Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 21

Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, leikfimi kl. 10. Félagsvist, tölvu- færni, útskurður 1 og frjáls tími í myndlist kl. 13. Boðinn Bingó og myndlist kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Lesið og spjallað kl. 10.40. Dalbraut 18-20 Myndlist og postulín kl. 9, brids kl. 13. Dalbraut 27 Handavinna kl. 8, upplestur á annarri hæð kl. 14. Félagsmiðstöðin Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl 9.10, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30 og skapandi skrif kl. 20. Furugerði 1 Morgunmatur kl. 8.10, lestur með Ragnhildi kl. 10, hádegismatur kl. 11.30, ganga kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30 og kvöld- matur kl. 18-19. Handavinna. Nánari upplýsingar í síma 411-2740. Garðabæ Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og 15, stólaleikfimi fyrir konur og karla í Sjálandi kl.9.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl.10, og í Ásgarði kl.11, karlaleikfimi kl.11.40, Boccia kl.12.20. Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13. Kóræfing Gerðubergskórs, nýjir söngfuglar velkomnir, kl. 14.30. Gullsmári Póstulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, kortagerð kl. 13. Handa- vinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 -16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, blöðin, púsl og tafl liggja frammi. Léttar aeróbic æfingar kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Spilað brids kl. 13, silkimálun kl. 13 hjá Elínborgu 2. skipti af 4. Eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir. Hæðargarður Glerskurður kl. 9. Ganga kl. 10. Slökun kl. 10.30. Mynd- listarnámskeið kl. 12.30. Handavinnuhornið kl. 13. Félagsvist kl. 13.15. Skapandi skrif kl. 16. Íþróttafélagið Glóð Ringó kl.13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564- 1490 og á www.glod.is. Haustfundur í Gullsmára, Gullsmára 13 miðvikudaginn 28. október kl. 19. Farið yfir starfsemi Glóðar á starfs- árinu og horft til komandi mánaða. Fundurinn er opinn félögum í Glóð og öðrum sem áhuga hafa á starfsemi félagsins. Korpúlfar Ganga í öllum styrkleikaflfokkum leggja af stað kl. 10 frá Borgum og kl. 10 frá Grafarvogskirkju. Félagsvist kl. 13 í Borgum, útskurður kl. 13 í Borgum, styrktarleikfimi með Nils kl. 17 í Borgum. Ath. tölvufærninámskeiðið fellur niður í dag vegna vetrarfrís í skólum. Laugarból Nýtt í Ármanni: Leikfimi fyrir 50+ og eldri borgara. Leik- fimi kl. 11, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Fjölbreyttar æfingar. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 Hreyfing kl. 9.45, lestur kl. 11, smíði kl. 13-16, ganga kl. 14, djáknastund kl. 13.30, bíó kl. 15.30. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba gold námskeið kl. 10.30. LeiðbeinandiTanya Dimitrova. Danskennsla námskeið kl. 17-20. Kennari Lizý Steinsdóttir. SVIÐAVEISLA í hádeginu laugardaginn 31. október í Stangarhyl 4. Húsið opnað kl. 11.15 og borðhald hefst 12. Í fyrra komust færri að en vildu en reynt verður að fjölga sætum. Mikilsvert er að fólk skrái sig sem fyrst í s. 588-2111 eða feb@feb.is Vesturgata 7 Tréútskurður kl. 9.15, Lúðvík. Vitatorg Leirmótun kl. 9, höfum laus pláss, postulínsmálun kl. 9, upplestur framhaldssögu kl. 12.30, frjáls spilamenska, allir velkomnir, stóladans kl. 13, bókband kl. 13. Smáauglýsingar 569 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Bókhald BÓKHALD Vanur bókari getur tekið að sér bókhald, VSK, uppgjör, launabók- hald, skattskýrslur og stofnun FT. Sanngjarnt verð og góð þjónusta. bokhaldarinn@vortex.is Ýmislegt Eigum margar stærðir af lokum til á lager. t.d.       235x235 8 hyrnd lok. Lokið eru þau sterkustu á markaðinum.      