Víkurfréttir - 19.06.1986, Side 1
Hafnir:
Jóhann Sig-
urbergsson
oddviti
Nýkjörin hreppsnefnd
Hafnahrepps kom saman
til fyrsta fundar á þriðju-
dag í siðustu viku. Var þar
samþykkt að kjósa eftir-
talda hreppsnefndarmenn í
eftirtalin trúnaðarstörf út
kjörtímabilið:
Jóhann G. Sigurbergs-
son oddviti, Valgerður
Hanna Jóhannsdóttir vara-
oddviti og Hallgrímur Jó-
hannesson ritari.
Jafnframt var ákveðið að
endurráða Þórarin St. Sig-
urðsson sem sveitarstjóra.
epj-
Vatnsleysustrandar-
hreppur:
JÓN PÁLL
OG KRATARNIR
A 17. jum kepptu meiri- og minnihluti bæjarstjórnar Keflavíkur í reiptogi. Allir fulltrúar meirihlutans
mættu en einungis einn fulltrúi minnihlutans. Fékk hann í lið með sér þrjá fíleflda flokksfélaga sína og
einn sjálfstæðismaður kom ofan úr áhorfendastæðum. Fótu kratarnir heldur halloka í byrjun en kölluðu
svo á varamann sinn, Jón Pál Sigmarsson, og var því ekki að spyrja að leikslokum. Hann skyldi þó
aldrei vera efni í næsta bæjarritara . . . ? Ljósm.: mad.
SÍLDARFRYSTING
í TILRAUNASKYNI
í SUMAR
Omar
Jónsson
kosinn
oddviti
Á fyrsta fundi hrepps-
nefndar Vatnsleysustrand-
arhrepps á mánudag var
Ómar Jónsson kosinn odd-
viti sveitarfélagsins og
Ragnar Karl Þorgrímsson
varaoddviti. Á sama fundi
var ákveðið að auglýsa eftir
umsóknum um stöðu sveit-
arstjóra, birtist sú auglýs-
ing annars staðar í blaðinu í
dag.
epj.
Grindavík:
í sumar verður gerð til-
raun með að frysta síld á
Japansmarkað hjá Hrað-
frystihúsi Þórkötlustaða í
Grindavík, að því er fram
kemur í Fiskifréttum. Verð-
ur síldin kyngreind, en
Japanar sækjast eftir
hrygnum til frystingar.
Hafa verið gerðar til-
raunir með sérstaka vél til
að kyngreina síld og hefur
það gefist vel með vélinni,
sem er íslensk hönnun.
Fyrirliggjandi eru sölu-
samningar við Japani um
lítils háttar af slíkri síld.
epj.
Flugvélin Páll Sveinsson:
Dreifði áttatíu tonnum yfír
Reykjanes um helgina
Reiðhjólaslys
í Keflavík
Á þriðjudag í síðustu
viku varð reiðhjólaslys á
gatnamótum Háaleitis og
Skólavegar í Keflavík.
Hjólaði drengur á bifreið
og var hann fluttur á
sjúkrahús, en meiðslin
reyndust ekki alvarleg.
epj.
Það brá mörgum í brún
er þeir sáu flugvél eins og
gömlu farþegavélar Flug-
félagsins voru, fljúga
lágflug víða hér á Suður-
nesjum síðasta sunnudag.
Við nánári eftirgrennslan
kom í ljós að hér var á ferð-
inni flugvélin Páll Sveins-
son í árlegri fræ- og áburð-
ardreifingu hér yfir.
Fór flugvélin fimmtán
ferðir frá Reykjavíkurflug-
velli og hér yfir með um 80
tonn af áburði og fræi, en
Landgræðslan dreifir þessu
magni á um 35 þús. hekt-
ara svæðu sem var afgirt og
friðað hér 1977. Er þetta
gert í samvinnu við sveitar-
félögin á Suðurnesjum.
epj-
VÍKUR-
FRÉTTIR
VIKULEGA
Marteinn G. Valdimarsson með þann stóra.
Stórflskar úr Heiðarvatni
Stangveiðifélag Kefla-
víkur reisti á síðastliðnu
sumri tvö vönduð veiðihús
við Heiðarvatn í Mýrdal.
Þeir sem dvalið hafa á
staðnum hrósa aðbúnaði og
umhverfi og nú í vor hefur
það aukið ánægju manna
að nokkrir mjög vænir urr-
iðar hafa veiðst í vatninu.
Nokkrir hafa vegið 2-4
pund og um hvítasunnuna
veiddist einn 7 punda.
Nú fyrir nokkrum
dögum kom svo 15 ára
Keflvíkingur á staðinn og
bætti um betur. Hann
veiddi 10 punda urriða á
maðk í víkinni framan við
veiðihúsin.
Vonandi lofar þetta góðu
um framhaldið, en margir
eru búnir að kaupa sér dval-
arleyfi þarna austur frá í
sumar.