Víkurfréttir - 25.06.1987, Qupperneq 13
MÍKUR
juUit
Fimmtudagur 25. júní 1987 13
Eigendur verslunarinnar „Börnin", Brynja [t.v.j og Kristín.
Ljósm. bb.
..Börnin" í Hölmgarði
Barnafataverslunin Böm-
in hefur verið starfrækt i
Hólmgarði um nokkurt
skeið og hefur reksturinn
gengið vel að sögn systranna
Hildar og Brynju Kristjáns-
dætra, sem eiga og reka
verslunina. „Við erum með
föt fyrir börn á aldrinum
tveggja til tólf ára frá þekkt-
um framleiðendum sem hafa
sérhæft sig í barnafatnaði,“
sagði Brynja í samtali við
Víkurfréttir.
Brynja sagði að frá
Bandaríkjunum væru þær
með föt frá Oshkosh, San-
etta Kanz frá Vestur-
Þýskalandi og Cippie
Trorinette frá Frakklandi,
allt ákaflega vandaðar vör-
ur.
Auk þess eru þær systur
með móttöku fyrir Éfna-
laug Suðurnesja í verslun-
inni.
Hámarkshraði aukinn
Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefur gefið út
reglugerð um hámarkshraða
og hefur hún þegar tekið
gildi. Tekur breyting þessi til
Reykjanesbrautar, Víkna-
vegar og Garðvegar.
Er hámarkshraði á
Reykjanesbraut sunnan
Hafnarfjarðar nú 90 km á
klukkustund. Á Víknabraut
(gamla Reykjanesbrautin)
frá Fitjum að skilum 200
metrum sunnan við Grænás
er hámarkshraðinn 70
km/klst. Þar tekur siðan við
50 km/klst. í gegnum þétt-
býlið. Síðan verður hámarks-
hraðinn 70 km/klst. á
þjóðveginum sunnan þétt-
býlisins að Garðskagavegi.
i'l MSM ii ii'
rii ii iii ii iiii
Byggöasafn Suðurnesja
Opið í sumar á miðvikudögum kl. 17:00-21:00.
Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 3155, 1555 og 1769.
Styrktarfélag
aldraðra á
Suðurnesjum
SUNDNÁMSKEIÐ verður haldið í Sund-
höll Keflavíkur og hefst miðvikudaginn 1.
júlí kl. 11.30. - Notum þetta góða tækifæri
og mætum vel. Námskeiðið er ókeypis.
Innritun í síma 1709 (Soffía), símia 4322
(athvarf aldraðra) eða í Sundhöllinni, sími
1145.
Sjúkrahúsið:
Stjómarmönn-
um verði boðið í
starfskynningu
Fulltrúar starfsfólks í
stjórn Sjúkrahúss Keflavík-
urlæknishéraðs og Heilsu-
gæslustöðvar Suðumesja,
þau Gísli Viðar Harðarson
og Guðrún Guðbjartsdóttir,
lögðu fram eftirfarandi til-
lögu á fundi stjómarinnar ný
lögu á fundi stjórnarinnar
nýverið:
,, Við fulltrúar starfsfólks
viljum gera það að tillögu
okkar, að fulltrúum sveitar-
félaganna í stjóminni verði
gert kleift að vera í tveggja
daga starfskynningu á SK og
HSS. Þannig teljum við að
þeim gefist gott tœkifæri á að
kynnast eðli og umfangi þeirr-
ar starfsemi sem þar fer
fram.“
Samþykkti stjórnin að fela
framkvæmdastjóra að koma
þessu á, ef unnt væri.
„EINN“ - „ÞRÍR“ og „SEX“
bætast við frá og með 1. júlí n.k.
Landsbankinn, Keflavíkurflugvelli .. 1-21-70
Landsbankinn, Sandgerði .........3-78-00
Landsbankinn, Grindavík .........6-81-79
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
KEFLAVÍKURFLUGVELLI • SANDGERÐI
GRINDAVlK