Víkurfréttir - 19.06.1986, Page 16
mun
ýtiUit
Fimmtudagur 19. júní 1986
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717.
Njarðvík:
Of þröng
Stjórnendur stórra öku-
tækja hafa kvartað mjög
yfir „mini-golfvellinum“
svokallaða í Njarðvík. Er
hér átt við umferðarmann-
virki þau sem Vegagerðin
setti upp á Reykjanesbraut-
inni við Borgarveg.
í síðustu viku kom þetta
best í ljós er dráttarbíll með
tengivagn kom suður Borg-
arveg og ætlaði að taka
hægri beygju inn á Reykja-
nesbraut. Er afturhjólin á
vagninum voru komin upp
á grasbalann á gatnamót-
unum var húsið að framan
komið fast í akreinamerk-
ið á miðri götunni. Hinum
megin á gatnamótunum
kom strætisvagn austur
Borgarveg og ætlaði að
taka hægri beygju inn á
Reykjanesbraut. Náði hann
ekki beygjunni af sömu
ástæðum og hinn bíllinn.
gatnamót
Myndaðist af þessu
umferðarteppa þar til
ökumenn þessara tveggja
bifreiða gátu leyst hnútinn
með ýmsum forfæringum,
s.s. að aka upp á umferðar-
eyjuna.
Sést á þessu að viðkom-
andi gatnamót eru of þröng
og því tekur Vegagerðin
vonandi tillit til þess áður
en slíkar framkvæmdir
koma til á fleiri stöðum.
Meðfylgjandi myndir tók
blaðamaður Víkur-frétta
sem staddur var á staðnum
þegar umferðarteppan
varð. Segja þær meira en
orðin. - epj.
Eins og sjá má á þessum myndum eru gatnamótin ekki byggð fyrir stór ökutæki.
Hollenskur
griótflutnings-
prammi
Á sunnudaginn kom
hollenski dráttarbáturinn
HUNTER til Njarðvíkur
með stóran grjótflutnings-
pramma í drætti frá Holl-
andi. Er pramminn leigður
til verktakafyrirtækisins
Núps hf., sem annast mun
hafnarframk væmdir í
Helguvík.
Verður pramminn
notaður til að sigla með
grjótið í garðinn. En þar
sem botn hans opnast eftir
kominn
endilöngu við losun er hægt
að setja grjótið á þann stað
sem það á að vera. Þá er
pramminn mjög grunnrista
og því mjög heppilegur til
verksins.
Er áætlað að verk þetta
taki ekki skemmri tíma en
eitt og hálft ár og hefur
egar verið gerður viðlegu-
antur fyrir prammann þar
sem grjótið verður sett í
hann. -epj.
AUGLYSIÐ I
VÍKUR-fréttum
Grjótflutningspramminn sem Núpur mun nota í Helguvík
Eins og sést erdráttarbáturinnHuntersíðurensvo nýttskip
Spurningin:
Áttu von á rign-
ingarsumri?
Vigdís Pálsdóttir:
„Nei, þetta breytist um
mánaðarmótin, - til hins
betra".
Enok Guðmundsson:
,,Já, ég á von á því“.
Jóhann Sævar Simonarson:
,,Já, ég reikna fastlega
með því“.
Sævar Sigurðsson:
„Nei, ég á ekki von á því.
Þetta verður gott sumar".