Fréttabréf - 01.12.1996, Síða 5

Fréttabréf - 01.12.1996, Síða 5
því sem er aö gerast inni á Þinginu í umræðu um skólamál. Hún sagöi mikilvægt að tryggja að sveitarstjómir hafi jafnréttissjónarmið að leiðarljósi við val á stjómendum skóla. Einnig þurfí að breyta áherslum í verknámi þannig að konur eigi þar líka val. Eftir erindi um menntamál voru umræður um þennan málaflokk sem síðan var fram haldið í hópum. Sunnudagur 3. nóvember Jafnréttisáætlandir og stöður iafnréttisfulltrúa Ragnhildur Vigfúsdóttir, jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar gerði grein fyrir starfi sínu og ræddi auk þess um hæfniskröfur og æskilega eiginleika einstaklinga í hennar starfi. Hún nefndi nokkra neikvæða þætti starfsins, helst þá að hafa ekki beina tengingu inn í bæjarstjóm. Hún sagði það skoðun sína að önnur bæjarfélög ættu hiklaust að taka sér Akureyri og Reykjavík til fyrirmyndar með því að búa til jafnréttisáætlanir og ráða til sín jafnréttisfulltrúa. Hildur Jónsdóttir greindi frá starfi sínu sem jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar. Samkvæmt nýrri jafnréttisáætlun borgarinnar skal hún vera ráðgjafi borgarstofnana við að semja eigin jafnréttisáætlanir. Hildur talaði um að þær breytingar sem gerðar voru á jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar og starfi jafnréttisráðgjafa hafi skilað sér vel í skilvirkari vinnubrögðumog betri árangri. Hildur lýsti yfir ánægju sinni með þann stuðning sem hún finnur fyrir frá acðstu stjómendum borgarinnar. Hún tók undir þá skoðun Ragnhildar Vigfúsdóttur að sem víðast eigi að gera jafnrét- tisáætlanir. Eftir að Ragnhildur og Hildur höfðu lokið máli sínu vom pall- borðsumræður þar sem sátu auk þeirra Katrín Pálsdóttir, bæjarfulltrúi á Seltjamamesi og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi í ísafjarðarbæ. Fram kom að umræðan í Reykjavíkurborg hefur „smitast” út í sveitarfélögin en víða um land er langt í land. Talað var um nauðsyn þess að bein tenging sé á milli jafnréttisnefndar og bæjarstjóma. Auk þess er mikilvægt að halda uppi fræðslu innan sveitarfélaga um jafnréttismál. Fundarkonur voru sammálaum að pólitískur vilji er grundvallaratriði í þessum efnum. Almennar umræður Rætt var um störf þingkvenna og hvort það þjónaði tilgangi að sitja í sem flestum nefndum eða að flokka úr þau mál sem ffekar teljast kvennapólitísk en önnur. Kristín Einarsdóttir hafnaði því að hægt væri að skipta málum í 5

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.