Heitirpottar.is  LOK FYRIR HEITAPOTTA OG HITAVEITUSKELJAR Fylgstu með á Facebook Frú Sigurlaug Mjóddin s. 774-7377 Sundbolir • Tankini Bikini • Náttföt Undirföt • Sloppar Inniskór • Undirkjólar Aðhaldsföt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ✝ Björn BjarnarGuðmundsson fæddist á Kirkju- vegi 88 í Vest- mannaeyjum 11. nóvember 1941. Hann lést 11. októ- ber 2015 á Spáni. Foreldrar hans eru Guðmundur Kristján Há- konarson, f. 20.9. 1915, d. 4.2. 2006, og Halldóra Kristín Björns- dóttir, f. 3.4. 1922. Systkini Björns eru: Halldór Ingi, f. 14.10. 1946, kvæntur Önnu Þóru Einarsdóttur, Guðmundur, f. 12.10. 1950, kvæntur Sigríði Stefánsdóttur, Ólafur, f. 27.1. 1952, í sambúð með Valgerði Karlsdóttur, Eygló, f. 17.4. 1956, í sambúð með Þóri Kristjáns- syni, Bjarni Ólafur, f. 10.2. 1963, kvæntur Guðrúnu Mary Ólafs- dóttur, og Þröstur, f. 17.1. 1965. Hinn 10.4. 1964 giftist Björn Bjarnar Þóreyju Þórarins- dóttur, f. 4.8. 1945, þau skildu. Börn Björns og Þóreyjar eru: 1) Dóra Kristín, f. 28.6. 1962, eig- inmaður Pétur Pétursson, f. 3.11. 1956, barn Dóru af fyrra hjónabandi er Elísabet Edda Guðbjörnsdóttir, f. 17.3. 1987, í sambúð með Gunnari Óla Sölva- syni, f. 1.11. 1986. 2) Þórir Grét- ar, f. 6.12. 1965, börn hans eru Jón Bjarni, f. 1.7. 1994, og Gréta Dögg, f. 21.6. 2000. 3) Hanna Birna, f. 31.12. 1966, eiginmaður Ingólfur Helgason, f. 4.10. 1967, börn þeirra eru Helgi, f. 10.11. 2005, og Íris, f. 5.8. 2009. Hinn 4.7. 1975 kvæntist Björn Bjarnar Aðalheiði Ósk Sigurðardóttur, f. 27.4. 1947, þau skildu. Hinn 2.7. 2005 kvæntist Björn Bjarnar eftirlifandi eiginkonu sinni, Ernu Björnsdóttur, f. 9.12. 1944. Börn Ernu af fyrra hjóna- bandi eru: 1) Birna, f. 4.1.1964, í sam- búð með Sigrúnu Ingu Reynisdóttur, f. 25.5. 1979, sonur þeirra er Reynir Örn, f. 3.1. 2010. Börn Birnu af fyrra hjónabandi eru Guðrún Erna, f. 7.7. 1985, og Arna Kristín, f. 31.5. 1996. 2) Kristján Rafn, f. 18.10. 1966, eiginkona Sigrún Ásta Sverrisdóttir, f. 16.3. 1966, börn þeirra eru Guð- laug Agnes, f. 19.1. 1998, Arnór Pálmi, f. 14.2. 2000, og Gísli Þröstur, f. 14.2. 2000. 3) Har- aldur Freyr, f. 14.12. 1974, í sambúð með Sigríði Eiri Guð- mundsdóttur, börn þeirra eru Hrönn, f. 6.9. 2008, og Huld, f. 12.6. 2011. Fyrir átti Haraldur soninn Gabríel Gísla, f. 28.4. 1999. 4) Arnar Þór, f. 8.4. 1978, eiginkona Lára Rúnarsdóttir, f. 4.10. 1982, börn þeirra eru Embla Guðríður, f. 2.9. 2008, og Rúnar Kormákur, f. 16.11. 