Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 25.06.1987, Side 7

Víkurfréttir - 25.06.1987, Side 7
\/iKun Fimmtudagur 25. júní 1937 7 Vita þau upp á sig sökina? Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Þessi málsháttur kom fram á varir okkar þegar við lás- um blað það, sem tók upp hanska Arndísar Tómas- dóttur í síðustu viku. Oft hefur okkur undrað margt, en að við ættum eftir að sjá ritstjóra þess blaðs skríða undir pils- faldinn hennar Laddýar, áttum við síst von á. Enn meiri athygli vekur það hjá okkur að þessi sami ritstjóri gerir enga tilraun til að mót- mæla fullyrðingu Laddý- ar um að „blaðamenn séu lögverndaðir lygarar". Eða að „inn á ritstjórn blaðanna hér í bæ, geti komið hver og einn og logið upp næstum hverju sem er í skjóli þagnaðar- skyldu“. Og „aðsiðgæðis- vitund blaðamanna sé ekki meiri en svo, að þeir sjá ekki sóma sinn í að leita sannleiksgildis frétt- ar“. Eða að „ritstjórum blaðanna sé ekkert heil- agt, síst æra einhvers úti í bæ“. Ritstjóri hins blaðsins mótmælir þessu ekki, sjálfsagt er ástæðan sú að hann veit upp á sig sök- ina. Við erum hinsvegar að íhuga ákæru á hendur Arndísi fyrir þessi um- mæli. Þetta veit Arndís, þess vegna var okkur helst hlátur efst í huga þegar við lásum að hún væri „sár og undrandi“ og að „gróflega væri að sér veg- ið“. Eða að árásir þessar hefðu komið niður á fjöl- skyldu hennar og vinum. Því spyrjum við hana hvort hún haldi að þau orð, sem við vitnuðum í hér áður, hafi ekki komið niður á okkar fjölskyld- um eða vinum. Ef hún veit ekki svarið þá er rétt að upplýsa það hér, að svo sannarlega hafa þau gert það. Ritstj. HEIÐRUÐU VIÐSKIPTAVINIR Hef hætt rekstri myndbanda- leigu. Um leið og ég þakka ánægjuleg viðskipti vil ég leggja til og mæla með aðþið beinið við- skiptum ykkar til myndbanda- leigunnar Phoenix Video í Kefla- vík. Vegna þessa höfum við breytt opnunartíma okkar og höfum nú opið mánudaga til föstudaga kl. 9-19 og laugardaga kl. 10-15. ATH: Við framköllum á laugar- dögum. Iiilt’inn Halnargotu 35 - Keflavik - Simi 3634. 4959 NÝ SÍMANÚMER TAKA GILDI 1. JÚLÍ Sparisjóðurinn í Keflavík Sparisjóðurinn, Njarðvík Sparisjóðurinn, Garði 1 -28-00 1 -38-00 2-71-00

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.