Víkurfréttir - 25.06.1987, Síða 20
Fimmtudagur 25. júní 1987
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717.
„Yfirboð munu hverfa“
- segir Jón Karlsson í Brynjólfi hf., sem keypti 200 kassa á fyrsta uppboði
Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði. - Mikill skortur á starfsfólki í fiskvinnsluna
„Fiskmarkaður er bylting
fyrir fiskvinnsluna, svona
eins og hann er rekinn í
Hafnarfirði. Fjarskipta-
markaður, sem þeir vilja
stofna hér, er bara rugl.
Menn vilja fá að sjá hvað þeir
eru að kaupa,“ sagði Jón
Karlsson í Brynjólfi hf., en
hann var einn fárra útgerð-
armanna af Suðurnesjum
sem keyptu fisk á fyrsta upp-
boði Fiskmarkaðarins hf. í
Hafnarfirði.
Jón keypti 200 kassa af
þorski, 12 tonn, og greiddi
32,60 kr. fyrir kílóið, slægð-
an og ísaðan í kassa. „Þetta
er sama verð og ég hef verið
að greiða fyrir óslægðap,
ómetinn netafisk í vetur. Ég
tel að með tilkomu fiskmark-
aðarins sé sú spenna sem
verið hefur og yfirboð sem
hafa tíðkast muni hverfa.
Þarna er komin ný verð-
myndun sem mun gilda í við-
skiptum. Þetta þýðir það að
bátarnir verða að fara að
vanda hráefnisgæði og fá
greitt fyrir það. Þessi staða
hefur ekki verið fyrir hendi
hér fyrr en nú og erum við
líka komin inn í nútíðina
hvað þessi viðskipti varðar,“
sagði Jón.
Jón sagði sem dæmi að
koli hefði selst á 20 kr. kg á
fiskmarkaðnum en verðlags-
ráðsverð í fyrra hefði verið 33
kr. á kg!
Aðspurður um framtíð
fiskmarkaðar og hvort við
mættum eiga von á svona
markaði í fleiri byggðarlög-
um sagði Jónað værieinung-
is tímaspursmál um. „Þetta
er framtíðin. Kaupendur fá
að sjá og kanna ástand vör-
unnar sem þeir eru að kaupa
og greiða eftir því. Svona
markaður er góður bisness.
Þess vegna er ég ekki í nokkr-
um vafa um að markaðir eiga
eftir að verða settir upp í
flestum byggðarlögum
landsins. Undanfarin ár höf-
um við verið að greiða of hátt
verð fyrir lélegan fisk. Það
gengur náttúrlega ekki.“
Eins og í flestum fisk-
vinnslufyrirtækjum á Suður-
nesjum og víðar er nú mikill
skortur á vinnuafli. „Þetta er
slæmt. Loks þegar hráefnis-
vandamál er leyst sárvantar
okkur fólk í vinnsluna, þrátt
fyrir að mjög gott kaup sé
greitt fyrir þessi störf, mun
betur en mörg sambærileg
störf. Hin mikla spenna á
vinnumarkaðnum kemur
niður á fiskvinnslunni,“
sagði Jón Karlsson, eigandi
Brynjólfs hf.
Á fyrsta fiskuppboðinu í
Hafnarfirði gerðu margir
góð kaup. Auk Brynjólfs hf.
er þó ekki vitað um nema tvo
aðila af Suðurnesjum sem
keyptu fisk, þ.e. Fisktorg,
Vogum, og Garðskagi hf.,
Garði, sem fékk nokkuð
magn af vænum þorski á
,,spottprís“ eða 25,40 kr. pr.
kg.
Sandgerði:
Bifhjólaslys
I hádeginu á þriðjudag
varð alvarlegt bifhjóla-
slys á gatnamótum Áust-
urgötu og Strandgötu í
Sandgerði. Stóru bifhjóli
var ekið eftir Strandgöt-
unni og virðist sem öku-
maður þess hafi ekki náð
beygjunni inn á Austur-
götuna, með þeim afleið-
ingum að hjólið fór
stjórnlaust, ásamt
ökumanni, yfir grjót og
aðra farartálma nokkuð
út fyrir veginn.
Auk lögreglu mættu
bæði læknir og sjúkrabíll
á staðinn og var ökumað-
ur bifhjólsins fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík.
Var læknisskoðun ekki
lokið er blaðið fór í prent-
un, en ljóst er að hann var
þó nokkuð slasaður, s.s.
beinbrot og á höfði.
