póllandi. Hrútar vann „Gullna Engilinn“ (e. Golden Angel), verðlaun sem eru veitt fyrir bestu alþjóðlegu kvikmyndina í fullri lengd. Þetta eru níundu verðlaun Hrúta frá því hún var frumsýnd á Cannes í maí. Aðal- leikarar í myndinni eru Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíus- son. Kvikmyndahátíðin Tofifest er ein stærsta kvikmyndahátíðin í Póllandi og er þekkt fyrir að leggja áherslu á óháða kvik- myndagerð. Sýndar voru 150 kvikmyndir frá öllum heims- hornum. Níundu verðlaun Hrúta Morgunblaðið/Styrmir Kári Hrútar Grímur Hákonarson með að- alleikurum kvikmyndarinnar. Skemmtiferðaskipið AIDAmar sigldi inn sundin blá á laugardag, fyrsta vetrardag. Kuldalegt var um að litast en skipið átti ríflega sólar- hringsdvöl við Skarfabakka. Síðdeg- is í gær hélt það úr höfn, á leið sinni vestur um haf þar sem það siglir með ferðamenn um Karíbahafið í all- an vetur. AIDAmar var síðasta skemmti- ferðaskipið sem átti hér viðdvöl á þessu ári og hefur fley af þessu tagi aldrei verið jafnseint á ferð í árinu og nú. Um borð eru yfir 2.100 far- þegar. Þeim gafst óvenjugóður tími til að kynna sér það sem höfuð- borgin hefur upp á að bjóða, auk þess sem farið var í rútuferðir á Gullna hringnum. Næst munu borgarbúar geta séð stórt skemmtiferðaskip í höfn í mars á næsta ári. Veturinn heilsaði síðasta skipinu Ljósmynd/Jón Páll Snorrason Sigling AIDAmar sigling inn sundin blá og Esjan kuldaleg í bakgrunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.