Fréttabréf - 01.12.1996, Side 2

Fréttabréf - 01.12.1996, Side 2
Opinn fundur um ímynd kvenna Föstudaginn 1. nóvember var haldinn inngngsfundur að landsfundi Kvennalistans í Norræna húsinu þar sem rætt var um ímynd kvenna í fjöl- miðlum, kvikmyndum og auglýsingum. Frummælendur á fundinum voru þær Anna Sveinbjamardóttir, Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir og Eh'n Hirst. Anna Sveinbjamardóttir byrjaði á því að fjalla um ímynd kvenna í kvikmyndum. Hún ræddi m.a. um þær staðalmyndir um konur sem fram koma í þeim kvikmyndum sem vinna til Óskarsverðlauna. Áslaug Dóra ræddi um ímynd kvenna í fjölmiðlum. Hún talaði um þær kröfur sem gerðar em til útlits fjöl- miðlakvenna og að þær hafi mun minna svigrúm heldur en karlar í þeim efnum. Elín Hirst ræddi aðallega um kvennabaráttuna í heild og Kvennalistann. Hún lýsti því yfir að hún hefði lítinn skilning á kvennabaráttu og að konur ættu ekki að reyna að verða að körlum. Ummæli hennar vöktu sterk viðbrögð í salnum og vildu ýmsar konur uppfræða Elínu um það hvað kvennabarátta snýst um. Fjörugar umræður sköpuðust í salnum. Auk frummælenda sátu í pallborði þau Elfa Ýr Gylfadóttir og Steingrímur Ólafsson. Nokkuð var rætt um ímynd kvenna í auglýsingum en Elfa Ýr hefur skoðað það viðfangsefni. Góð mæting var á fundinn, 140-150 manns. Laugardagur 2. nóvember Krisu'n Halldórsdóttir flutti semingarræðu landsfundar undir yfirskriftinni Kvenfrelsi, frá orðum til athafna. Hún benti á að frá upphafi hafi Kvennalistinn viðurkennt margbreytileika kvenna jafnframt því að líta til sérstöðu kvenna sem hópur með lakari stöðu en karlar í þjóðfélaginu. Hún kom inn á þá afstöðu til jafnréttis kynjanna sem fram kom á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þar var vísað til þess að hæfni einstaklinga sé lögð til grundvallar þegar fólk er valið í ábyrgðarstöður innan flokksins. Þetta sagði KrisU'n vera móðgun við konur þar sem því er haldið fram að ástæðan fyrir valdaleysi kvenna sé vanhæfni. Hún rakti afstöðu hinna flokkanna sem er lítið betri. KrisU'n ræddi um þau áhrif sem Kvennalistinn hefur haft á umræðuna á vettvangi stjómmálanna. Þetta hefur orðið konum hvaming til að láta til sín taka á þeim vettvangi sem og annars staðar í þjóðfélaginu. Kristín nefndi að konur í sveitarstjómum hafa sýnt að þær geta unnið frá orðum til amafna. Hún rakti ýmsar aðgerðir borgaryfirvalda til að efla hlut kvenna í borgini, m.a. uppbyggingu leikskóla og grunnskóla, 2

x

Fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.