Strákarnir í 6. flokki Víðis í Garði gerðu sér lítið fyrir um daginn og hlupu „Sandgerðishring-
inn“ til að ljármagna keppnisferð til Vestmannaeyja á Tomma-mótið i knattspymu. Strákarnir
fengu lögreglufylgd á leiðinni og gekk allt að óskum. Þeir gáfu sér þó tíma til að stöðva
augnablik til að láta taka af sér mynd. Ljósm. bb.
_ VEITINGAREKSTURINN í LEIFSSTÖÐ:
A SILFURFATI TIL FLUGLEIDA?
Flugleiðum hefur verið
veitt heimild til veitingarekst-
urs í hinni nýju flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Kefla-
vikurflugvelli. Pétur Guð-
mundsson fiugvailarstjóri
staðfesti þetta í samtali við
Víkur-fréttir. Pétur sagði að
aðaláherslan væri nú lögð á
að ljúka mötuneyti fyrir
starfsmenn i flugstöðinni,
en síðan myndu veitingasal-
irmr opna hver af öðrum.
Hann sagði að 15. júlí væri
ráðgert að opna fyrsta sal-
inn fyrir almenning.
Pétur sagði að hann hefði
veitt Flugleiðum veitinga-
reksturinn að vel íhuguðu
máli og í samráði við fær-
ustu aðila, sem hefðu
kannað þær umsóknir sem
bárust í veitingareksturinn.
Hér væri um að ræða hlut-
lausa sveit manna sem hefði
þekkingu á þessum málum
og hefði verið farið ná-
kvæmlega í saumana á öll-
um tilboðunum. Þessiraðil-
ar hefðu svo mælt með að
tilboði Flugleiða yrði tekið
og hann farið að ráðum
þeirra.
Ekki vildi Pétur upplýsa
hvert tilboð Flugleiða Flug-
leiða hefði verið, en sam-
kvæmt traustum heimild-
um Víkur-frétta voru Flug-
leiðir með lægsta tilboðið.
Gert var ráð fyrir 10.6
milljón kr. lágmarks-
greiðslum fyrir aðstöðuna á
ári og voru nokkrir aðilar
yfir því tilboði, þar á meðal
einn frá Keflavík, en Flug-
leiðir buðu um 8 milljónir.
Einnig hefur blaðiðfregnað
af því að fyrir hefði legið að
Flugleiðir fengju þennan
rekstur áður en honum var
úthlutað, og bar það undir
flugvallarstjóra. Pétur
aftók með öllu að maðkur
væri í mysunni í þessu máli
og sá aðili sem best var fær
um að sinna þessu verkefni
hefði hneppt hnossið.
Flugmat Glóðarinnar:
Vel tekið
Síðasta helgi var stór
fyrir veitingastaðinn
Glóðina í Keflavík því
yfir helgina voru af-
greiddir 1.500 bakkar
með mat frá fyrirtækinu í
flugvélar Arnarflugs.
Meðal annars fóru 600
bakkar um borð í flugvél
að morgni laugardagsins.
Sú flugvél fór frá Kefla-
víkurflugvelli til Zurich í
Sviss, fullsetin farþegum,
þ.á.m. hópi boðsgesta frá
öllum helstu fjölmiðlum
þessa lands og í þeim hópi
var blaðamaður Víkur-
frétta.
Þegar til Sviss kom fór
þessi hópur út, en flugvéi-
in tók aðra farþega og
flaug fullsetin til Sikileyj-
ar og heim aftur til Zurich
þar sem íslenski hópurinn
var aftur tekinn heim.
Mikla athygli vakti gæði
matarbakkanna frá
Glóðinni alla þessa flug-
leið og var mjög vel tekið.
Með í ferðinni voru full-
trúar frá Glóðinni og
fengu þeir óspart hrós frá
flugfarþegum.
Annars staðar í blaðinu
er flugferð þessari gerð
nánari skil svo og hlut
Glóðarinnar.
Tekinn á 103 km.
hraða í Njarðvík
I síðustu viku gómaði
lögreglan í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringu-
sýslu ökumann, þar sem
hann ók á 103 km hraða í
gegnum Njarðvík. Var
hann tekinn á Víkurveg,
áður Reykjanesbraut.
Var ökumaðurinn
færður á lögreglustöðina,
en hann á yfir höfði sér
sviptingu ökuleyfis fyrir
að aka á rúmlega tvöföld-
um hámarkshraða, auk
sektar.