Víkurfréttir - 25.06.1987, Blaðsíða 15
mun
jutUi
Ný tölvuvigt við
Keflavíkurhöfn
Núverandi hafnarvigt í
Keflavíkurhöfn er orðin tals-
vert úr sérgengin og sjá hafn-
aryfirvöld því fram á miklar
endurbætur á vigtinni með
haustinu ef hún á að notast
áfram. Vegna þessa hafa þau
ákveðið að leita tilboða í nýja
60 tonna tölvuvog.
Að sögn Péturs Jóhanns-
sonar, hafnarstjóra hjá
Landshöfn Keflavík/Njarð-
vík, hefur einnig verið rætt
um að færa vigtina og jafnvel
setja hana undir sama þak og
nýju skrifstofur hafnarinnar,
þ.e. í húsið Víkurbraut 11,
sem höfnin hefur keypt, en
með því að hafa alla þjónustu
undir sama þaki kæmi ýmis
hagkvæmni fram varðandi
rekstur hafnarinnar.
LANDSHÖFNIN:
Upptökubraut fyrir
smábáta I Njarðvík
Stjórn LandshafnarKefla-
vík/Njarðvík hefur sam-
þykkt að byggja upptöku-
braut fyrir smábáta í Njarð-
vík. Að sögn Péturs Jó-
hannssonar, hafnarstjóra,
verður brautin byggði við
hlið Suðurgarðsins, neðan
við vaktskúr hafnarvarðar.
Með braut þessari mun skap-
ast þarna aðstaða til að setja
á flot smábáta og taka slíka
báta á land.
Þá hefur höfnin samþykkt
að gera kostnaðaráætlun á
úrbótum fyrir smábátaeig-
endur í Keflavík og Njarð-
vík. Yrði áætlun þessi unnin í
samráði við bæjarfélögin.
Nokkrir þekktir iþróttamenn heimsóttu krakkana á námskeiðinu í Keflavík og
var Arnór Guðjonscn, atvinnumaður í knattspyrnu í Belgiu, meðal þeirra.
Hann hafði nóg að gera við að gefa eiginhandaráritun, eins og sjá má.
Ljósm.: bb.
Leikjanámskeið I
Keflavík og Njarðvík
Leikjanámskeið fyrir börn
standa nú yfir bæði í Keflavík
og Njarðvík og hefur aðsókn
verið mikil. Nú er fyrstu nám-
skeiðunum að ljúka og ný að
hefjast.
Kennt er fyrir og eftir há-
degi á báðum stöðum og eru
leiðbeinendur á námskeiðun-
um allt íþróttakennarar.
Farið er yfir grundvallar atr-
iði í flestum íþróttagreinum
og ýmislegt gert til skemmt-
unar. Farið er i fjöruferðir, á
golfvöllinn og þekktir í-
þróttakappar koma í
heimsókn. Þá eru hjólaþraut-
ir og keppt verður í frjálsum
íþróttum.
Næstu námskeið hefjast 1.
júlí og fer skráning fram í
íþróttamiðstöðinni í Njarð-
vík og Iþróttahúsinu við
Sunnubraut í Keflavík.
Þessir kátu krakkar voru á iþróttanámskeiðinu í Njarðvik í yngsta flokknum
og voru að leikasér ísudlauginni, sem ereinn þátturnámskeiðsins. Ljósm. bb.
Fimmtudagur 25. júní 1987 15
Nú er aö hefjast nýtt námskeið hjá íþrótta- og leikjaskóla
Keflavíkur fyrir böm 6-12 ára. Námskeiöið hefst 1. júlí og
stendur út júlimánuð.
Fjórir íþróttakennarar starfa við skólann og kenna þeir
undirstöðuatriði ýmissa íþróttagreína, m.a. knattspymu,
handbolta, körfubolta, blak, frjálsar íþróttir og ýmsa leiki
bæði úti og inni.
Kennsla fer fram í íþróttahúsinu og á íþróttasvæðínu. Inn-
ritun í júlínámskeiðið fer fram mánudaginn 29. júni kl. 16-
19 í íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut.
Þátttökugjald er kr. 1.000.
ÍÞRÓTTARÁÐ KEFLAVÍKUR
ATVINNA - ATVINNA
Starfsfólk vantar í eftirtalin störf:
Vörubílstjóra - Tækjamann
Lyftaramann og í snyrtingu og pökkun.
Bónuskerfi - Mikil vinna.
Upplýsingar gefur verkstjóri í vinnusíma 1104 og heimasíma
4274.
HRAÐFRYSTIHÚS KEFLAVÍKUR HF.
Starfsfólk - Frystihús
Óskum að ráða fólk í eftirtalin
störf:
• Pökkun og snyrtingu
• Bílstjóra
• Vanan mann á lyftara.
GREIÐUM HÆSTU LAUN Á
VINNUMARKAÐNUM.
Upplýsingar í síma 4666 og hjá
verkstjóra í síma 6048.
BRYNJÓLFUR HF.