Víkurfréttir - 30.04.1986, Blaðsíða 1
Fjölbreytt hátíðarhöld
Sandgerðisbátarnir:
Er hlutur
dauðblóðg-
aðs fisks
hærra þar
en annars
staðar?
I síðasta fréttabréfi
Ríkismats sjávarafurða
kemur enn fram að meðal-
verð á fiski báta sem landa í
Sandgerði sé lægra en í
Keflavík, þó munurinn hafi
minnkað. Er meðalverðið
vikuna 12.-18. apríl s.l.
11,56 pr. 100 kg. í Sand-
gerði á móti 12,63 kr. í
Keflavík.
Sama fréttablað birtir nú
athugasemdir frá Sand-
gerði þess efnis að „Bátar
frá Sandgerði hafa ekki ísað
aflann og svo virðist enn-
fremur, að trossurnar séu
ekki allar dregnar daglega
þrátt fyrir hagstætt veður.
Dauðblóðgaður fiskur er
fremur hátt hlutfall í aflan-
um og virðist allur aflinn
koma að landi“. Engin slík
athugasemd birtist í dálki
Keflavíkurbáta.
Virðist því það vera álit
ríkismatsins að gæðamál
Sandgerðisbáta sé sjó-
mönnunum sjálfum að
kenna. -epj.
Að venju verður fjöl-
breytt dagskrá á baráttu-
degi verkalýðsins 1. maí.
Að þessu sinni standa átta
stéttarfélög á Suðurnesjum
sameiginlega að dagskrá
dagsins. Eru það Verka-
lýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis,
Verkakvennafélag Kefla-
víkur og Njarðvíkur,
Verkalýðs- og sjómannafél-
ag Gerðahrepps, Verslun-
armannafélag Suðurnesja,
Starfsmannafélag Kefla-
víkurbæjar, Starfsmanna-
félag Suðurnesjabyggða,
Iðnsveinafélag Suðurnesja
og Vélstjórafélag Suður-
nesja.
Hefst dagskráin með
merkjasölu kl. 9 um
morguninn, en kl. 13
verður safnast saman við
Víkina og þaðan verður
gengið í kröfugöngu með
lúðrasveit Tónlistarskól-
ans í Keflavík í fararbroddi
niður Hafnargötu að
Félagsbíói, en þar fer fram
hátíðar- og baráttufundur
sem hefst kl. 14.
Sigurbjörn Björnsson
setur fundinn, en ræðumað-
ur verður Karl Steinar
Guðnason, varaformaður
1. maí
Verkamannasambands
Islands, síðan tekur hver
ræðumaðurinn við af öðr-
um en á milli verður létt
ívaf skemmtiefnis.
Þá fer fram kaffisala og
að lokum verður dansleik-
ur í Veitingahúsinu,
Vesturbraut 17. Annars
staðar í blaðinu birtist dag-
skrá hátíðarhaldanna í
heild sinni. -epj.
Helguvík:
Þijátíu og tvær milljónir
lítra komnir í tanka
- Tveir tankar notaðir sem auka birgðastöð
fyrir flugvélaeldsneyti
Um síðustu helgi var
lokið við að fylla í fyrsta
sinn nýju olíutankana tvo,
sem byggðir hafa verið í
Helguvík. Innihalda þeir
því nú tæplega þrjátíu og
tvær milljónir lítra af svo-
kölluðu JP-5 eldsneyti, sem
er flugvélaeldsneyti sem
byrjað var að nota síðast-
liðið haust og er ekki eins
eldfimt og það sem áður var
notað og bar nafnið JP-4.
Líkist þetta eldsneyti frem-
ur gasolíu en bensíni.
Verða tankarnir tveir
notaðir sem auka birgða-
stöð á vegum Varnarliðsins
til viðbótar birgðastöðinni i
Hvalfirði. Fram að þessu
hefur m.s. Stapafell farið
þrjár til fjórar ferðir í einu
milli Hvalfjarðar og Kefla-
víkur með olíufarm sem
farið hefur á tanka Olíu-
félagsins á Keflavíkurflug-
velli. En nú breytist þetta
þannig, að þar til höfnin í
Helgusvík kemst í gagnið
mun skipið koma íleiri
ferðir í einu til Keflavíkur,
en lengri tími líður milli
tarna. Þaðan ereldsneytinu
nú dælt upp á flugvöll og
síðan út í Helguvík, en með
löndunarútbúnaði í Helgu-
vík hverfur þessi hringdæl-
ing.
Með birgðastöð í
Helguvík er síðan hægt að
dæla eftir þörfum um leið
og vanta fer í tanka uppi á
flugvelli, en áður þurfti allt-
af að bíða eftir að Stapa-
fellið gæti annast flutning-
ana. Gefst því mun meira
svigrúm nú fyrir skipið til
að fullnægja flutningaeftir-
spurninni en hingað til.
Að undanförnu hefur
sanddæluskipið Sandey
unnið að dælingu á sandi af
hafnarstæðinu í Helguvík
og er sandurinn sem kemur
þar upp fluttur lengra út í
Faxaflóa. - epj.
Tankarnir tveir sem nú hafa verið teknir í notkun, eins og þeir litu út
úr lofti sl. haust. Ljósm.: pket.