Víkurfréttir - 25.06.1987, Síða 6
6 Fimmtudagur 25. júní 1987
Við brottför frá Keflavíkurflugvelli. Fjórir Suðumesjamenn úr starfsliði Arnarflugs, f.v.
Inga Jónsdóttir, Óli Kjartansson, Sigurveig Guðmundsdóttir og Magnús Brimar Jóhannsson.
Ljósmyndir: epj.
1 DAG SF E RÐ
TIL ZUR - MEÐ GLÖÐINNI 0G ARf II slARI 1 JPil FLUGI
Um klukkan 8.30 að
morgni síðasta laugardags
fór sex manna hópur Kefl-
víkinga í dagsferð til Zurich í
Sviss. í hópi þessum voru
þrír fulltrúar frá Glóðinni,
þeir Axel Jónsson, veitinga-
maður, Daði Arngrímsson,
íþróttamiðstöð
Njarðvíkur
Sundnám-
skeið
Innritun hefst 1. júlí kl. 10.00. í íþróttamið-
stöðinni í síma 2744. Námskeiðið er fyrir
börn fædd 1982 og eldri. - Verð kr. 1.000.
Þórunn Magnúsdóttir, Margrét Sanders
íþróttakennarar
Grindavík
ð 1. ágúst 1987 verður
rusiahaugunum
við Hópsnesið lokað
Er bæjarbúum sérstaklega bent á þá
skyldu sorpeyðingarstöðvarinnar að taka
allt brennanlegt rusl frá íbúðarhúsum og
þeir hvattir til að nýta sér það til fulls.
Grindavík, 19. júní 1987.
Bæjarstjóri
yfirkokkur og Óskar Ársæls-
son, yfirþjónn. Einnig voru í
hópnum Emil Páll Jónsson
frá Víkurfréttum og Gestína
Sigurðardóttir frá Arnar-
flugi. Sjötti Keflvíkingurinn
sat fram í flugstjórnarklefa,
en það var Magnús Brimar
Jóhannsson, flugmaður.
Ferð þessi var farin í boði
Arnarflugs og auk fulltrúa
frá Glóðinni og Arnarflugi
var fjölmennur hópur fjöl-
miðlafólks. Tilefnið var að
kynna ýmsar nýjungar í
rekstri Árnarflugs s.s. hinn
nýja og velheppnaða flug-
mat frá Glóðinni. Flugið til
Sviss tók tæpa fjóra tíma og
þar var stoppað í um 5 tíma
meðan flugvélin fór í leigu-
flug til Sikileyjar, en síðan
var haldið heim á ný og kom-
ið þangað á ellefta tímanum
um kvöldið.
Fyrir þessa ferð afgreiddi
Glóðin 600 matarbakka en
1.500 yfir helgina. Að sögn
Daða Arngrímssonar, yfir-
kokks, munu þeir hafa fjórar
tegundir rétta, þar af er
morgunverður, sem borinn
er fram í flugvélum sem fara í
loftið um eða fyrir klukkan 7
að morgni mjög vinsæll. Sem
kunnugt er var samningur
Arnarflugs og Glóðarinnar
gerður um síðustu mánaða-
mót. Með því hófst nýr kafli í
sögu fyrirtækisins. Frá þeim
tima sem samningurinn var
undirritaður hafa farið fram
TEXTI OG
MYNDIR:
Emil Páll
Daði Arngrímsson, yfirkokkur Glóðarinnar, við
framreiðslustörf um borð í flugvélinni.
daglegar afgreiðslur á mat
um borð í flugvélar Arnar-
flugs á Keflavíkurflugvelli.
Er það samdóma álit
Arnarflugs, Glóðarinnar og
allra annarra, sem kynnt
hafa sér málið, að starfsemi
þessi hafi farið mjög vel af
stað. Til að geta annast þetta
hefur Glóðin tekið á leigu
200 fermetra húsnæði að Iða-
völlum 5 til starfrækslu eld-
húss til framleiðslu á „flug-
mat“. Er nú unnið að innrétt-
ingu húsnæðis þessa.
I ferð þessari aðstoðuðu
yfirkokkur og yfirþjónn
Glóðarinnar við framreiðslu-
störf i flugvélinni. En að sögn
Axels Jónssonar er fyrirhug-
að m.a. að kokkur aðstoði
flugfreyjur Arnarflugs við
framreiðslustörf um borð i
vélunum. Annars sagðist
Axel vonast til að ársfram-
leiðsla fyrirtækisins myndi
verða um 20 þúsund flug-
bakkar.
Sem kunnugt er af frétt-
um hefur Glóðin/Veislu-
þjónustan gegnt nokkuð
stóru hlutverki í atvinnulífi
Keflavíkur. Sem dæmi þar
um veitti það 40 manns at-
vinnu á síðasta ári og greiddi
um 20 milljónir í vinnulaun.
Auk þess sem sú þjónusta
sem það veitti var þess eðlis
að hefði fyrirtækið ekki verið
til staðar, hefði þurft að
sækja þjónustu þessa til ann-
arra byggðarlaga. Er hinn
nýji áfangi því mikið fagnað-
arefni, auk þess er hér um
mikið réttindamál að ræða
varðandi þjónustu Suður-
nesjamanna gagnvart flug-
vellinu.
í ferð þessari var flugleið-
in til Zurich kynnt, auk
ýmissa nýjunga s.s. ný áklæði
á vélunum, nýr flugfreyju-
búningur og ýmis aðstaða
sem ráðgert er að taka upp í
vetrarfluginu s.s. aðstaða
fyrir börnin o.fl.
í Zurich í Sviss. Fulltrúar Gjóðarinnar, f.v.: Axel Jónsson,
Daði Arngrímsson og Oskar Ársælsson.