Morgunblaðið - 17.11.2015, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 17.11.2015, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2015                                     !  "   ## ## $" $!  ! $ %&'() '*'     +,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4 $ "    5   $ #$!# #$" $$5 $!"  $! $       # #$ #$ $ $!!   $"  5# Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Vinsamlegast skráið þátttöku á www.sa.is Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins Brynhildur S. Björnsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna HVERT FARA PENINGARNIR ÞÍNIR? Á Alþingi er nú rætt um hvernig nærri 700 milljörðum verður varið á næsta ári. Hvað færðu fyrir skattana þína og hver er forgangsröð stjórnmálamanna? Hvernig er hægt að byggja upp innviði samfélagsins? Hvað greiða fyrirtækin í ríkiskassann og hversu mikið ættu þau að greiða? Hvað bíður okkar í framtíðinni? Þátt taka fulltrúar stjórnmálaflokkanna á Alþingi: Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, setur fundinn. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, stýrir umræðunum. Fundargestir fá eintak af greiningu efnahagssviðs SA á fjármálum ríkisins. Kaffi og með því frá kl. 14.30. OPINN UMRÆÐUFUNDUR UM FJÁRMÁL RÍKISINS, MIÐVIKUDAGINN 18. NÓVEMBER KL. 15-16.30 Í NORÐURLJÓSUM Í HÖRPU. FUNDURINN VERÐUR SÝNDUR BEINT Í SJÓNVARPI ATVINNULÍFSINS Á VEF SA. [90 MÍNÚTUR] VIÐTAL Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé umræða gærdagsins því önnur mál er varða bankastarfsemi eru mun mikilvægari,“ segir Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Ís- lands, en hann flytur erindi um að- skilnað viðskiptabanka og fjárfest- ingabanka á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga á Fosshóteli í dag. Hann segir að í grundvallaratrið- um séu viðskipta- bankar og fjár- festingabankar ólíkar stofnanir. „Viðskiptabankar sinna fjármála- legri milligöngu þegar þeir taka við innlánum og velja verkefni til út- lána. Fjárfestingabankar fram- kvæma slíka milligöngu á markaði, meðal annars þegar þeir finna rétta markaðsverðið á frumútgáfum verð- bréfa.“ Ásgeir segir kostnaðarhagræði og áhættudreifingu vera helstu ástæður þess að starfsemin er rekin samhliða. „Bæði tekjur og fjármögnun verður fjölbreyttari. Alhliða bankar eru einnig gjarnan hagkvæmari og stöð- ugri bankar vegna samlegðar í rekstri. Auk þess getur það verið betra fyrir fyrirtæki að geta fengið fjölbreytta þjónustu á einum stað, hvort sem er varðandi fjármögnun eða skráningu.“ Það sem hins vegar mæli helst á móti alhliða rekstrarmódeli sé hætt- an á að bankarnir verði of stórir, að sögn Ásgeirs. „Þeir verða kerfislega mikilvægir og fá sjálfkrafa ríkis- ábyrgð sem er síðan notuð til áhættu- töku. Það var að einhverju leyti vandamálið með gömlu bankana. Þá halda sumir því fram að svo stórir bankar hafi kæfandi áhrif á hluta- bréfamarkað því verið sé að leysa mál innan bankans í stað þess að fara á markað. Það verður þannig erfiðara fyrir minni verðbréfafyrirtæki að keppa við þá. Einnig hafa sumir áhyggjur af hagsmunaárekstrum þar sem fjárfestingabankar geta nýtt ótakmörkuð ríkistryggð innlán og gagnsæið verður minna.