Víkurfréttir - 19.06.1986, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 19. júní 1986
VÍKUR-fréttir
Hef opnað
há rg reiðslustofu
að Garðavegi 7, Keflavík
Býð upp á:
Dömu- og herra klippingar
Permanent - Strípur - Litanir
Blástur.
Tímapantanir í síma 3675.
VERIÐ VELKOMIN
Margrét Sumarliðadóttir
Fjölbrautaskóli Suðumesja
Skólaritari
óskast
Við FS er laus til umsóknar heil staða
skólaritara frá 1. ágúst n.k.
Krafist er góðrar kunnáttu í íslensku og
vélritun.
Laun miðast við kjarasamninga opinberra
starfsmanna og ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu hafa borist undirrituð-
um fyrir 1. júlí 1986.
Skólameistari
ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR - ORÐVAR SKRIFAR
GRASA - Leifi var
Suðurnesjum náðargjöf
Hér áður fyrr var öll
snyrtimennska og hrein-
læti litið hornauga, jafn-
vel talin sérviska. Sa sem
fíflaðist í bað oftar en
einu sinni á ári, eða drap
af sér lýsnar.^átti varla
langt eftir. A nútíma-
máli var hann „alveg
glataður“
Sveinbjörn Eplsson
skrifaði ævisögu sina um
síðustu aldarmót. Þar
segist hann hafa gefist
upp á að kenna islensk-
um sjómönnum þrifnað
og reglusemi um borð t
fiskibátum. Menn trúðu
þvi þá, að því sóðalegri
og subbulegri sem skipin
litu út, því fiskilegri
væru þau. Það var ekki
fyrr en 50 árum seinna,
sem Sig. Magnússon á
Víði frá Eskifirði, afsann-
aði þessa kenningu.
Hann og báturinn hans
báru af í öllum flotanum.
Alltaf eins og nýkomnir
úr klössun, og fiskaði
hann þó manna mest.
Samt voru einstaka
menn, sem álitu Sigga
Magg smáskritinn, þegar
hann i landlegum inná
Siglufirði eða Raufar-
höfn, átti það til að reka
sóðalega báta, sem
lögðust utan á Víði í
burtu, og skipa mann-
skapnum að sápuþvo
stýrishúsið, lunninguna
NJARÐVÍK
Til sölu glæsilegar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í
fjölbýlishúsi að Brekkustíg 33A. Afhendingar-
tími í desember 1987. Aðeins 6 íbúðir í stiga-
gangi. Mikil og góðsameign ásamtsérgeymsl-
um í kjallara.
Allar nánari upplýsingar gefur Fasteignasalan,
Hafnargötu 27, sími 1420, eða byggingaraðili,
Hilmar Hafsteinsson í síma 1303.
Húsin eru sams konar og myndin sýnir.
og hvalbakinn. Nú eru
allir fiskibátar skveraðir
af reglulega, og eru í flest-
um tilfellum í þokkalegu
standi. Ekkert lýsirbetur
persónuleika skipstjór-
ans, heldur en batur
hans.
Fyrir nokkrum árum,
þegar gúanófýlan lá hér
yfir öllu, og moldar-
slettur skrýddu fram-
hliðar húsanna við
Hafnargötuna, töluðu
Re^ykvíkingar um slor-
plassin hér suður með sjó.
En það er löngu liðin tíð,
nú telst hreinlæti og
snyrtimennska til mann-
kosta oj» þá eigum við
ekkert siður en Reykjvík
ingar. En snyrtimennið
sker sig úr fjöldanum
ennþá, jafnvel svo að
umhverfið ber þess vitni,
hvar það býr eða vinnur.
Alvöru snyrtimenni, sem
byrja snemma á vorin að
mála húsið sitt og hreinsa
garðinn, og lýkur við
það, smitar oftast ein-
nverja eða flesta við göt-
una. Samt sést alltaf hvar
þessi ekta býr. Hann
gleymir ekki að mála og
lagfæra grindverkið eða
öskutunnuna. Stiginn
stendur heldur ekki allt
sumarið upp við húsið
þar sem hann var
notaður til að komast
uppá þak rétt fyrir 17.
juni.
Það vantar aðeins
herslumuninn á að
Suðurnesin verði snyrti-
legasti byggðarkjarni
landsins, en það verða
allir að hjálpast að með
að ná því marki. Grasa-
Leifi var Suðurnesja-
mönnum náðargjöf.
Hann hefur gert krafta-
verk í umhverfismálum
hér. Flest allar hríslur á
Skaganum, geta rakið
ættir sínar til hans. Það
hefði komið sér vel að
eiga 10 Leifa, þá væri
allur skaginn samfelldur
skógur. Allar stofnanir
o^ umhverfi þeirra eru til
soma. Umgengni og
frágangur við nýbygg-
ingar hefur stórbatnað.
Flest fiskverkunarhús
eru orðin þokkaleg, sum
glæsileg, en það vantar
örlítið meira. Víkurfrétt-
ir hafa oft ýtt við mönn-
um, með undranverðum
árangri, og gæti vafa-
laust vakið fleiri sem hafa
sofnað í ruslinu. Tiltekt
og málning kosta ekki
mikið í jieningum miðað
við þá anægju og vellíð-
an, sem það vekur hjá
ungum sem öldnum.
Sá sem kom ekki auga á
umskiptin, sem urðu við
Reykjanesbrautina frá
Vogum og suður úr, eftir
að krakkarnir í Njarð-
vík hreinsuðu þar til í
vor, ætti að drífa sig í bað
oftar en einu sinni á ári
og drepa af sér lýsnar.
Hann er vissulega „alveg
glataður“.
ORÐVAR
Ein myndanna á sýningu Baðstofunnar
Málverkasýning
Baðstofunnar
Þessa dagana stenduryfir
málverkasýning Baðstof-
unnar í Fjölbrautaskólan-
um. Baðstofan er eins
konar myndlistarskóli
Keflavíkur og starfar á
veturna. Starfsemi þessi
hófst árið 1980 og hefur
allaf verið mikil aðsókn í
námið. I ár voru á milli 40
og 50 manns sem sóttu nám
skeiðin og var þeim skipt
niður í þrjá hópa eftir getu.
Íón Gunnarsson var leið-
einandi tveggja hópa en
Eiríkur Smith leiðbeindi
þeim sem lengst á veg eru
komnin.
Sýning hópsins stendur
yfir til 22. júní og er skorað
á alla myndlistarunnendur
að láta sýninguna ekki fram
hjá sér fara.
Fjörtíu og tveir lista-
menn sýna 240 verk, teikn-
in^ar, pastel, vatnsliti og
olfu.
gjó/gæi