Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 25.06.1987, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 25.06.1987, Blaðsíða 3
mun futtii Fimmtudagur 25. júní 1987 Alþjóðlegur svipur Það er óhætt að segja að Hótel Keflavík hafl tekið á sig alþjóðlegan svip nú síðustu daga. Búið er að byggja nýtt skyggni við anddyrið og þar ofan á er fánum ýmissa þjóða komið fyrir ásamt íslenska fánanum. Sýnir meðfylgjandi mynd svip þennan en hún var tekin á þjóðhátíðar- daginn okkar. Ljósm.: epj. Þrjú ný útgerðarfyrirfæki Samkvæmt nýlegu Lög- birtingablaði hafa nýlega verið stofnsett þrjú útgerðar- fyrirtæki á Suðurnesjum, þ.e. tvö í Miðneshreppi og eitt í Keflavík. Staðarberg h.f., Miðnes- hreppi, er einnig fyrirtæki með fiskverkun og hefur ný- lega keypt til Sandgerðis 13 tonna bát sem skráður hefur verið undir nafninu Gunnar Sveinn GK 237. Stofnendur fyrirtækisins eru Guðlaugur Vignir Sigursveinsson, Stein- unn Jónsdóttir, Jón Bjarni Sigursveinsson og Júlía S. Stefánsdóttir, öll í Sand- gerði, Þorleifur Hallgríms- son og Bergljót Sigvalda- dóttir, Grindavík, ásamt Gullá h.f., Sandgerði. Bátsendar h.f., Sandgerði, er stofnað af Einari Kr. Frið- rikssyni, Maríu Vilbogadótt- ur, Einari Júlíussyni og Júlí- usi H., Sandgerði, og aðila úr Reykjavík. Ungi h.f., Keflavík, er stofnað af Erni Erlingssyni, Stefáni Arnarsyni, Erlingi Arnarsyni og Guðrúnu Gísladóttur, Keflavík, og Garðari Garðarssyni hrl. Fölki boðið í beina útsendingu Ævar Kjartansson, frétta- maður á Rás 1 hjá ríkisút- varpinu, hefur tekið að sér gerð þáttaraða um málefni Suð-vesturhornsins. Er hver þáttur tekinn upp í beinni út- sendingu í hinum ýmsu byggðarlögum svæðisins. Næstkomandi sunnudag milli kl. 15 og 16 mun fyrsta útsendingin fara fram og gefst Suðurnesjamönnum þá kostur á að taka þátt í henni. Mun verða sent út frá Glaumbergi í Keflavík og er öllum íbúum Suðurnesja boðið í kaffi þennan tíma, hvort sem þeir vilja taka þátt í útsendingunni eða kynna sér hvernig slík útsending fer fram. Fyrirtæki þetta er eigandi m.b. Guðmundar Arnars KE 200. VÍKUR-FRÉTTIR Á HVERJU HEIMILI cc cc DC < O * </> < (D (/> * O i ► f Sandgerði - Sími 7415 - Þar verslar þú þegar þér hentar. G0LF - MÓTIÐ á Hólmsvelli í Leiru, þriðjudaginn 30. júní. Leiknar verða 18 holur m/án forgjafar. - Glæsileg verðlaun. Aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu á 13. og 16. braut. - Ræst út frá kl. 14.30. GOLFARAR, SUÐURNESJUM - FJÖLMENNIÐ!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.