“ Ásgeir segir að í ljósi stærðar Ís- lands þá gæti í raun einn viðskipta- banki þjónustað landsmenn. „Það væri hægt að ná heilmiklu hagræði en væri auðvitað ekki skynsamlegt, meðal annars vegna samkeppnis- sjónarmiða. Ég tel að ef starfsemin væri aðskilin þá mundi kostnaðurinn aukast gríðarlega. Það væri hætta á að við fengjum veikari fjárfestinga- banka því þeir yrðu mun minni og að- skilnaður myndi engu breyta um kerfislægt mikilvægi bankanna þriggja.“ Aðskilnaður er ekki lausn til að koma í veg fyrir að hrunið endurtaki sig, að mati Ásgeirs. „Ástæða þess að neyðarlögin heppnuðust á Íslandi var að íslensku bankarnir voru líka fjá- festingabankar. Þeir voru með tölu- vert mikið af heildsölulánum og svo fór að erlendir kröfuhafar borguðu fyrir forgang innistæðna með neyð- arlögunum og raunar stóran hluta af kostnaði við hrunið með stöðugleika- framlögum. Í meginatriðum var fjár- málabólan 2004-2007 vegna óábyrgra útlána viðskiptabanka fremur en fjárfestingabankastarfsemi.“ Hann segir mörg mál brýnni og frekar ætti að ræða fjármögnun húsnæðislána til lengri tíma, umfang skuggabanka- starfsemi og hvernig á að skapa opið fjármálakerfi sem getur starfað við opinn fjármagnsmarkað og gengis- sveiflur. Alhliða bankar hagkvæmari Morgunblaðið/Ásdís Bankar Aðskilnaður viðskipta- og fjárfestingabanka gæti aukið kostnað. Ásgeir Jónsson  Aðskilnaður leiðir til meiri kostnaðar Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Viðræður eru nú þegar hafnar um mögulega sölu á Arion banka til íslenskra lífeyrissjóða. Í gær hittu framkvæmdastjórar þriggja stærstu lífeyrissjóða landsins slitastjórn Kaupþings þar sem rætt var um möguleg kaup þeirra og annarra lífeyrissjóða á 87% hlut slitabúsins í Arion banka. Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardag- inn ákváðu Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Lífeyrissjóður verslunarmanna (LV) og Gildi á föstudaginn að sjóðirnir þrír myndu sjálfir hafa frumkvæði að viðræðum við slitabúið um möguleg kaup á bankanum. Fól sú ákvörðun einn- ig í sér að öðrum lífeyrissjóðum í landinu var boðin þátttaka í tilboðsgerðinni, sem eftir sem áður yrði undir forystu LSR, LV og Gildis. Samhliða þeirri ákvörðun var það niðurstaða sjóðanna að ganga hvorki að tilboði Arctica Finance né Virðingar um þátttöku í mótun fjárfestahóps sem bjóða myndi í hlut slitabúsins í bankanum. Er það samhljóða ákvörðun stjórna LSR, LV og Gildis að engir aðrir fjárfestar muni koma að kaupunum fyrst í stað í samfloti við lífeyrissjóðina. Í kjölfarið er hugmyndin hins vegar sú að fag- og einkafjárfestar muni fá kost á því að eignast hlut í bankanum. Þar verði sérstaklega tryggt að al- menningi verði gert kleift að eignast hlut í bank- anum á sama verði og lífeyrissjóðirnir muni greiða fyrir hlut sinn. Hins vegar muni öðrum þeim sem fjárfesta vilja í bankanum gefinn kostur á að bjóða í hlut í bankanum en að í slíkri tilboðsbók muni verð ráðast af eftirspurn og öðrum þáttum og að það verði mögulega hærra en það verð sem lífeyr- issjóðir og almenningur greiða fyrir sinn hlut. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var ákveðið að viðræðuaðilar muni hittast í næstu viku og ræða um möguleg næstu skref í samningavið- ræðum. Á fundinum munu engar umræður hafa verið um mögulegt verð á hlut slitabúsins í bank- anum. Viðræður um Arion hafnar  Lífeyrissjóðir hittu slitastjórn Kaupþings í gær  Ekki farið að ræða um verð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.