Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 11

Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 11
Fjórum sinnum Bond Daniel Craig hefur fjórum sinnum leikið James Bond, fyrst 2006, og ætlar að láta gott heita. stríða. Alvarleg ****** vandamál, sagði Craig í viðtali við Culture, fylgiriti The Sunday Times, í tilefni frumsýningar myndarinnar 26. október í London. Meintur sadómasókismi Vandræðagangur Ians Flem- ings í kvennamálum var alþekktur sem og lauslæti hans og sadóma- sókismi. Kvenfyrirlitning hans kom einnig fram í almennum ummælum eins og þeim að konur væru oft góðir bílstjórar en sjaldnast fyrsta flokks og þær gætu ómögulega set- ið hljóðar í bíl. Og þar fram eftir götunum. Í The Sunday Times Magazine eru kaflar úr bókinni Ian Fleming: A Personal Memoir, eftir Robert Harling, sem kynntist Fleming þegar báðir voru starfs- menn Assault Unit (30AU) í leyni- þjónustu breska flotans í seinni heimstyrjöldinni. Í bókinni rifjar Harling upp að Fleming var, engu síður en njósnari hennar hátignar, James Bond 007, fullur hleypidóma í garð kvenna. Einnig að sjálfur hafi hann verið pirraður á stöðug- um spurningum Flemings um kyn- líf sitt. „Ég var farinn að halda að hann [Fleming] hefði sérþarfir varðandi kynlíf, mögulega sadóma- sókískar, sem flestir okkar félag- anna höfðu engan áhuga á að heyra um.“ Harling opinberar líka aðra hlið á rithöfundinum; djúpt þung- lyndi, sérstaklega eftir dauða kon- unnar sem hann elskaði. Sú hét Muriel Wright, pólóleikari og fréttaritari 30AU, sem lést í loft- árás í London í stríðslok. Að sögn Harlings var Wright Bond-stúlkan holdi klædd, fögur, trú og laus við að vera gagnrýnin. Í síðustu Bond myndinni, Sky- fall, mun hafa farið fyrir brjóstið á mörgum áhorfendum að 007 fór í sturtu með fyrrverandi kynlífs- þræli. Þegar Craig var spurður álits í fyrrnefndu viðtali virtist hon- um svolítið brugðið. „Athyglisvert,“ sagði hann, „þannig vildum við ekki að áhrifin yrðu. Kannski helguðust viðbrögðin af því að stúlkan var fórnarlamb. Þá eru viðbrögðin skiljanleg.“ Jasmine Bond? Naomie Harris, sem í Spectre leikur Monneypenny í annað skipti, fullyrðir að hægt sé að vera hvort tveggja femínisti og Bond-stúlka. Máli sínu til stuðnings vísar hún til Monicu Bellucci, 51 árs, en hún leikur ekkju launmorðingja, sem 007 hafði komið fyrir kattarnef. „Leikstjórinn, Sam Mendes, elskar sterkar konur með fjölþættan per- sónuleika. Bellucci leikur ótrúlega hugrakka konu, sem hafnar aðstoð Bonds. Hún er svona kona sem get- ur gert allt ein síns liðs.“ Þegar Craig var spurður hvernig honum litist á að fá konu í hlutverk 007 svaraði hann: „Því ekki það? Jasmine Bond?“ Craig líst líka prýðilega á þá hugmynd að fá Idris Elba (lék m.a. Luther í samnefndum sjónvarps- þáttum frá BBC) í hlutverk 007, og segir húðlitinn ekki skipta nokkru máli. „Við hefðum átt að vera meira í takt við tímann,“ sagði Daniel Craig, sem undanfarið hefur látið hafa eftir sér að frekar myndi hann skera sig á púls en leika James Bond í fimmta sinn. 007 F.v. Sean Connery, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton og Pierce Brosnan, í hlutverki njósnarans með leyfi 007 til að drepa. Skapari James Bonds Rithöfund- urinn Ian Fleming (1908 – 1964). Daniel Craig lýst prýðilega á að þá hugmynd að arftaki sinn í hlutverki Bonds verði kona. „Ég heiti Bond – Jasmine Bond, “ hljómar líka vel. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015 „Með nýrri tækni koma oft á tíðum ný tækifæri og nýjar ógnir inn í sam- félög. Snjallsímar og snjalltæki eru engin undantekning þar á. Á sama tíma og skólakerfi Íslands eru að til- einka sér kennslu á snjall- tækjum eru stjórnvöld í Taív- an búin að setja lög þar sem að má sekta foreldra sem leyfa börnum sínum að vera ótakmarkað í snjalltækjum,“ segir m.a. í kaflanum Lestur og miðlar í skýrslunni Ungt fólk 2015 sem Rannsóknir og greining gerðu á högum og líðan barna í 5. og 7. bekk. Í skýrslunni kemur fram mikill kynjamunur meðal nemenda í 5.-7. bekk í bók- lestri. Drengir lesa síður en stúlkur og spila frekar tölvu- leiki. Niðurstöðurnar ríma við reynslu Bryndísar Guð- mundsdóttur, talmeinafræð- ings og kennara, sem nýtt hefur sér möguleika tækninn- ar í því skyni að glæða áhuga ungmenna á lestri. Hún hefur gefið út heildstætt þjálfunarefni; Lærum og leikum með hljóðin, smáforrit sem notuð eru í leik- og grunnskólum um allt land. Smáforritin eru þau einu á þessu sviði sem undirbúa réttan framburð íslensku hljóðanna, kenna hljóðvit- und, orðaforða og alla nauðsynlega þætti fyrir læsi. Bryndís leggur áherslu á að nýta gagnvirkni smáfor- ritanna til að beina áhuga barna frá unga aldri á jákvæðar brautir. iPhone-útgáfa Smáforritin komu nýverið út í iPhone-útgáfu, sem auðveldar for- eldrum að hlaða þeim niður beint í símana og stuðla að auknum mál- þroska og undirbúa börn fyrir læsi hvar og hvenær sem er. Um er að ræða forritin Lærum og leikum með hljóðin, Froskaleikur 1, 2 og 3 og Froskaleikur Skólameistarinn (skóla- útgáfa). „Nú á ekkert að vera því til fyrir- stöðu að tugir þúsunda uppalenda sem nota iPad eða iPhone geti að- stoðað börnin á markvissan hátt við lestur,“ segir Bryndís, sem vonast til að framtakið geri gæfumuninn fyrir sem flesta. „Þar sem drengir standa verr að vígi en stúlkur í lestrarundir- búningi hentar vel að tengja námið leik, tækni og hreyfingu eins og smá- forritin bjóða upp á,“ bætir hún við og lætur þess getið að Novator, Norð- urál, Hagar, KPMG og HS Orka hafi gert henni kleift að ráðast í útgáfuna. Bryndís stendur fyrir vefnámskeiði kl. 14 á morgun, þriðjudaginn 27. október, þar sem foreldrar og fagfólk geta lært á alla möguleika smáforrit- anna sér að kostnaðarlausu. Þátttak- endur þurfa að skrá sig áður til að fá aðgang í eigin tölvu. Íslenskt lestrarþjálfunarforrit í iPhone Leikur að læra Krökkum finnst gaman að nota smáforit til að læra að lesa. Gagnvirkni smáforrita nýtt til að glæða áhuga barna á lestri Vefnámskeið Foreldrar og kennarar get lært alla möguleika smáforitanna á vefnámskeiði. Fyrir þá sem vilja nálgast forritin: https://itunes.apple.com/us/ developer/raddlist/id633990870 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.