Víkurfréttir - 19.06.1986, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. júní 1986 7
VÍKUR-fréttir
Þessi ruslahrúga var fyrir utan hliðið . . .
og ekki var betra umhorfs fyrir innan það,
Sveitarstjóra-
staða
Starf sveitarstjóra Vatnsleysustrandar-
hrepps er laus til umsóknar.
Umsóknir um aldur, menntun og fyrri störf
skal skila á skrifstofu hreppsins, Voga-
gerði 2, Vogum, fyrir 28. júní 1986.
Upplýsingar veita sveitarstjóri, Kristján
Einarsson í síma 6541 eða 6529, og odd-
viti hreppsins, Ómar Jónsson, ísíma6637.
Skemmdarverk
Þeim brá illa í brún
starfsstúlkunum í gamla
kirkjugarðinum í Keflavík,
er þær mættu til vinnu síð-
asta fimmtudag. Höfðu þá
einhverjir óþokkar dreift
rusli út um garðinn ogjafn-
vel út fyrir hann. Auk þess
sem glerbrotum var dreift
um gangstígana.
Garður þessi hefur verið
til fyrirmyndar hvað um-
hirðu snertir og því er það
ófyrirgefanlegt að ganga
svona um slíkan reit. Að
sögn umsjónarkvenna hef-
ur einnig borið mikið á að
fullorðið fólk gangi ekki.
nógu vel um garðinn og
komi ruslinu ekki á þann
stað sem það á að vera.
Tökum við því undir
áskoranir starfsmanna
garðsins um að sóðaskapur-
inn verði upprættur í eitt
skipti fyrir öll og er þess
vænst að nágrannar sem sjá
yfir garðinn komi þar í lið
með okkur. - epj.
Hálfmálaðir
húsgaflar
I síðasta mánuði lýsti um-
hverfisnefnd Njarðvíkur yfir
áhyggjum um áberandi lélegt
viðhald og ófrágengið bygg-
ingarástand íbúðarhúsa í
hverfum, sem svo hafi verið
árum saman.
Benti nefndin m.a. á nokkur
hús við Hólagötu í Njarðvík
þar sem húsgaflar hafa m.a.
verið hálfmálaðir í áratugi,
þótt við aðalgötu væri. Blasti
ástand húsanna við öllum sem
aka í gegnum Njarðvíkurnar
og því yrið þetta ástand að
lagast, eins og segir í sam-
þykkt nefndarinnar.
ePÍ-
Bílvelta á
Reykjanes-
braut
Siðdegis á fimmtudag
valt bifreið á Reykjanes-
braut skammt innan við
Innri-Njarðvík. Ökumað-
urinn, sem var aldraður
maður fæddur 1913, var
einn í bifreiðinni, kunni
enga skýringu á óhappinu,
en bifreiðin er illa farin.
Slapp ökumaðurinn án
teljandi meiðsla. - epj.
hágæða
ITFKAm KOUuh
Framköllum allar aerðir
litfilma, Fuji, Kodak og Konika,
í nýrri og fullkomnustu
vélasamstæðu á markaðnum í dag.
Hafnargötu 35 - Keflavík - Sími 3634, 4959