Fréttabréf - 01.12.1996, Side 3
aukningu kvenna í stjómunarstöðum innan borgarkerfisins o.fl. Kristín
talaði einnig um áhuga flokkanna á auknu samstafi við Kvennalistann og
umræðuna um samfylkingu. Hún sagði það ljóst að framundan er
uppstokkun í flokkakerfinu og að Kvennalistinn getur ekki staðið þegjandi
álengdar. Efna þarf til viðræðna við konur innan annarra flokka og
nauðsylegt er að láta ekki karlana eina um frumkvæðið í þessari umræðu.
Hún lýsti þeirri skoðun sinni að auðvitað ætti Kvennalistinn að stefna að
framboði í öllum kjördæmum í næstu þingkosningum. Hins vegar er
nauðsynlegt að ræða alla möguleika og hvaða leiðir bera okkur fram á
veginn í kvenfrelsisbaráttunni.
Þegar Kristín hafði lokið máli sínu kynnti Sigrún Erla ársskýrslu,
fjárhagsáætlun og skýrslu framkvæmdaráðs og Kristfn Ástgeirsdóttir las
drög að stjómmálaályktun landsfundar.
Fæðingarorlof
Umræðan um fæðingarorlof hófst með því að Guðrún Ögmundsdóttir
greindi konum frá því hvemig f£eðingarorlofsmálum er háttað í dag. Kristín
Einarsdóttir fjallaði síðan um helstu tillögur undirbúningshóps landsfundar
um fæðingarorlof. Þær hugmyndir fela í sér að fæðingarorlof verði lengt í
áföngum úr 6 í 12 mánuði, að karlmönnum verðir tryggður réttur til
fæðingarorlofs og að orlofið verði sveigjanlegt, þ.a. foreldrar geti verið í
hlutastarfi og lengt þannig orlofið. Til að tryggja það að foreldrar haldi ful-
lum launum í fæðingarorlofi verði stofnaður sérstakur fæðingarorlofssjóður
sem hluti tryggingargjalds renni í. Til viðbótar verði gert ráð fyrir að þeir
sem hafi laun undir tiltekinni upphæð fái fæðingarstyrk úr ríkissjóði sem
lækki línulega með hækkandi launum.
Steinunn V. Óskarsdóttir sagði frá tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar með
fæðingarorlof karla. Með verkefninu er ætlunin að reyna að fá svör við
spumingum eins og hver sé áhugi og viðhorf feðra til uppeldis bama, hvaða
áhrif það hafi á fjölskylduna og á tengsl föðurs og bams að faðir taki
fæðingarorlof, hvort samband foreldra breytist, hvort verkaskipting á
heimili breytist eða hvort feður breytist til frambúðar við það að taka
fæðingarorlof. Einnig verður grennslast fyrir um viðhorf yfirmanna og
annarra starfsmanna til fæðingarorlofs feðra. Verkefnið hefst 1. des. 1996 og
því lýkur árið 1998.
Eftir erindin urðu góðar umræður um fæðingarorlof og þær leiðir sem
mögulegar em. Fram komu skiptar skoðanir um þetta mál, einkum þó það
3