Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 32

Morgunblaðið - 26.10.2015, Side 32
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Banaslys í Árnessýslu 2. Beittir fjárkúgun af huggulegum… 3. „Ég er bara orðlaus“ 4. „Bróðir, hann er á lífi, hann... »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á dagskrá í haustfríi grunnskóla bæjarins í dag og á morgun. Meðal þess sem boðið verður upp á er Harry Potter-maraþon í Hamraborg í dag og á morgun, fyrstu þrjár kvikmyndirnar um galdrastrákinn sýndar. Harry Potter og viskusteinninn verður sýnd klukkan 11 í dag, Harry Potter og leyniklefinn á morgun kl. 11 og Harry Potter og fanginn frá Azkaban kl. 14. Boðið verður upp á popp með bíóinu. Harry Potter-mara- þon í Hamraborg  Bertel Haarder, menningarmála- ráðherra Dan- merkur, flytur fyr- irlestur á morgun kl. 17 í Odda, stofu 101, í Há- skóla Íslands í til- efni af því að í ár eru liðin 100 ár frá því að danska var fyrst kennd við skólann. Fyrirlesturinn ber heitið „Sprog og kultur skal binde os sammen – før, nu og i fremtiden“ og er hann á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungu- málum við HÍ. Fyrirlestur menning- armálaráðherra í HÍ  Oddur Arnþór Jónsson barítón kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun kl. 12. Oddur syngur hlut- verk Fígarós í Rak- aranum frá Sevilla í Eldborg þessa dag- ana en á morgun mun hann syngja við píanóleik Antoníu Hevesi. Fígaró í Hafnarborg Á þriðjudag Austan 8-13 m/s við suðurströndina, annars hægari vindur. Léttskýjað fyrir norðan en þykknar upp síðdegis. Skýjað og dálítil slydda eða rigning fyrir sunnan, hiti 0 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt og yfirleitt léttskýjað en dá- lítil él fram yfir hádegi á Austurlandi. Frost 0 til 8 stig, kaldast í inn- sveitum fyrir norðaustan en frostlaust syðst. VEÐUR Svo gæti farið að Hólm- fríður Magnúsdóttir spilaði sinn 100. A-landsleik þegar Ísland mætir Slóveníu ytra kl. 17 í dag, í þriðja leik sín- um í undankeppni EM í knattspyrnu. Hólmfríður hefur átt við meiðsli að stríða. Ljóst er að erfiðari rimma bíður Íslands en þeg- ar liðið vann Makedóníu, 4:0, á fimmtudag. Fyrrver- andi leikmaður Þórs/KA er aðalleikmaður Slóvena. » 1 Erfiðari rimma bíður í Slóveníu „Þetta er ágæt tilraun hjá íshokkí- sambandinu en ég veit ekki með þetta, sérstaklega hvað varðar meiðslahættu og annað,“ segir Ingv- ar Þór Jónsson, leikmaður SA, en þrjár umferðir voru leiknar á þremur dögum á Íslandsmóti karla í íshokkíi um helgina. Leikirnir voru flestir jafn- ir og spennandi en SA uppskar best, sex stig af níu mögulegum. »2 Ofurhelgi íshokkímanna ágæt en erfið tilraun ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nýtt hótel, Storm Hótel, sem er í Þórunnartúni 4 í Reykjavík, var opnað gestum sl. föstudag. „Það er ánægjulegt að sjá og finna hvað gestirnir taka þessu vel, finna fyrir upplifun þeirra,“ segir Lísa Geirs- dóttir hótelstjóri. „Það er sérstak- lega góð tilfinning að finna að það sem lengi hefur verið unnið að hittir í mark.“ Storm Hótel er fimmta hótel Kea- hótela í Reykjavík en fyrir eru Hót- el Borg, Apótek Hótel, Skuggi Hót- el og Reykjavík Lights. Auk þess rekur samsteypan Hótel Kea og Hótel Norðurland á Akureyri og Hótel Gíg við Mývatn. Mikil sam- vinna er á milli hótelanna, sem bjóða samtals upp á 624 herbergi, 442 í Reykjavík, 145 á Akureyri og 37 við Mývatn. Hótelrekstur í blóðinu Lísa Geirsdóttir fékk hótelrekst- ur nánast beint í æð með móður- mjólkinni en Geir Björnsson heitinn, faðir hennar, var hótelstjóri á Hótel Borgarnesi frá því hún var tveggja ára og þar til hún var 16 ára. „Það má segja að ég sé með hótelrekstur í blóðinu,“ segir Lísa. Hún hefur víðtæka reynslu, var meðal annars hótelstjóri á Hótel Gíg og hefur ver- ið hótelstjóri á Reykjavík Lights við Suðurlandsbraut frá því það var opnað í júní 2013, en skilar því af sér í vikunni reynslunni ríkari og ein- beitir sér að Storm Hótel. Hún segir að nýja hótelið sé ekki ósvipað Reykjavík Lights. „Hótelin eru bæði fallega innréttuð í skandin- avískum stíl, en á Reykjavík Lights hefur hvert herbergi sterka vísan í gamla, íslenska tímatalið, sem er „conceptið“ í gegnum allt hótelið. Herbergin á Storm Hótel eru hlut- lausari, en stórar ljósmyndir af nátt- úru Íslands prýða hvert herbergi.“ Framkvæmdir við hótelið hófust um áramót og opnað var fyrir bók- anir í mars. „Við höfum kynnt hót- elið vel og bókanir líta mjög vel út, bæði fyrir veturinn og næsta sum- ar,“ segir Lísa. Hún segist finna fyr- ir því að æ fleiri ferðamenn kjósi að vera í jaðri miðbæjarins og með það í huga sé hótelið mjög vel staðsett. „Við erum í göngufæri við miðbæinn og einnig helstu ráðstefnustaði eins og Hörpu og erum auk þess sjálf með 15 manna fundaherbergi.“ Storm Hótel er þriggja stjörnu hótel. Í því eru 93 tveggja manna herbergi og þar af sjö með svölum og eitt „deluxe“ herbergi. Morgun- verðarsalur og bar eru á jarðhæð hótelsins og þaðan er hægt að ganga út á skjólgóðan pall. Minna á náttúru landsins  Storm Hótel nýtt Keahótel í Reykjavík Morgunblaðið/Styrmir Kári Storm Hótel Lísa Geirsdóttir hótelstjóri segir að byrjunin lofi góðu og bókanir líti vel út í vetur og næsta sumar. Aðstaða Á jarðhæð er móttaka, morgunverðarsalur og bar. Manchester-slagurinn varð ekki jafn rismikill og vonir stóðu til því liðin gerðu markalaust jafntefli í bragð- daufum leik í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gær. Þjóð- verjinn Jürgen Klopp þarf enn að bíða eftir fyrsta sigri sín- um sem knatt- spyrnustjóri Liv- erpool og Harry Kane virðist vera kominn á beinu brautina. »6 Klopp þarf enn að bíða eftir fyrsta sigrinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.