Fréttabréf - 01.12.1996, Blaðsíða 7
Það eru miklir umbrotatímar í íslenskum stjómmálum. Þeir fela í sér tækifæri
sem konur verða að nýta sér minnugar þess að hvert eitt skref skiptir máli.
Það styttist í næstu sveitarstjómakosningar en einmitt þá gefst tækifæri til
þess að sækja fram og styrkja enn stöðu kvenna. Landsfundur Kvennalistans
hvetur konur til þess að leita allra leiða til að tryggja sjónarmiöum jafnréttis
og kvenfrelsis brautargengi jaíht í landsmálum sem í sveitarstjómum.
Margt bendir til að uppstokkun sé framundan í íslensku flokkakerfi.
Kvennalistinn hlýtur nú sem fyrr að vega og meta hvaða leiðir skila
kvennabaráttunni fram á veginn og hvort breyttar baráttuaðfeiðir geti skilað
meiri árangri. Landsfundur Kvennalistans hvetur kvenfrelsiskonur til
samstöðu og fmmkvæði í umræðum um framu'ðarþjóðfélagið og þann hlut
sem konur ætla sér í mótun þess.
Stjórnmálaályktun 14. landsfundar Kvennalistans
Kvenfrelsi: Frá orðum til athafna
Landsfundur Kvennalistans haldinn í Viðey 2. - 3. nóv. 1996 skorar á konur
um land allt að fylgja fast eftir þeim árangri sem náðst hefur í íslenskri
kvennabaráttu á undanfömum áratugum. Á þessu ári eru 20 ár liðin frá því
að jafnréttislög vom sett. Á þeim u'ma hafa konur sótt sér sífellt meiri
menntun og þœr hafa streymt út á vinnumarkaðinn í ýmis konar störf.
Konum hefur fjölgað verulega á Alþingi og í sveitarstjómum og hefur
barátta okkar skilað sér í viðhorfsbreytingu meðal almennings til stöðu og
hlutverka kynjanna.
Það stendur á stjómvöldum að grípa til aðgerða sem tryggja konum jafnrétti
og bœta kjör þeirra. Reynslan kennir okkur að það skiptir máli að konur séu
við stjómvölinn og beiti sér í þágu kvenna. Því þarf hlutur þeirra enn að
aukast innan stjómsýslunnar.
Landsfundurinn hvetur konur til virkrar þátttöku jafnt í félagasamtökum,
sem í foreldrafélögum, nefndum, ráðum og sveitarstjómar- og landsmálum
þannig að við sjáum enn meiri breytingar í þágu betra samfélags.
Landsfundur Kvennalistans heitir á konur að sýna samstöðu í komandi
kjarasamningum og knýja á um aðgerðir til að draga úr launamisrétti kyn-
janna. Efnahagslegt sjálfstœði kvenna er gmndvallarforsenda þess að konur
verði jafnar körlum í lífi og starfi og geti sjálfar valið lífí sínu
farveg. Nú reynir á aðila vinnumarkaðarins, rikið og sveitarfélögin að láta
athafnir fylgja orðum.
7