Morgunblaðið - 17.11.2015, Side 11
Fallegur og virkar vel Helgi stoltur á Deutzinum að slá grængresið fimlega með gömlu góðu sláttugreiðunni.
og hálft fet. Eftir það var hann mest
notaður til að raka saman hey á tún-
um, en einnig við að snúa heyblásara
og enn seinna við að snúa bagga-
færibandi. Næsti traktor sem keypt-
ur var í Haga, nokkrum árum eftir
komu Deutzins, var Nalli, eða It-
nernational og þar á eftir kom
Ferguson.“
Deutzinn var því fyrsti og eini
sinnar tegundar þar á bæ og
kannski þess vegna sem Helgi er
nokkuð veikur fyrir slíkum traktor-
um.
„Þeir fara ekkert framhjá mér
á ferðum mínum um landið og ég
verð alltaf að stoppa ef ég sé þeim
bregða einhvers staðar fyrir. Ég
þarf að kíkja betur á þá, sjá árgerð-
ina og annað. Ég sá síðast tvo
Deutz-traktora í Grindavík í sumar,
þeir stóðu þar utan við verkstæði.“
Upprunaleg dekk að aftan,
ófúin og engin sprunga í þeim
Helgi segist hafa sótt traktor-
inn góða heim í Haga árið 2009, til
að gera hann upp.
„Ég vildi forða honum frá því að
skemmast og Kristrún amma mín
gaf mér fúslega leyfi til að taka
hann. Hann hafði staðið inni í hlöðu í
mörg ár, var reyndar gangfær en
mikið ryðgaður og orðinn lúinn. Ég
var með hann inni í bílskúrnum hjá
mér allan veturinn hér í Reykholti í
Biskupstungum þar sem ég bý, og
dyttaði að honum. Þetta var mikil
vinna og óteljandi vinnustundir sem
fóru í þetta. Ég sandblés hann,
grunnaði og lakkaði. Skipti um púst
og framdekk, pakkningar, smurði og
gerði annað sem þurfti. En ég tók
ekki vélina eða gírkassann í sundur,
enda var það allt í góðu lagi. Mér
finnst merkilegt að enn eru á honum
upprunaleg dekk að aftan, en hann
er orðinn 55 ára, það er góð ending.
Það er ekki til fúi eða sprunga í
þeim, en vissulega hjálpaði til að
hann var ekki mikið keyrður á mal-
arvegum heldur mest á túnum og
stóð inni yfir vetur. Vatn og frost
komust ekki að til að skemma dekk-
in,“ segir Helgi og bætir við að hann
hafi aðeins verið búinn að æfa sig
nokkrum árum áður, þegar hann
gerði upp gamlan Ferguson sem enn
er í notkun í Haga.
Gárungarnir kalla nýja
bílskúrinn Deutz-höllina
Helgi setur traktorinn sinn í
gang reglulega og rúntar þá um
Reykholtshverfið.
„Ég fer stundum á honum í
búðina með krakkana mína, það er
mikið sport svona spari. En hann er
auðvitað mest til skrauts. Ég geymi
hann í aukabílskúr sem ég byggði
fyrir nokkrum árum, en um leið og
ég byrjaði á þeirri byggingu fóru
gárungarnir að kalla þetta Deutz-
höllina, þeir vildu meina að þetta
væri byggt utan um traktorinn, og
kannski er eitthvað til í því,“ segir
Helgi og hlær.
Allir sem kynnst hafa traktor-
um vita að skiptar skoðanir eru um
hvaða tegund sé nú öðrum fremri,
en hjá Helga er Deutz að sjálfsögðu
í fyrsta sæti, síðan kemur Nallinn
(International) og í þriðja sæti er
Massey Ferguson.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015
Fullkominn skurður með
Hypertherm málmskurðvél
Plasmaskurðvélar
Öruggur og nákvæmur skurður
Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is
Spaksmannsspjarir: Útrás
Spaksmannsspjara.
Kjartan Óskarsson: Halo
lampi.
North Limited: Markaðs-
setning á North Limited í Bret-
landi.
Genki Instruments: TE.
TOS: Veggur af vegg – lóðrétt
landslag.
Rán Flygenring: Heim-
ildateiknarinn, útgáfa.
Laufey Jónsdóttir og Anna
Margrét Björnsson: Barnabókin
Leynigesturinn.
Aurum: Áframhaldandi mark-
aðs- og sölusókn í Bretlandi.
Arkitektar Hjördís og Dennis:
Hús árstíðanna – vistvæn/ sjálfbær
íbúðarhús.
Steinunn Björg Helgadóttir:
Vefnaður.
Halldóra Arnardóttir: Bókverk
um Skarphéðinn Jóhannsson, arki-
tekt.
Hanna Dís Whitehead: Dialog
02 – Matarstell.
Sif Baldursdóttir: Markaðs- og
sölusókn Kyrju.
Þau sem hlutu ferðastyrk: Ingi
Kristján Sigurmarsson, Þórður
Grímsson, Stefán Snær Grét-
arsson, Fatahönnunarfélag Ís-
lands, Erla María Árnadóttir, Jón-
as Valtýsson, Steinunn Eik
Egilsdóttir, Guja Dögg Hauks-
dóttir, Scintilla, Kristín María Sig-
þórsdóttir, Ingibjörg Hanna
Bjarnadóttir, Þóra Birna Björns-
dóttir, Gagarín, Rebekka Jóns-
dóttir.
Vakin er athygli á að næst verð-
ur opnað fyrir umsóknir fyrir
2016 um miðjan desember. Fylgist
með á vefsíðunni:
sjodur.honnunarmidstod.is
Hönnuðir Sif Baldursdóttir fatahönnuður sem er á bak við merkið Kyrja og
Rebekka Jónsdóttir fatahönnuður sem er á bak við merkið REY.
Nýlega kom út bókin Traktorar í
máli og myndum, hjá JPV forlag-
inu en þar er lesandinn leiddur á
ljóslifandi hátt í gegnum sögu
þessa magnaða tækis sem um-
bylti landbúnaði heimsins á 20.
öld. Fjallað er um 450 traktora
af öllum stærðum og gerðum,
sögu vinsælustu tegundanna og
mennina á bak við þær.
Í máli og
myndum
TRAKTORAR
Flottur Gripurinn á sýningu í heimasveitinni, Borg í Grímsnesi.
Afi og amma Helgi Guðnason með
konu sinni Kristrúnu Kjartans-
dóttur á giftingardaginn 1943.