2014. Björn byrjaði ungur að vinna fyrir sér, fyrst í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum og síðan við pípulagningar og málning- arvinnu og fór síðan til sjós á fiskibátum. Hann fluttist til Reykjavíkur 1971 og fór í mat- reiðslunám og var matreiðslu- maður á skipum Hafskipa til margra ára. Síðar var hann mat- reiðslumaður í Bláa lóninu, á Hótel Örk, Sólvangi og um nokkurn tíma á Sæbjörg, skóla- skipi Slysavarnafélags sjó- manna. Frá 1999-2010 var hann matreiðslumaður starfsmanna í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Útför Björns fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 26. október 2015, klukkan 13. Tengdafaðir minn er látinn; eins og hendi sé veifað er hann farinn. Hann var staddur í hús- inu sínu á Spáni með Ernu konu sinni, þar sem þeim leið hvað best og þar dvöldu þau oft, jafnvel mánuðum saman. Ég kynntist Birni fyrir hart- nær aldarfjórðungi þegar við Dóra, dóttir hans og konan mín, fórum að stinga saman nefjum. Hressilegur og líflegur maður sem gaman var að spjalla við um heima og geima. Björn var lærður kokkur og starfaði víða sem slíkur bæði til sjós og lands, en auk elda- mennsku hafði hann fjölmörg önnur áhugamál. Til dæmis safnaði hann bókum sem hann fann á fornbókasölum í mis- góðu ástandi. Í tengslum við bókasöfnun fór Björn á nám- skeið í bókbandi og batt inn fjölda bóka, jafnvel heilu rit- söfnin, sem hann gaf svo frá sér mörg hver. Hann lærði líka tréskurð og eftir hann liggja margir haganlega útskornir gripir. Þegar Björn starfaði sem matráður í mötuneyti kennara í MH þótti honum upplagt að stunda þar nám líka og fór á alls kyns námskeið í skólanum. Hann hafði t.d. mikinn áhuga á listasögu og sótti þau námskeið sem MH hafði upp á að bjóða í þeirri grein, auk fleiri greina. Björn tengdafaðir minn var í mínum huga sífellt að sýsla með eitt eða annað, líka í hús- inu sínu á Spáni þar sem hann var gjarnan að skera út gripi, þótt heilsunni hafi hrakað hjá honum síðustu árin. Ég votta fjölskyldu Björns mína dýpstu samúð og vona að minningin um hann ylji þeim sem til hans þekktu um hjarta- rætur. Pétur Pétursson. Menntaskólinn við Hamra- hlíð var síðasti starfsvettvang- ur Björns Bjarnars Guð- mundssonar matreiðslumanns. Þegar hann var ráðinn að skólanum síðla árs 1999 áttti hann að baki farsælan starfs- feril bæði hjá opinberum stofnunum og einkaaðilum til sjós og lands. Störfum hans lauk árið 2010 er hann fór á eftirlaun. Í starfsviðtali sem ég átti við Björn í aðdraganda ráðningarinnar hafði hann ekki mörg orð um sjálfan sig en ég minnist þess að hann sagðist vera þokkalegur í sam- skiptum, ætti þó til að vera hrekkjóttur en byggi til góðan mat. Þetta síðastnefnda fékkst staðfest hjá fyrri vinnuveit- endum og í hönd fór tími margra góðra máltíða á kenn- arastofu MH í bland við smá- stríðni og góðlátlega hrekkja- lómsku kokksins. Björn var léttur í lund, fé- lagslyndur, greiðvikinn og óspar á góð ráð hvort sem varðaði matargerð eða máln- ingu sem var annað sérsvið hans. Björn hélt góðum tengslum við okkur í MH eftir að hann lét af störfum, þáði margan kaffisopann og var aufúsugest- ur á kennarastofunni. Sumar- húsið á Spáni var þeim Ernu notadrjúgt síðustu árin og þegar við hittumst í ágúst síð- astliðnum hlakkaði hann mjög til haustdvalarinnar þar ytra. Svo fór að þar urðu hans síð- ustu spor. Við fyrrverandi samstarfsfólk í MH minnumst Björns með hlýju og þakklæti fyrir góð störf og samveru- stundir á liðnum árum. Inni- legar samúðarkveðjur til Ernu, barna og annarra að- standenda. Lárus H. Bjarnason rektor. Björn Bjarnar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.